Síða 1 af 2

Forsíðan á vaktinni

Sent: Fim 16. Okt 2008 13:08
af mind
Hvernig er það, á ekkert að fara uppfæra listann yfir verslanir á forsíðunni?

Sýnist vera lítil þörf á að hafa aðila þarna sem verðin eru ekki einusinni uppfærð hjá eins og Task, Þór og Buy.is sem hafa ekki verið uppfærð í 6mánuði +
Svo eins og hefur verið póstað hérna nokkrum sinnum áður þá er Tölvutek ekki einusinni á vaktinni, miðað við pappírsflóðið sem ég fæ í lúgunni heima frá þeim þá fer manni að gruna að stjórnendur vaktarinnar hafi eitthvað persónulegt að móti þeim . Sé ekki alveg hvernig vaktin.is getur virkað áfram næstu ár ef það er ekki gefið mál að til að hafa sem bestan samanburð þá séu allir virkir söluaðilar tölvuíhluta á íslandi á henni.

Re: Fórsíðan á vaktinni

Sent: Fim 16. Okt 2008 13:37
af benregn
Fórsíðan? allavega....

Sammála því að uppfærsla sé nauðsinleg. Taka út Task, Buy.is og Þór. Einhvern tíman fékk ég þá skýringu að Tölvutek vildi ekki vera inná vaktinni vegna tímaleysis (ekki tími hjá þeim að uppfæra verðinn).

Re: Fórsíðan á vaktinni

Sent: Fim 16. Okt 2008 14:10
af Gúrú
mind skrifaði:Svo eins og hefur verið póstað hérna nokkrum sinnum áður þá er Tölvutek ekki einusinni á vaktinni, miðað við pappírsflóðið sem ég fæ í lúgunni heima frá þeim þá fer manni að gruna að stjórnendur vaktarinnar hafi eitthvað persónulegt að móti þeim


Las hérna einhversstaðar eftir GuðjónR að mig minnir, að ástæðan sé að þeir hafi ekki við því að uppfæra eigin síðu, vegna þess hve mikið er að gera, hvað þá að uppfæra verðlista á einhverri síðu útí bæ.

Re: Fórsíðan á vaktinni

Sent: Fim 16. Okt 2008 14:13
af benregn
Síðan hjá þeim situr á hakanum þegar verið er að uppfæra verð í búðinni svo að vaktinn er einhverstað langt fyrir neðan það.

Re: Fórsíðan á vaktinni

Sent: Fim 16. Okt 2008 14:43
af Gunnar
hvernig væri þa ef vaktin.is mynd fá sér svona "verðlöggur" sem laga regluega verðin á forsíðunni?

Re: Fórsíðan á vaktinni

Sent: Fim 16. Okt 2008 14:43
af Jónas
Mér finnst mjög skrítið að Tölvutek séu að auglýsa herna á síðunni og það oft vörur og verð en geta ekki drullast til að vera á vaktinni einsog allir hinir.

Re: Fórsíðan á vaktinni

Sent: Fim 16. Okt 2008 14:52
af Gúrú
Jónas skrifaði:Mér finnst mjög skrítið að Tölvutek séu að auglýsa herna á síðunni og það oft vörur og verð en geta ekki drullast til að vera á vaktinni einsog allir hinir.


Jmm, þú vilt frekar að þessir heeeelvítis starfsmenn séu að uppfæra verð 24/7 í stað þess að þjónusta þig :roll: :twisted:

Re: Fórsíðan á vaktinni

Sent: Fim 16. Okt 2008 14:57
af Halli25
benregn skrifaði:Síðan hjá þeim situr á hakanum þegar verið er að uppfæra verð í búðinni svo að vaktinn er einhverstað langt fyrir neðan það.

Það er eldgamlar upplýsingar, mér sýnist síðan hjá þeim vera mjög vel uppfærð núna og ekki lengur þessi bjánalegi excel verðlisti.

Re: Fórsíðan á vaktinni

Sent: Fim 16. Okt 2008 15:25
af CraZy
Gunnar skrifaði:hvernig væri þa ef vaktin.is mynd fá sér svona "verðlöggur" sem laga regluega verðin á forsíðunni?

Við erum með fólk sem er í því að uppfæra verðin.
Flestir hafa bara lítinn tíma þessa dagana..
Annars þá sýnist mér Task vera uppfært að 16.10
Spurning hvað við gerum við Þór og Buy.is

Re: Fórsíðan á vaktinni

Sent: Fim 16. Okt 2008 15:56
af Gunnar
CraZy skrifaði:
Gunnar skrifaði:hvernig væri þa ef vaktin.is mynd fá sér svona "verðlöggur" sem laga regluega verðin á forsíðunni?

Við erum með fólk sem er í því að uppfæra verðin.
Flestir hafa bara lítinn tíma þessa dagana..
Annars þá sýnist mér Task vera uppfært að 16.10
Spurning hvað við gerum við Þór og Buy.is

fá fleirri sjálfboðaliða?

Re: Fórsíðan á vaktinni

Sent: Fim 16. Okt 2008 16:26
af GuðjónR
Ég uppfærði task.is og eyddi út buy.is og thor.is
Útilokað var að uppfæra thor.is þar sem þeir skammast sín greinilega fyrir okurverðin og hafa sjálfir tekið út öll verð á síðunni sinni, þið vitið hvar þið eigið að versla og hvar þig eigið EKKI að versla.
Buy.is fóru út þar sem lítið sem ekkert úrval er hjá þeim lengur.
Hugver fór út fyrir skemmstu þar sem þeir hafa hætt starfsemi.

Tölvutek.is fer inn núna allra næstu daga, ég ætla að fá hafa samaband við þá á eftir og fá þá til að senda mér minilogo á vaktina og líka útnefna contact aðila sem mun sjá um uppfærslur. Í versta falli munum við reyna að uppfæra þá. Vonandi slær þetta út allar samsæriskenningar :)

Re: Fórsíðan á vaktinni

Sent: Fim 16. Okt 2008 17:21
af benregn
faraldur skrifaði:
benregn skrifaði:Síðan hjá þeim situr á hakanum þegar verið er að uppfæra verð í búðinni svo að vaktinn er einhverstað langt fyrir neðan það.

Það er eldgamlar upplýsingar, mér sýnist síðan hjá þeim vera mjög vel uppfærð núna og ekki lengur þessi bjánalegi excel verðlisti.

Mér fannst excel verðlistinn bestur enda nota ég hann ennþá. Já, eftir að þeir fóru að nýta Easy Populate plug-in fyrir osCommerce þá er auðveldara fyrir þá að uppfæra verðin.

Re: Fórsíðan á vaktinni

Sent: Fim 16. Okt 2008 17:40
af CendenZ
það þarf bara að fá einhvern SQL kúkalabba til að mixa eitthvað xml dæmi fyrir fyrirtækin :lol:

Re: Fórsíðan á vaktinni

Sent: Fim 16. Okt 2008 17:50
af GuðjónR
CendenZ skrifaði:það þarf bara að fá einhvern SQL kúkalabba til að mixa eitthvað xml dæmi fyrir fyrirtækin :lol:

Ert þú að bjóða þig fram?

Re: Fórsíðan á vaktinni

Sent: Mán 10. Nóv 2008 11:22
af mind
[quote="GuðjónR"]Ég uppfærði task.is og eyddi út buy.is og thor.is
Útilokað var að uppfæra thor.is þar sem þeir skammast sín greinilega fyrir okurverðin og hafa sjálfir tekið út öll verð á síðunni sinni, þið vitið hvar þið eigið að versla og hvar þig eigið [b]EKKI[/b] að versla.
Buy.is fóru út þar sem lítið sem ekkert úrval er hjá þeim lengur.
Hugver fór út fyrir skemmstu þar sem þeir hafa hætt starfsemi.

Tölvutek.is fer inn núna allra næstu daga, ég ætla að fá hafa samaband við þá á eftir og fá þá til að senda mér minilogo á vaktina og líka útnefna contact aðila sem mun sjá um uppfærslur. Í versta falli munum við reyna að uppfæra þá. Vonandi slær þetta út allar samsæriskenningar :)[/quote]

Eru ekki að fara koma Jól ?

Gerðu starfsmenn tölvutek stjórnendum vaktarinnar eitthvað ?

Var þetta kannski pólítískt svar hjá GuðjónR í þeim skilningi að nóg væri að segjast ætla gera eitthvað og vona enginn taki eftir því að ekkert skeður ?

Re: Fórsíðan á vaktinni

Sent: Mán 10. Nóv 2008 11:46
af ManiO
mind skrifaði:Eru ekki að fara koma Jól ?

Gerðu starfsmenn tölvutek stjórnendum vaktarinnar eitthvað ?

Var þetta kannski pólítískt svar hjá GuðjónR í þeim skilningi að nóg væri að segjast ætla gera eitthvað og vona enginn taki eftir því að ekkert skeður ?


Gæti ekki verið að Tölvutek hafi ekki svarað. Gæti ekki verið að sá sem ætlaði að gera þetta hafi verið upptekinn við annað sem er honum/henni mikilvægara.

Slakaðu aðeins á samsæriskenningunum :lol:

Re: Fórsíðan á vaktinni

Sent: Fös 14. Nóv 2008 00:13
af Fumbler
GuðjónR skrifaði:Ég uppfærði task.is
heitir það ekki Digital Task í dag, og er ekki komið nýtt logo
Mynd

Re: Fórsíðan á vaktinni

Sent: Fös 14. Nóv 2008 10:19
af zedro
Fumbler skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Ég uppfærði task.is
heitir það ekki Digital Task í dag, og er ekki komið nýtt logo
Mynd

Hverjum er ekki saman, þetta er enn sama rusl búðin. (Bad experience :x )

Re: Fórsíðan á vaktinni

Sent: Mið 26. Nóv 2008 13:35
af Nothing
Uppfæra verslanir ekki sjálf verðin ? :?

Re: Fórsíðan á vaktinni

Sent: Mið 26. Nóv 2008 13:58
af KermitTheFrog
Ekki hér á vaktinni.. Sérð hérna að 1 TB hjá Tölvuvirkni er sagt kosta 19.860 en á síðunni þeirra kostar hann 23.860

Soldið síðan þetta var uppfært

Re: Fórsíðan á vaktinni

Sent: Mið 26. Nóv 2008 15:33
af TechHead
KermitTheFrog skrifaði:Ekki hér á vaktinni.. Sérð hérna að 1 TB hjá Tölvuvirkni er sagt kosta 19.860


Fixed ;)

Re: Fórsíðan á vaktinni

Sent: Mið 26. Nóv 2008 20:34
af Gunnar
síðan eru sum skjákort með rugl verð á sér eins og geforce 9800GTX 512

Re: Fórsíðan á vaktinni

Sent: Mið 26. Nóv 2008 21:04
af vesley
átti svo ekki tölvutek að koma í listann?

Re: Fórsíðan á vaktinni

Sent: Mið 26. Nóv 2008 21:59
af Gunnar
hvernig væri að fá nokkra sem mynd gera þetta sem sjálfboðavinnu?

Re: Fórsíðan á vaktinni

Sent: Fim 04. Des 2008 14:40
af mind
"frá GuðjónR Fim Okt 16, 2008 16:26
...Tölvutek.is fer inn núna allra næstu daga"

Dagar urðu að vikum.
Vikur urðu á mánuðum
Og bráðum verða mánuðir að árum!