Síða 1 af 1

ATH ATH SÖLUMENN

Sent: Mán 11. Ágú 2008 20:36
af Cous
ég mæli með að þið sem eruð að selja hluti er mjög sniðugt að leggja strax símanúmer svo að hægt sé að koma hlutunum strax í kring, bara smá tips fyrir þá sem eru óþolinmóðir eða tímaþröngir og viljið fá hlutina eins fljótt og hægt er.

Re: ATH ATH SÖLUMENN

Sent: Mán 11. Ágú 2008 20:39
af Joi_gudni
ég er ekki að fara að gefa upp símanúmer mitt einhverjum gæjum sem ég þekki ekki..!

Re: ATH ATH SÖLUMENN

Sent: Mán 11. Ágú 2008 20:42
af mind
Hvað með að gefa upp símanúmerið hjá ÖÐRU fólki sem er hérna og þar með koma upp gagnagrunn með símanúmerum fyrir sölufólk sem vinnur hjá tölvufyrirtækjum til að hringja í ?

Re: ATH ATH SÖLUMENN

Sent: Þri 12. Ágú 2008 10:43
af Cous
mér finnst bara vekja meira traust um varninginn ef gefið er upp númer

Re: ATH ATH SÖLUMENN

Sent: Þri 12. Ágú 2008 12:53
af KermitTheFrog
ég gef bara símanúmer til þeirra sem eru með áhuga í pm

annars væri alltaf einhver að hringja svona "prank call" í mann

Re: ATH ATH SÖLUMENN

Sent: Þri 12. Ágú 2008 15:31
af Gúrú
KermitTheFrog skrifaði:ég gef bara símanúmer til þeirra sem eru með áhuga í pm

annars væri alltaf einhver að hringja svona "prank call" í mann


Fólk á sér líf : :twisted:

Re: ATH ATH SÖLUMENN

Sent: Þri 12. Ágú 2008 15:43
af Gremor
ég hef gefið upp símanúmer í söluþræði oftar en einu sinni, og ekki fengið eitt svokallað "prank call"

Re: ATH ATH SÖLUMENN

Sent: Þri 12. Ágú 2008 17:50
af sigurbrjann
það gæti samt auðveldlega gerst

Re: ATH ATH SÖLUMENN

Sent: Sun 26. Okt 2008 16:34
af Legolas
Dísöss... rólegir á bullinu, ég gef alltaf strax upp símanúmer
og hef gert það í mörg ár bæði hér og á partalistanum,
ég hef aldrei séð eftir því, aldrei prank-call eða neitt vesen.
So chill dudes.

Re: ATH ATH SÖLUMENN

Sent: Sun 26. Okt 2008 16:44
af jonsig
Það er lítill graður dvergur að reyna að komast yfir númerið mitt , þannig - þú skilur

Re: ATH ATH SÖLUMENN

Sent: Mið 26. Nóv 2008 22:34
af CendenZ
Drottinn minn dýri, hættið að pósta á svona gamla þræði og þessi húmor er ekki að virka jonsig !

Re: ATH ATH SÖLUMENN

Sent: Mið 26. Nóv 2008 23:15
af Gunnar
CendenZ skrifaði:Drottinn minn dýri, hættið að pósta á svona gamla þræði og þessi húmor er ekki að virka jonsig !

uhhh mánuður síðan hann postaði seinast svo gj...

Re: ATH ATH SÖLUMENN

Sent: Mið 26. Nóv 2008 23:26
af CendenZ
Hah, þessi þráður birtist efst hjá mér áðan, ég skoða nefnilega bara forsíðuna

Re: ATH ATH SÖLUMENN

Sent: Mið 26. Nóv 2008 23:59
af Gets
CendenZ skrifaði:Hah, þessi þráður birtist efst hjá mér áðan, ég skoða nefnilega bara forsíðuna


Sammála CendenZ þessi þráður birtist líka á forsíðu hjá mér rétt áður en CendenZ svaraði þræðinum "furðulegt" er draugur hér á vaktinni 8-[

Re: ATH ATH SÖLUMENN

Sent: Fim 27. Nóv 2008 00:20
af ManiO
Það eru búið að vera eilítið um einvherja WoW gull sölu spammara sem svara þráðum, gæti verið að þið hafið akkúrat kíkt á meðan því var póstað og að stjórnandi hafi eytt því?