Síða 1 af 1

Leiðindi vegna breytingar á netfangi í prófíl

Sent: Lau 05. Apr 2008 16:30
af Stratoforce
Ég þarf aðeins að lýsa því yfir að ég sé ekki alveg hress með Vaktina.

Ég lenti nefnilega í því í nótt að ég var að breyta netfangi mínu og þá var ég loggaður út. Mér var var sagt að ég þyrfti að staðfesta breytinguna í tölvupósti og hef ég beðið eftir tölvupósti en ekki fengið hvorki á nýja netfanginu né því gamla og ekkert heldur í junk mail.

Ég reyndi að resenda activation email en það hefur heldur ekki hjálpað. Ég hafði samband held ég á rétta netfang vaktarinnar en engin viðbrögð fengið.

Þetta er í annað skiptið síðan ég skráði mig fyrst árið 2004 sem ég geri breytingar í prófíl og get síðan ekki skráð mig inn. Fyrra skiptið var það vegna breytinga á lykilorði. Ég þurft þá hreinlega að stofna til nýs notanda sem ég hélt frá 2005 til dagsins í dag því ég hafði ekki vit á að hafa samband með tölvupósti, vissi ekki hver hann var.

Ójá, meðan ég man, afhverju er ekki contact upplýsingar aðgengilegar á vaktinni?

Re: Leiðindi vegna breytingar á netfangi í prófíl

Sent: Lau 05. Apr 2008 17:15
af urban
ég geri ráð fyrir því að það sé usernafnið Heliowin sem að um ræðir.

ég veit ekki ástæðu fyrir því að kerfið sendir ekki póst og mun skoða það aðeins og láta yfirfara það.
allavega þá er Heliowin orðinn virkur núna (eða ætti að vera það)

ef ekki þá sendu mér einkapóst um það og við reynum að redda því.

Re: Leiðindi vegna breytingar á netfangi í prófíl

Sent: Lau 05. Apr 2008 17:19
af Stratoforce
Takk fyrir urban.