Síða 1 af 1
Auglýsinga banner.
Sent: Fim 23. Okt 2003 08:26
af Fox
Mér finnst sárt að sjá þennan auglýsingabanner þarna uppi.
Ég var að vona að þessi síða yrði ad.free, vonandi verður næsta skref ekki popup.. svona eftir að menn hafa fundið lykt af peningum.
Sent: Fim 23. Okt 2003 09:16
af kiddi
Kommon maður, þú hélst þó ekki að við gætum staðið í þessu endalaust án þess að hafa nokkrar tekjur? Auðvitað fer þetta aldrei í pop-up, og þú hlýtur að skilja vaktin.is uppfærir sig ekki sjálf.
Sent: Fim 23. Okt 2003 10:03
af halanegri
Hvað þýðir þetta "6.000+ kaupendur....enn sem komið er" ?
Re: Auglýsinga banner.
Sent: Fim 23. Okt 2003 10:44
af Voffinn
Fox skrifaði:Mér finnst sárt að sjá þennan auglýsingabanner þarna uppi.
Ég var að vona að þessi síða yrði ad.free, vonandi verður næsta skref ekki popup.. svona eftir að menn hafa fundið lykt af peningum.
Hvaða væl er þetta? Ég veit að þetta er ekki fallegt, en meðan þú ert ekki að borga fyrir að sleppa við auglýsingarnar finnst mér þú ekki hafa nein rétt til hvað vera með einhvern pirring.
Sent: Fim 23. Okt 2003 10:53
af kemiztry
Vá að menn skuli væla yfir 2-3 bannerum er hreint ótrúlegt.. þið hljótið að sleppa því að browsea vefinn útaf bannerum.
Sent: Fim 23. Okt 2003 11:34
af Daz
kemiztry skrifaði:Vá að menn skuli væla yfir 2-3 bannerum er hreint ótrúlegt.. þið hljótið að sleppa því að browsea vefinn útaf bannerum.
Ekki menn, bara einn búinn að kvarta so far...
Sent: Fim 23. Okt 2003 12:02
af Fox
kiddi skrifaði:Kommon maður, þú hélst þó ekki að við gætum staðið í þessu endalaust án þess að hafa nokkrar tekjur? Auðvitað fer þetta aldrei í pop-up, og þú hlýtur að skilja vaktin.is uppfærir sig ekki sjálf.
Tekjur... vara þær í að reka þetta á 0 grunni?
Sent: Fim 23. Okt 2003 12:59
af MezzUp
Fox skrifaði:Tekjur... vara þær í að reka þetta á 0 grunni?
ha?
Sent: Fim 23. Okt 2003 13:03
af GuðjónR
Ekki eyða tíma í að svara Fox, hann er einn mesti rugludallur sem hefur póstað hérna
Sent: Þri 25. Nóv 2003 00:11
af gumol
Findið að eina búðin sem er búin að kaupa auglýsingu frá ykkur er ekki einusinni á vaktinni