Síða 1 af 2

Tillaga: Símanúmer í sölu auglýsingar gert að reglu

Sent: Mið 07. Okt 2009 01:16
af Danni V8
Hvernig væri að gera það að reglu að setja inn símanúmer í söluauglýsingar?

Ég er búinn að fá upp í kok af því að lesa söluauglýsingar með hlutum sem mig langar til að kaupa, senda PM eða svara í auglýsingunni og fá ekki neitt svar.

Sjálfur hef ég alltaf sett inn símanúmer í sölu eða óskast auglýsingar og það hefur alltaf endað eins, fólkið með áhugan hringir í mig en rest sendir PM, það klikkar ekki.

Það er líka algengt að fólk kemur hingað inn, sendir auglýsingu og kíkir síðan ekkert aftur fyrr en eftir marga daga.

Þetta er kannski einhver della í mér þar sem að hin spjöllin sem ég fer reglulega á eru með þetta sem reglu.

Hvað finnst rest?

Re: Tillaga: Símanúmer í sölu auglýsingar gert að reglu

Sent: Mið 07. Okt 2009 01:54
af himminn
Mig langar ekkert að birta símanúmerið mitt á neinni vefsíðu, hvort sem það sé hér, huga eða á 4chan. Hins vegar er það ekkert mál að senda símanúmerið í pm á fólk þegar það vill kaupa eitthvað af mér, en ég skoða líka söluþræðina sem ég geri daglega fyrstu 2 vikurnar kannski.

Re: Tillaga: Símanúmer í sölu auglýsingar gert að reglu

Sent: Mið 07. Okt 2009 02:01
af BjarniTS
Like á þessa hugmynd.

Re: Tillaga: Símanúmer í sölu auglýsingar gert að reglu

Sent: Mið 07. Okt 2009 02:53
af AntiTrust
Algjörlega á móti þessu. Ég sé vel kostina við þetta, en að hafa þetta sem reglu þætti mér fráleitt.

Re: Tillaga: Símanúmer í sölu auglýsingar gert að reglu

Sent: Mið 07. Okt 2009 03:07
af Legolas
Ég er sammála, ég læt símanúmerið mitt alltaf ALLTAF með í öllum auglýsingum og öllum svörum hér , barnalandi, Partalistanum og mörgum öðrum stöðum
í mörg mörg ár og aldrei lent í brasi og séð eftir því. PS ég er búinn að vera með sama GSM númerið í 12 ár [-(


SVO SATT --- fólkið með áhugan hringir í mig en rest sendir PM í lang flestum tilfellum

Re: Tillaga: Símanúmer í sölu auglýsingar gert að reglu

Sent: Mið 07. Okt 2009 03:29
af Danni V8
Eflaust rétt svona þegar ég hugsa út í það. Örugglega ekki hægt að skilda fólk til þess.. brot á persónuverndarlögum og þannig stuff... En finnst samt að það mætti taka þetta fram að það er æskilegt að setja númer í auglýsinguna ef manneskjan er sú týpa sem auglýsir og lætur síðan ekki sjá sig fyrr en eftir langan tíma.

Ein hugmynd er að bæta því inn í "Lesa fyrst: Lýsandi sölutitlar" þráðinn sem er sticky efst í Til Sölu dálknum. "Einnig er æskilegt að tekið sé fram hvernig er best að hafa samband við þig, símanúmer, e-mail eða einkapóst." Hægt orða þetta svona t.d.

Ég fór að gamni mínu yfir alla þræðina á fyrstu blaðsíðunni og af 18 söluþráðum voru 4 með símanúmer.

Það er að vísu eitt sem ég sé á móti þessu og það er að ef fólk setur símanúmer þá kannski selst varan fljótlega en seljandinn kemur ekki aftur til að láta vita að varan sé seld. Það yrði óþægilegt fyrir þá sem síðan hafa áhuga og hringja, bara til þess að komast að því að varan er seld.

Re: Tillaga: Símanúmer í sölu auglýsingar gert að reglu

Sent: Mið 07. Okt 2009 06:15
af g0tlife
svakalega er fólk stressaðað alltaf að setja símanúmerið sitt. Ég læt það alltaf og hef aldrei lent í veseni, grunar bara að sumir hafa ekki punginn í það að standa fyrir sínu í símanum

Re: Tillaga: Símanúmer í sölu auglýsingar gert að reglu

Sent: Mið 07. Okt 2009 09:22
af Daz
Ef seljandi svarar ekki PM/tölvupósti, þá hefur hann greinilega ekki áhuga á að selja.

Ég hef keypt og selt hitt og þetta á bæði þessu vef og öðrum. Ég set aldrei inn mitt GSM númer nema bara þegar "samningur" er komin, þá er hægt að ræða í síma um hvernig gengið er frá sölunni. Ég hef engann sérstakann áhuga á að hringja í eitthvað lið bara til að gera því tilboð í vöru, EF ég get gert það sama með rafrænum hætti.

gotlife skrifaði:svakalega er fólk stressaðað alltaf að setja símanúmerið sitt. Ég læt það alltaf og hef aldrei lent í veseni, grunar bara að sumir hafa ekki punginn í það að standa fyrir sínu í símanum

Sumir hafa bara engann áhuga á að ræða/prútta við ókunnugt fólk í gegnum síma. Ég vil miklu frekar geta sent inn tilboð/svarað tilboðum þegar mér hentar, ekki þegar síminn hringir.

Re: Tillaga: Símanúmer í sölu auglýsingar gert að reglu

Sent: Mið 07. Okt 2009 15:18
af Gúrú
Danni V8 skrifaði: Örugglega ekki hægt að skilda fólk til þess.. brot á persónuverndarlögum og þannig stuff...


...Nei? :D

Re: Tillaga: Símanúmer í sölu auglýsingar gert að reglu

Sent: Mið 07. Okt 2009 16:52
af Glazier
Danni V8 skrifaði: Örugglega ekki hægt að skilda fólk til þess.. brot á persónuverndarlögum og þannig stuff...

Ekki brot á persónuverndarlögum, ef þessi regla væri og fólk vildi ekki gefa upp númerið sitt þá bara sleppir það því að auglýsa :)

Re: Tillaga: Símanúmer í sölu auglýsingar gert að reglu

Sent: Mið 04. Nóv 2009 11:34
af biturk
alveg fáránlegt að skylda til þess, það er mikið þægilegra að geta bara sent pm

frekar að setja kóða að ef þú loggar þig ekki inn eftir sólarhing og einu sini á dag eftir það í eina viku þá eiðist þráðurinn sjálfkrafa!

Re: Tillaga: Símanúmer í sölu auglýsingar gert að reglu

Sent: Mið 04. Nóv 2009 12:55
af hsm
Svo á að skilda fólk til að setja heimilisfang líka svo að við getum farið heim til þeirra ef þeir skildu ekki svara símanum. :8)

Látið ekki svona, ég hef verslað og selt hér á vaktini og ekki lent í neinum teljandi vandræðum.
Það verða alltaf einhverjir sem að svara ekki og eru hættir að kíkja á auglýsingarnar sínar.
Lendi meira í því á barnalandi heldur en hér.

En þetta fyrirkomulag sem er hér er bara mjög gott og þarf ekki neinar reglur um heimilisföng né símanúmer.
Og hvað þá kóða sem hendir út auglýsingunni þinni út ef þú kíkir ekki á hana reglulega.
Ég er til dæmis á sjó og get ekki kíkt hér inn alltaf þegar mig langar og vill ekki vera útskúfaður frá til sölu/óska eftir þess vegna.
Enda tek ég það yfirleitt fram ef ég verð ekki í sambandi í einhverja daga.

Re: Tillaga: Símanúmer í sölu auglýsingar gert að reglu

Sent: Mið 04. Nóv 2009 13:46
af GuðjónR
Ef ég er að kaupa eða selja eitthvað á netinu þá gef ég aldrei upp síma nema kaup/sala sé frágengin og búið að ákveða fundarstað og stund.

Re: Tillaga: Símanúmer í sölu auglýsingar gert að reglu

Sent: Mið 04. Nóv 2009 14:05
af dori
biturk skrifaði:alveg fáránlegt að skylda til þess, það er mikið þægilegra að geta bara sent pm

frekar að setja kóða að ef þú loggar þig ekki inn eftir sólarhing og einu sini á dag eftir það í eina viku þá eiðist þráðurinn sjálfkrafa!

Algjörlega ekki. Ég fæ sent email þegar ég fæ einkaskilaboð og stundum kíki ég ekkert hingað í lengri tíma (ef ég er busy við verkefni) nema ég fái einmitt slíkt email.

Re: Tillaga: Símanúmer í sölu auglýsingar gert að reglu

Sent: Mið 04. Nóv 2009 16:58
af Lallistori
Ég er sammála því , þetta ætti að vera regla.

Re: Tillaga: Símanúmer í sölu auglýsingar gert að reglu

Sent: Mið 04. Nóv 2009 17:17
af Gúrú
Væri hryllingur fyrir markaðsspjallborðið að mínu mati.

Re: Tillaga: Símanúmer í sölu auglýsingar gert að reglu

Sent: Mið 04. Nóv 2009 18:34
af Arkidas
Er ekki til eitthvað feedback ystem addon fyrir PHPBB? Kæmi sér nokkuð vel hér til að nota í Til sölu spjallborðinu.

Re: Tillaga: Símanúmer í sölu auglýsingar gert að reglu

Sent: Mið 04. Nóv 2009 18:38
af Gúrú
Arkidas skrifaði:Er ekki til eitthvað feedback ystem addon fyrir PHPBB? Kæmi sér nokkuð vel hér til að nota í Til sölu spjallborðinu.

Eitthvað eins og "Gerast áskrifandi að þræði" hér í gráa PHPBB rammanum fyrir neðan?

Re: Tillaga: Símanúmer í sölu auglýsingar gert að reglu

Sent: Mið 04. Nóv 2009 18:41
af depill
Gúrú skrifaði:
Arkidas skrifaði:Er ekki til eitthvað feedback ystem addon fyrir PHPBB? Kæmi sér nokkuð vel hér til að nota í Til sölu spjallborðinu.

Eitthvað eins og "Gerast áskrifandi að þræði" hér í gráa PHPBB rammanum fyrir neðan?


Held að hann meini meira eins og eBay Feedback system. Sem sagt að maður geti drullað yfir notandan sem yrði fast við prófílin hans ef hann stendur sig illa og öfugt.

Re: Tillaga: Símanúmer í sölu auglýsingar gert að reglu

Sent: Mið 04. Nóv 2009 18:46
af Gúrú
depill skrifaði:
Gúrú skrifaði:
Arkidas skrifaði:Er ekki til eitthvað feedback ystem addon fyrir PHPBB? Kæmi sér nokkuð vel hér til að nota í Til sölu spjallborðinu.

Eitthvað eins og "Gerast áskrifandi að þræði" hér í gráa PHPBB rammanum fyrir neðan?

Held að hann meini meira eins og eBay Feedback system. Sem sagt að maður geti drullað yfir notandan sem yrði fast við prófílin hans ef hann stendur sig illa og öfugt.

Ahh já ég gleymdi að hugsa :/
Var annars ekki einhver svoleiðis þráður hér einhversstaðar ~2007-2008? Minnir að það hafi gerst í kjölfarið á því að einhver stundaði hart lélega viðskiptahætti...

Re: Tillaga: Símanúmer í sölu auglýsingar gert að reglu

Sent: Mið 04. Nóv 2009 19:37
af Ulli
ég stið þetta.

Re: Tillaga: Símanúmer í sölu auglýsingar gert að reglu

Sent: Mið 04. Nóv 2009 19:53
af vesley
að gera það að reglu að hafa símanúmer myndi alveg örugglega fækka sölu auglýsíngum um meira en helming : S svo ég er algjörlega á móti því ef eitthvað er verið að pæla í þessu

Re: Tillaga: Símanúmer í sölu auglýsingar gert að reglu

Sent: Mið 04. Nóv 2009 20:19
af Hnykill
fók sem kann að skrifa kann flest að tala í símann líka. mér finnst meira traustvekjandi að díla við einhvern sem ég er með númerið hjá. ég trassaði t.d að senda tölvu sem ég var að selja hérna um daginn og gaurinn bara hringdi í mig og spurði hvort við ætluðum að gera þetta eða ekki. :Þ .. það ætti samt ekki að vera nein skylda að gefa upp númer.. það er alveg satt. en ég myndi vilja gefa fólki einkunn eins og á Ebay.. hvort viðskipti hafa gengið fram eins og var ákveðið.

Re: Tillaga: Símanúmer í sölu auglýsingar gert að reglu

Sent: Þri 15. Des 2009 11:08
af Cary
Ég er sammála þessarri tilllögu.
Ég er nú búin að vera að leita mér að tölvu í um það bil tvær vikur og það sem gengur hvað verst er að reyna að ná sambandi við það fólk sem er að auglýsa. Viðskipti á barnalandi ganga hraðar fyrir sig. :lol: Verst að það er ekki nóg af tölvum þar.
Svo er eflaust fullt af fólki sem notar síðuna sem gestir og væri eflaust til í að geta hringt í seljandann frekar en að búa til notanda sem er einungis notaður einu sinni vegna einhverrar auglýsingar.

Einkaskilboð hér á síðunni virðast ekki virka hjá mér eðlilega. Sendast stundum og stundum ekki og ég get ekki sent aftur það sem saveast í outboxinu. Eru fleiri að lenda í því sama? Eða er ég að gera eitthvað vitlaust? Vil ekki koma með svona athugasemdir að óþörfu en kannski gott að stjórnendur viti af þessu.

Ég hef alrdrei verið feimin við að setja símanúmerið mitt í auglýsingar og hef aldrei verið ofsótt eða lent í ruglaðri sölumennsku vegna þess og vona að svo verði ekki bara af því ég segi það hér. Svo þýðir ekkert að vera feiminn við að tala í símann.

Re: Tillaga: Símanúmer í sölu auglýsingar gert að reglu

Sent: Þri 15. Des 2009 11:37
af Safnari
Cary skrifar
!!""Einkaskilboð hér á síðunni virðast ekki virka hjá mér eðlilega. Sendast stundum og stundum ekki og ég get ekki sent aftur það sem saveast í outboxinu.""!!

PM pósturinn er í outboxinu þar til viðtakandi tekur við honum.
Þannig að ef outboxið er fullt hjá þér þá hefur viðkomandi ekki loggað sig inn og sótt póstinn sinn.
Ástæðulaust að hafa símanúmer með í auglýsingunni sjálfri.
Maður gefur það jú upp í svari við PM boði/fyrirspurn.
Ef mönnum liggur lífið á með á fá einhvern hlut, þá verða menn bara að fara út í búð.