Síða 1 af 2

Mig langar að vara við að fara í tölvutek og versla þar!!

Sent: Mán 14. Jún 2010 17:36
af bloggla
þar sem ég sá mann vera að vara við tölvulistanum og því vildi ég koma með reynslusögu mína frá tölvutek og afhverju ég vil vara við að fólk versli þar!!

En já, ég kaupi fartölvuna mína í gegnum netverslun tölvuteks vorið 2007(ég bjó þá útá landi). Tölvan er semsagt Acer, bara einhver ódýr tölva sem ég fann og hún var með vista í henni. Ég hata vista og fékk vin minn til að setja upp xp strax í hana. Hún fór að drepa á sér strax og ég fékk hana, og þá skipti ekki máli hvort að hún væri í hleðslu eða ekki, hvort að hún væri heit eða ekki, hvort að það hefði verið lengi búið að vera kveikt á henni eða ekki eða hvort að hún væri undir álagi. Ég fann ekki neina tengingu á því afhverju hún væri alltaf að drepa á sér. En þetta gerðist í byrjun kannski 2 í mániði þannig að það truflaði mig ekki. Síðan snemma vors 2008 þá byrjar þetta að gerast nokkrum sinnum í viku og ég enda á að fara með hana til Tölvuteks í Borgatúni til að skoða hana þar sem hún er ennþá í ábyrgð. Þeir skoða hana og láta mig borga 2990kr því að þeir finna ekki neitt að henni, og kenna því um að xp hafi örugglega verið vitlaust sett upp í hana. Ljóskan ég trúði því bara, þar sem ég kann ekkert svo mikið um tölvur, en kann þó eitthvað.
Síðan sumarið 2008 þá hrinur tölvan mín og ég ákveð því að láta starfsmenn tölvutekst setja upp xp í tölvuna svo að þetta sé nú ekki vitlaust sett upp aftur og að hún myndi hætta að drepa á sér.
Þeir voru nú ekki svo lengi að því og ég fékk tölvuna til baka eftir 4-5 daga eins og búist var við, en þá var bara hent upp vista, eitthvað sem ég bað um að yrði aðeins gert ef að þeir gætu ekki sett up xp, en þar sem þeir höfðu ekki reynt það þá sögðu þeir myndu nú reyna, en að verðið myndi halda sér.
Ég gaf þeim upp licensis key sem ég átti við að setja upp xp, eitthvað sem ég var ekki einu sinni beðin um þegar ég kom með hana fyrst inn, en þessir starfsmenn sögðu að það væri nú ekki möguleiki fyrir þá að setja upp XP án þess að hafa þetta key, síðan leið vika og ekkert heyrðist frá starfsmönnunum þannig að ég fór þangað og spurði hvað væri að gerast, þeir sögðu að tæknimaðurinn væri ekki að finn rétt xp sem passar við þennan licensis key, þannig að kærasti minn endar á að fara með geisladisk sem ætti að passa við þetta licens key og þeir segja að þetta ætti að vera komið í tölvuna samdægurs eða daginn eftir.
Síðan aftur voru nokkrir dagar og ekkert heyrðist, þannig að ég fer aftur niðrí búð og þá segja starfsmennirnir ekki vita afhverju það væri ekki búið að klára tölvuna, að það hlyti að vera útaf því að þeir hefðu bara gleymt að vinna í tölvunni, aftur liðu nokkrir dagar og nokkrar ferðir niðrí Borgarún að athuga um hana og loks að 3 vikum liðnum frá því að ég kom með tölvuna til að setja XP í hana og þá fæ ég hana loksins til baka og ég borga næstum 6000kr fyrir þetta.

En þá er sagan langt frá því að vera búin heldur að eftir að ég fékk hana til baka þá drap hún á sér svona 10x á dag og nokkrum sinnum gerðist það að upp kom gluggi sem sagði að display driver væri eitthvað bilaður og skjárinn svona minnkaði og liturinn varð skrítinn og ég þurfti að restarta tölvunni. Ég fór með tölvuna mína því aftur í Tölvutek búðina og þeir kíktu á þetta, sem tók viku að gera, aftur segja þeir að þeir sjá að ekkert sé að. En viti menn þegar ég fæ tölvuna til baka heldur þetta bara áfram, en kannski bara svona einu sinni á dag. En það breyttist bara að hún virðist eiginlega vera hætt að drepa á sér þegar hún er í hleðslu, en hún drepur alveg á sér ennþá þegar hún er ekki í hleðslu og þetta með að display driver sé ekki að virka rétt gerist einnig af og til.

Ég fór og kvartaði mjög undan þessari þjónustu og þeir buðust til að kíkja á tölvuna aftur og ég bjóst við að það yrði þá nú ókeypis þar sem ég væri svo oft búin að borga án þess að þeir næðu að laga eitt né neitt. En nei, þeir ætluðu að fara að rukka mig aftur fyrir að þeir sögðu að þeir fyndu ekki neitt að og fóru að segja að viftan hafi verið full af ryki og nú ætti þetta að stoppa, en ég varð svo reið að ég neitaði nú að borga þetta og þeir felldu þetta niður á endanum, og tölvan mín er ennþá að drepa á sér af og til, en ég mun aldrei aftur stíga þarna inn með tölvuna mína, né kaupa neitt af þeim þar sem þeir ljúga bara og ljúga og kenna mér eða öðrum starfsmönnum um hvað allt gengur illa hjá þeim

Síðan reynslusaga frá vinkonu minni, var að hún keypti "nýjan" sjónvarpsflakkara hjá tölvutek og kemur heim og kveikir á honum þá er hann stútfullur af kvikmyndum og öðrum gögnum! þau fengu að vísu nýjan flakkara en maður verður allaveganna að passa sig á hlutunum sem maður heldur að maður sé að kaupa nýja.

Ég vona að þeir sem hafi nennt að lesa þessa reynslusögu mína hafi lært að hugsa sig allaveganna tvisvar um áður en þeir versla eitthvað frá tölvutek. Þetta er eina fyrirtækið sem ég hef lennt í svona leiðindar vandræðum með.

Re: Mig langar að vara við að fara í tölvutek og versla þar!!

Sent: Mán 14. Jún 2010 17:42
af hauksinick
bloggla skrifaði:þannig að kærasti minn


Held þú sért ein af fáum kvennmönnunum hérna á vaktini,ekki amarlegt.

Wall of text !..

Re: Mig langar að vara við að fara í tölvutek og versla þar!!

Sent: Mán 14. Jún 2010 17:43
af Lusifer
Tölvutek hafa reynst mér afskaplega vel. Útibúið hérna á akureyri er með traust og vel þjálfað starfsfólk. Get ekki talað um önnur útibú því ég hef ekki reynslu af þeim.

Re: Mig langar að vara við að fara í tölvutek og versla þar!!

Sent: Mán 14. Jún 2010 17:45
af hauksinick
Lusifer skrifaði:Tölvutek hafa reynst mér afskaplega vel. Útibúið hérna á akureyri er með traust og vel þjálfað starfsfólk. Get ekki talað um önnur útibú því ég hef ekki reynslu af þeim.


Ég hef fína reynslu af þeim líka en aftur á móti tölvulistinn get's in my nerves :twisted:

Re: Mig langar að vara við að fara í tölvutek og versla þar!!

Sent: Mán 14. Jún 2010 18:02
af Daz
hauksinick skrifaði:
bloggla skrifaði:þannig að kærasti minn


Held þú sért ein af fáum kvennmönnunum hérna á vaktini,ekki amarlegt.

Wall of text !..


1 póstur á vaktinni. Varla hægt að segja að sá aðili sé notandi hérna.

Re: Mig langar að vara við að fara í tölvutek og versla þar!!

Sent: Mán 14. Jún 2010 18:04
af hauksinick
Daz skrifaði:
hauksinick skrifaði:
bloggla skrifaði:þannig að kærasti minn


Held þú sért ein af fáum kvennmönnunum hérna á vaktini,ekki amarlegt.

Wall of text !..


1 póstur á vaktinni. Varla hægt að segja að sá aðili sé notandi hérna.

Hvað þá ?

Kannski ekki virkur en samt notandi.

Re: Mig langar að vara við að fara í tölvutek og versla þar!!

Sent: Mán 14. Jún 2010 18:48
af bixer
er mjög ánægður með tölvutek, sérstaklega á ak. þar er starfsfólk sem hefur gaman af vinnunni sinni og er tilbúið að hjálpa manni ef maður er í einhverjum pælingum..var ekki hrifinn af tölvutek í reykjavík samt

Re: Mig langar að vara við að fara í tölvutek og versla þar!!

Sent: Mán 14. Jún 2010 19:09
af BjarkiB
Tölvutek hefur bjargað lífi mínu á Akureyri, góð þjónusta :punktur:

Re: Mig langar að vara við að fara í tölvutek og versla þar!!

Sent: Mán 14. Jún 2010 19:13
af littli-Jake
hauksinick skrifaði:
Daz skrifaði:
hauksinick skrifaði:
bloggla skrifaði:þannig að kærasti minn


Held þú sért ein af fáum kvennmönnunum hérna á vaktini,ekki amarlegt.

Wall of text !..


1 póstur á vaktinni. Varla hægt að segja að sá aðili sé notandi hérna.

Hvað þá ?

Kannski ekki virkur en samt notandi.


Joined:
Mán 14. Jún 2010 17:15

The defense rests

Re: Mig langar að vara við að fara í tölvutek og versla þar!!

Sent: Mán 14. Jún 2010 19:23
af beatmaster
Eða jafnvel starfsmaður TL í dulargervi....

Re: Mig langar að vara við að fara í tölvutek og versla þar!!

Sent: Mán 14. Jún 2010 19:34
af Vectro
TL pósturinn fór inn á B2, það getur bara vel verið að viðkomandi hafi séð þetta þar, og ákveðið að pósta sínum hugsunum.

Róum okkur á samsæriskenningum.

Re: Mig langar að vara við að fara í tölvutek og versla þar!!

Sent: Mán 14. Jún 2010 20:43
af vesley
Þú s.s. átt fartölvu sem er oft að crasha, display driver að hætta að responda og svo framvegis. Mér finnst það mjög líklegt að hún hafi í rauninni fyrst verið vitlaust sett upp með Windows Xp, það er líka alveg stórskrítið að þeir bilanagreina vélina finna ekki neitt og svo strax þegar þú færð hana þá fer allt í steik. Hljómar örlítið eins og vitlaust meðhöndlun á tölvunni.

Re: Mig langar að vara við að fara í tölvutek og versla þar!!

Sent: Mán 14. Jún 2010 20:54
af hauksinick
littli-Jake skrifaði:
hauksinick skrifaði:
Daz skrifaði:
hauksinick skrifaði:
bloggla skrifaði:þannig að kærasti minn


Held þú sért ein af fáum kvennmönnunum hérna á vaktini,ekki amarlegt.

Wall of text !..


1 póstur á vaktinni. Varla hægt að segja að sá aðili sé notandi hérna.

Hvað þá ?

Kannski ekki virkur en samt notandi.


Joined:
Mán 14. Jún 2010 17:15

The defense rests


HÚN ER SAMT NOTANDI ! [-X

Re: Mig langar að vara við að fara í tölvutek og versla þar!!

Sent: Mán 14. Jún 2010 21:03
af rapport
Þetta er týpískt dæmi um lélega tölvuþjónustu, frá upphafi er vandinn rangt greindur og í raun ekki enn (þrátt fyrir marga þúsundkarla) er vandinn enn óleystur...

Uppsetning á stýrikerfi sem notandinn hélt bara að Tölvutek gæti skaffað "out of thin air" s.s. licence key + diskum... Held að þangað sé hægt að rekja mörg mistök sem svo voru gerð í millitíðinni...

En ef ég væri þessi ungfrú þá færi ég með allar nóturnar núna til Tölvuteks og færi fram á aðra tölvu ef þeir mundu ekki leysa vandann "once and for all".

Annars færi ég með erindið í "Kærunefnd lausafjár og þjónustukaupa"... það er bara prinsipp mál að fá það sem maður borgar fyrir, þó það sé bara 100þ ...

Re: Mig langar að vara við að fara í tölvutek og versla þar!!

Sent: Mán 14. Jún 2010 21:22
af Pallith
Besta lausnin vid tessum vanda er ad fá sé Mac tölvu!

Re: Mig langar að vara við að fara í tölvutek og versla þar!!

Sent: Mán 14. Jún 2010 21:28
af Sydney
Pallith skrifaði:Besta lausnin vid tessum vanda er ad fá sé Mac tölvu!

Af því að apple umboðið á íslandi er svo frábært

#-o

Re: Mig langar að vara við að fara í tölvutek og versla þar!!

Sent: Mán 14. Jún 2010 21:38
af Lunesta
gætir náttúrulega prófað að fara með hana í skoðun hjá einhverjum öðrum sem eru þekktir fyrir að vera áreiðanlegir og fengið svar sem segir þér hvað er að... skoðunin yrði örugglega álíka dýr þar sem þú ætlar ekki að láta þá gera við hana heldur bara skoða. eftir það tækirðu tölvuna færir til þeirra og segðir hvað væri að og ef það gengur illa þá geriru bara eins og hann sagði hér fyrir ofan og talar við "Kærunefnd lausafjár og þjónustukaupa".

Re: Mig langar að vara við að fara í tölvutek og versla þar!!

Sent: Mán 14. Jún 2010 21:42
af biturk
Pallith skrifaði:Besta lausnin vid tessum vanda er ad fá sé Mac tölvu!



gott að vera í fangelsi já¨!

Re: Mig langar að vara við að fara í tölvutek og versla þar!!

Sent: Mán 14. Jún 2010 21:57
af BugsyB
Þetta er týpiskt bilað móðurborð sem leiðir út frá sér og ef verlsun sama hverjir þeir eru sjá að þeir geta tekið þig aftanfrá þá gera þeir það - ég hef lent í veseni með tölvutek og tölvulistann en ég veit betur og syndi þeim á staðnum að ég hafði rétt fyrir mér og fékk að tala beint við tæknimann ekki þessa hálvita sem standa fyrir framan borðið þeir vita ekki neitt

Re: Mig langar að vara við að fara í tölvutek og versla þar!!

Sent: Mán 14. Jún 2010 23:29
af Snorrivk
BugsyB skrifaði:Þetta er týpiskt bilað móðurborð sem leiðir út frá sér og ef verlsun sama hverjir þeir eru sjá að þeir geta tekið þig aftanfrá þá gera þeir það - ég hef lent í veseni með tölvutek og tölvulistann en ég veit betur og syndi þeim á staðnum að ég hafði rétt fyrir mér og fékk að tala beint við tæknimann ekki þessa hálvita sem standa fyrir framan borðið þeir vita ekki neitt


Þú verður að A.T.H. að það ert þú sem stendur fyrir framan borðið og þeir fyrir aftan borðið. :)

Re: Mig langar að vara við að fara í tölvutek og versla þar!!

Sent: Þri 15. Jún 2010 00:15
af barabinni
Það geta allir lent í vesen með hvaða búð sem er. Ég t.d. lenti í heilmiklu veseni með Kísildal stuttu eftir að sú búð opnaði, endaði á því að gefast einfaldlega upp á því að fást við þá. Þykir þjónustan þar þó til fyrirmynda í dag, einnig í computer.is og tölvutek. Hef ekki fengið neitt nema góða þjónustu síðustu 2 árin á þessum stöðum.

Fólk verður bara að standa á sínum rétti, ef þú ert með bilaða vöru og þeir laga hana ekki, segja hana í lagi þó hún sé það ekki þá skaltu bara krefjast þeirra réttinda sem þú hefur, endurgreiðslu. En það er flott að fólk er vakandi fyrir þessum hlutum þó svo að mér finnist þessi TL grein frekar farsakend þrátt fyrir að flestir virðast ósáttir við þeirra þjónustu.

Re: Mig langar að vara við að fara í tölvutek og versla þar!!

Sent: Þri 15. Jún 2010 00:20
af BjarniTS
biturk skrifaði:
Pallith skrifaði:Besta lausnin vid tessum vanda er ad fá sé Mac tölvu!



gott að vera í fangelsi já¨!



Haha það hafa ekki allir efni á Mac.

Skiljanlegt svosem , vandaðar og dýrar vélar , verðið á þeim heldur líka frá mönnum sem kunna ekkert að fara með eða eignast pening ;)

Re: Mig langar að vara við að fara í tölvutek og versla þar!!

Sent: Þri 15. Jún 2010 07:52
af Jimmy
BjarniTS skrifaði:
biturk skrifaði:
Pallith skrifaði:Besta lausnin vid tessum vanda er ad fá sé Mac tölvu!



gott að vera í fangelsi já¨!



Haha það hafa ekki allir efni á Mac.

Skiljanlegt svosem , vandaðar og dýrar vélar , verðið á þeim heldur líka frá mönnum sem kunna ekkert að fara með eða eignast pening ;)


Og höfðar líka til þeirra sem halda að verðmiðinn sé allt. ;)

Re: Mig langar að vara við að fara í tölvutek og versla þar!!

Sent: Þri 15. Jún 2010 11:20
af biturk
BjarniTS skrifaði:
biturk skrifaði:
Pallith skrifaði:Besta lausnin vid tessum vanda er ad fá sé Mac tölvu!



gott að vera í fangelsi já¨!



Haha það hafa ekki allir efni á Mac.

Skiljanlegt svosem , vandaðar og dýrar vélar , verðið á þeim heldur líka frá mönnum sem kunna ekkert að fara með eða eignast pening ;)



ég hef nú alveg efni á því vinur :lol:

en þar sem þetta er nánast sömu íhlutir og er í tölvum yfirhöfuð nema í ljótum umbúðum þá kýs ég að spara mér 100 - 200 þúsund og kaupa mér bara venjulega tölvu með stýrikerfi sem að leifir mér að gera það sem mig langar...ekki það sem steve jobs vill leifa mér að gera. :wink:

Re: Mig langar að vara við að fara í tölvutek og versla þar!!

Sent: Þri 15. Jún 2010 11:28
af Gúrú
[ ] Þið eruð on topic