Síða 1 af 4

Hvað viljið þið fá á nýja verðvakt?

Sent: Lau 20. Jún 2009 00:17
af GuðjónR
Jæja....

Þá er ég byrjaður að prjóna nýja verðvakt.
Vil fá álít hjá ykkur hvað við eigum að hafa.

Ég er að hugsa um að hafa HDD eins og þeir eru, nema að bæta aðeins við flóruna.
CPU OG GPU má breytast eitthvað, ég held að ýmislegt megi alveg hverfa.

Og RAM, smá vesen með það, nú eru svo misjöfn TIMINGS á ram að það er eiginlega ekki hægt að bera þetta saman, getum við haft eitthvað annað?

breinstormið og póstið husunum ykkar hingað.

Re: Hvað viljið þið fá á nýja verðvakt?

Sent: Lau 20. Jún 2009 00:47
af vesley
hafa skjái alveg slatti af sömu lcd skjáunum í búðum ; )

kannski móðurborð eftir s.s. chipsetum og þannig

Re: Hvað viljið þið fá á nýja verðvakt?

Sent: Lau 20. Jún 2009 04:58
af Nothing
hugmyndir frá mér:

T.d.
Skjákortinn: GTX 275 OC og GTX 275

HD: 500GB 8mb , 500GB 16mb og 500GB 32mb

RAM: ddr2 800mhz CL4, ddr2 800mhz CL5 einhvað í þessa átt.

Og bæta við fleiri örgjörvum þá t.d. Alla Dual, Tripple og Quad core í INTEL og AMD.

Svo er spurning að henda inn hljóðkortum eins og bara X-fi línuna.

Þá væri þetta einhvað svona:

| Örgjörvar | Vinnsluminni | Skjákort | Harðir diskar | Hljóðkort |

Svo töflurnar fyrir hvern og einn flokk. Hafa þetta bara í sérdálkum. :)

Kv Nothing

Re: Hvað viljið þið fá á nýja verðvakt?

Sent: Lau 20. Jún 2009 06:51
af urban
tjahh minnin má svo sem flokka í 3 flokka...

keppnis
Minni
low end


ok nú vona ég að einhver fatti hvað ég á við, eða alla vega vona að ég fatti það ámorgun égar að ég vakna af djamminu

Re: Hvað viljið þið fá á nýja verðvakt?

Sent: Sun 21. Jún 2009 04:48
af Nothing
Skil þig urban

semsagt.
  • xtreme [eða einhvað álíka]
  • High end
  • Low end

Re: Hvað viljið þið fá á nýja verðvakt?

Sent: Sun 21. Jún 2009 11:00
af mind
Verðurðu ekki bara hafa samanburðinn eins líkan og hægt er með hag sem flestra í fyrirrúmi, þar sem samanburðurinn er flókinn læturðu fólk hafa tólin til að skera úr mismun þeirra. Svipað og er nú þegar á forsíðunni bara meira.

Þeir sem eru að kaupa dýra og sérhæfða hluti eru yfirleitt nógu upplýstir og kanna vöruna til ýtar hjá öllum verslunum hvort sem þú útlistar henni hér eða ekki. Útlistun þín einfaldar okkur yfirleitt verkið en mikilvægi hennar ætti ekki að vera eins mikið og að fræða Jón Jónsson hvar hann fái sem stærstan disk á sem besta verðinu.

Örgjörvar
Því meiri tækniupplýsingum sem þú getur komið í rammann því betra. AMD 6400 væri ekki eins gott og AMD 6400 tvíkjarna 2.4Ghz 2MB 65mm OEM. Það fylgir því aukavinna en bara í eitt skipti.
Neðst bendirðu á að beinn samanburður á örgjörvum sérstaklega milli framleiðanda sé ekki hægt að einungis byggja á tækniupplýsingum. Algengasta viðmiðið sé afkastageta og svo vísarðu í bestu útlistunina á henni sem þú veist um.

Skjákort
Fyrra form var alltaf fínt fyrir utan að munurinn á þeim var ekki alveg nógu skýr.
Tækniupplýsingar ættu að vera nóg fyrir verðtöfluna yfir skjákort. Listalega séð ætti að vera í lagi að hafa OC,hefðbundin og skjákort með leikjum í sama hóp ef þú bara merkir skjákortin sem eru OC eða með leikjum t.d. með stjörnu
og útskýrir.

Vinnsluminni
Þú gætir haft flest minni í sömu verðtöflu , þau algengustu eru yfirleitt með kannski 2GB 800MHZ 4-4-4-12. Ef það er ekki hægt gerirðu 2GB 800MHZ *-4-4-12
Og lætur tilvísun í það á síðunni að mismunur sé í tækniupplýsingum en þar sem afköstin sem varan skilar sé svo lík að ekki sé gerður greinamunur á því í þessu tilviki.

Skjáir - eins og vesley bendir á
Ætti að vera mjög auðvelt, flestir eru byggðir uppá sama TN panel og því tækniupplýsingar svotil eins. Algengasti munurinn er sérstakur tæknibúnaður(dynamic contrast), hugbúnaður til stýringar og notagildi(fætur, snúanleiki)
Að mínu mati þjónar það flestum að nota viðmiðið tækniupplýsingar og notagildi.

Það er örugglega í fína lagi líka prufa allar hugmyndir þó svo þær falli ekki endilega inní eitthvað fast form. Stundum þarf einfaldlega prufa hlutina.
Nú ef þeir ganga illa upp eða gætu gengið betur upp þá komum við eflaust með þá punkta :)

Re: Hvað viljið þið fá á nýja verðvakt?

Sent: Fim 09. Júl 2009 00:55
af kjarribesti
Ég væri til í að hafa fartölvu harðadiska semsagt 2,5 þá bara flokkað eftir wd caviar blue og allt það kannski því margar búðir selja wd og svoleiðis ;)
allavega já takk ;) :wink:

Re: Hvað viljið þið fá á nýja verðvakt?

Sent: Fim 09. Júl 2009 00:57
af kjarribesti
svo líka endilega ddr2 vinsluminni í fartölvur :)

Re: Hvað viljið þið fá á nýja verðvakt?

Sent: Fim 09. Júl 2009 02:10
af kubbur87
væri til í að sjá móðurborð og kanski ódýrasta mögulega tölva tilbúin til notkunar (án stýrikerfis) og já, græna alltaf það ódýrasta eins og var einusinni

Re: Hvað viljið þið fá á nýja verðvakt?

Sent: Fim 09. Júl 2009 03:48
af jonsig
hvað Ram varðar . þá geturu haft algengustu tegundirnar .. eins og DDR800 dual channel .. engin alvöru nörd notar singe svosem hægt að hafa það

Móðurborð . það er alltaf einhver grunnur . 1 pci-x16 rauf ... intel/amd # eða 2x pci-x 2.0 intel/amd um að gera að henda þeim inn til að lækka verðið á þeim

skjáir , flokka eftir tommum ódýrustu sort . það er nú einu sinni kreppa

Svo hef ég ekkert á móti því að fylgjast með hvað kortið mitt "GTX295" lækkar í verði

gætir prufað að hafa basic ATX turnkassa ..

Svo sem dæmi sá ég alveg stóran verðmun á 12mm viftum um dagin .

Re: Hvað viljið þið fá á nýja verðvakt?

Sent: Mið 22. Júl 2009 21:00
af Glazier
jæja..

Re: Hvað viljið þið fá á nýja verðvakt?

Sent: Mið 22. Júl 2009 21:07
af GuðjónR
Glazier skrifaði:jæja..

ég veit ég veit....er í vinnslu :)
er búinn að vera frekar latur í tölvunni í hitabylgjunni en þetta er á leiðinni.

Re: Hvað viljið þið fá á nýja verðvakt?

Sent: Lau 01. Ágú 2009 18:35
af Glazier
ok ;)

Re: Hvað viljið þið fá á nýja verðvakt?

Sent: Sun 02. Ágú 2009 00:18
af binnip
GuðjónR skrifaði:
Glazier skrifaði:jæja..

ég veit ég veit....er í vinnslu :)
er búinn að vera frekar latur í tölvunni í hitabylgjunni en þetta er á leiðinni.


jæja..

Re: Hvað viljið þið fá á nýja verðvakt?

Sent: Sun 02. Ágú 2009 11:38
af Dagur
Mér þætti gott að sjá hvenær búðirnar uppfærðu listann hjá sér síðast.
Það væri heldur ekki leiðinlegt að sjá hvort að þeir eiga vöruna á lager.

Re: Hvað viljið þið fá á nýja verðvakt?

Sent: Sun 02. Ágú 2009 11:50
af coldcut
Dagur skrifaði:Mér þætti gott að sjá hvenær búðirnar uppfærðu listann hjá sér síðast.
Það væri heldur ekki leiðinlegt að sjá hvort að þeir eiga vöruna á lager.


það stendur nú oft á tenglinum þá ;) þ.e.a.s. hvort hún sé til á lager og ef svo er ekki, hvað sé þá löng bið.

Re: Hvað viljið þið fá á nýja verðvakt?

Sent: Sun 02. Ágú 2009 15:31
af Joi_gudni
Klám...
og bjór

Re: Hvað viljið þið fá á nýja verðvakt?

Sent: Sun 02. Ágú 2009 17:05
af Glazier
Joi_gudni skrifaði:Klám...
og bjór

ég hló..




ekki

Re: Hvað viljið þið fá á nýja verðvakt?

Sent: Sun 02. Ágú 2009 22:44
af Tölvuvinir.is
Verðlagningu á tölvuviðgerðum. Tímagjald verktæðanna.

Re: Hvað viljið þið fá á nýja verðvakt?

Sent: Sun 02. Ágú 2009 22:58
af zedro
Tölvuvinir.is skrifaði:Verðlagningu á tölvuviðgerðum. Tímagjald verktæðanna.

Það var búð að ræða það og sú tillaga var felld, alltof breytilegt á milli verkstæða.
Sum verkstæði rukka td. XXXX fyrir hverja "hafna" vinnustund á meðan aðrar rukka
kannski bara 2 tíma þegar unnir var 4 tíma í vélinni. Sumir rukka fyrir defrag o.s.frv.
Ekki hægt að segja til um gæði vinnunar.

Re: Hvað viljið þið fá á nýja verðvakt?

Sent: Mán 03. Ágú 2009 10:40
af Dagur
coldcut skrifaði:
Dagur skrifaði:Mér þætti gott að sjá hvenær búðirnar uppfærðu listann hjá sér síðast.
Það væri heldur ekki leiðinlegt að sjá hvort að þeir eiga vöruna á lager.


það stendur nú oft á tenglinum þá ;) þ.e.a.s. hvort hún sé til á lager og ef svo er ekki, hvað sé þá löng bið.


Verðið stendur líka í tenglinum. Er kannski óþarfi að birta það á vaktinni? :wink:

Ef mig vantar eitthvað í dag þá gæti ég valið á milli þeirra sem hafa hlutinn á lager og sparað mér að smella á hina tenglana.

Re: Hvað viljið þið fá á nýja verðvakt?

Sent: Mán 03. Ágú 2009 14:56
af Godriel
verður SSD í HDD flokknum? væri næs að hafa það með allavegana :D awsome diskar

Re: Hvað viljið þið fá á nýja verðvakt?

Sent: Mán 03. Ágú 2009 15:09
af coldcut
Dagur skrifaði:
coldcut skrifaði:
Dagur skrifaði:Mér þætti gott að sjá hvenær búðirnar uppfærðu listann hjá sér síðast.
Það væri heldur ekki leiðinlegt að sjá hvort að þeir eiga vöruna á lager.


það stendur nú oft á tenglinum þá ;) þ.e.a.s. hvort hún sé til á lager og ef svo er ekki, hvað sé þá löng bið.


Verðið stendur líka í tenglinum. Er kannski óþarfi að birta það á vaktinni? :wink:

Ef mig vantar eitthvað í dag þá gæti ég valið á milli þeirra sem hafa hlutinn á lager og sparað mér að smella á hina tenglana.


Góður punktur...þyrfti þá að vera eitthvað lítið merki sem sýndi hvort hún væri til á lager eða ekki því það væri svolítið flókið að fara að setja sér dálka fyrir það. En ekki segja mér að þú opnir bara vaktin.is og veljir vörurnar án þess að smella á tenglana. Með skjákort t.d. vill maður nú helst sjá framleiðendurna og svona.

Re: Hvað viljið þið fá á nýja verðvakt?

Sent: Mán 03. Ágú 2009 22:05
af Dagur
En ekki segja mér að þú opnir bara vaktin.is og veljir vörurnar án þess að smella á tenglana. Með skjákort t.d. vill maður nú helst sjá framleiðendurna og svona.


Nei alls ekki, en ef maður getur útilokað eitthvað strax þá hjálpar það.

Re: Hvað viljið þið fá á nýja verðvakt?

Sent: Þri 25. Ágú 2009 16:55
af beatmaster
Hvað er að frétta af nýju verðvaktinni?