Síða 1 af 3

Nýtt spjallborð!

Sent: Fim 27. Mar 2008 23:50
af kiddi
Jæja, nú er nýja kerfið loksins komið í gang.

Ég vil biðjast velvirðingar og þolinmæði gagnvart því að hugsanlega er ekki allt í tipp-topp-standi fyrstu dagana, við þurfum nokkra daga til að fínpússa kerfið á meðan reynsla myndast á því. Sömuleiðis er ekki búið að þýða allt yfir á íslensku, en við höfum enga trú á öðru en að þið bjargið ykkur á enskunni í bili. ;-)

Ef þið verðið var við einhverja galla, eða hafið meiriháttar athugasemdir vinsamlegast beinið þeim hingað á þennan þráð.

Ef þú ert einn af þeim sem þolir ekki breytingar og vilt fá gamla kerfið í gang aftur, þá er öll óuppbyggileg gagnrýni (lesist: nöldur og kvein) vinsamlega afþökkuð.

Uppbyggilegri gagnrýni er þó fagnað :-)

PS. Þið takið kannski eftir að ég er búinn að taka rækilega til á forsíðu spjallsins og stytta lýsingar, hafið þó engar áhyggjur - engu hefur verið eytt. Margir flokkar hafa verið færðir undir aðra flokka, þið sjáið "Undirspjallborð:" í þeim tilfellum.

Re: Nýtt spjallborð!

Sent: Fös 28. Mar 2008 03:55
af gumol
Til hamingju með nýja útlitið og kerfið. Ég er reyndar einn af þeim sem vill gamla gamla gamla útlitið aftur, en þetta verður örugglega jafn flott þegar maður venst þessu :)

Re: Nýtt spjallborð!

Sent: Fös 28. Mar 2008 08:55
af GuðjónR
gumol skrifaði:Til hamingju með nýja útlitið og kerfið. Ég er reyndar einn af þeim sem vill gamla gamla gamla útlitið aftur, en þetta verður örugglega jafn flott þegar maður venst þessu :)

Takk sömuleiðis.

Flashback!
Ég var búinn að gleyma þessu :D

Re: Nýtt spjallborð!

Sent: Fös 28. Mar 2008 09:05
af Pandemic
Hvernig er það ég var Stjórnandi í seinustu útgáfu með Banning, moving, deleting etc réttindi. Nú er ég umsjónarmaður eru þetta breytingar til frambúðar eða bara eitthvað sem á eftir að laga?

Re: Nýtt spjallborð!

Sent: Fös 28. Mar 2008 09:11
af appel
OJJJ ÞETTA ER LJÓTT ÉG VIL GAMLA AFTUR!!!

:lol:

Neinei, þetta er mjög flott :) bara mjög clean og appelsínugult =D> hurray!!

Re: Nýtt spjallborð!

Sent: Fös 28. Mar 2008 09:15
af GuðjónR
Pandemic skrifaði:Hvernig er það ég var Stjórnandi í seinustu útgáfu með Banning, moving, deleting etc réttindi. Nú er ég umsjónarmaður eru þetta breytingar til frambúðar eða bara eitthvað sem á eftir að laga?

Ef ég hef skilið það rétt þá eru 4 stig stjórnunar á þessu borði vs 2 á gamla. (correct me if i'm wrong)
Við eigum bara eftir að skoða þetta vel og setja okkur inn í kerfið áður en við ákveðum framhaldið.

Smá brot úr samtali milli mín og kidda í gærkvöldi þegar spjallið var offline.

kiddi says:
það á allt eftir að verða vitlaust eftir uppfærsluna
kiddi says:
örugglega nokkrir tugir sem eiga eftir að snappa og skammast yfir breytingum og framför
kiddi says:
eins og alltaf
Бuðjóи® says:
bwahh
Бuðjóи® says:
jájá
Бuðjóи® says:
það verður bara gaman

Re: Nýtt spjallborð!

Sent: Fös 28. Mar 2008 09:37
af kiddi
Pandemic skrifaði:Hvernig er það ég var Stjórnandi í seinustu útgáfu með Banning, moving, deleting etc réttindi. Nú er ég umsjónarmaður eru þetta breytingar til frambúðar eða bara eitthvað sem á eftir að laga?


Þú ert ennþá með öll þessi réttindi, þú ert bara ekki lengur með "back-end system" réttindi, ekki frekar en allir hinir 20 sem voru Administrators í gamla spjallinu. Okkur fannst frekar óþægilegt að keyra nýja kerfið í gegn með 20 manns sem höfðu 100% aðgang að kerfinu, þar sem menn hafa mismikla eða enga reynslu á þetta nýja phpBB3, enda er það algjör óþarfi nú þegar réttindakerfið er orðið svona fullkomið, og þið getið allir gert nánast allt sem þið gerðuð áður.

En þeir sem hafa áhuga á að hafa fullan aðgang til að breyta og móta viðmóti spjallsins mega bera það upp við GuðjónR :-)

Re: Nýtt spjallborð!

Sent: Fös 28. Mar 2008 09:38
af lukkuláki
Glæsilegt mér lýst vel á þetta
Til hamingju með nýja lookið :)

Ég er einn af þeim sem er ánægður með breytingar (oftast) ekki samt mbl.is :)

En forsíðan með verðsamanburðinum er eitthvað veird looking
það þarf eitthvað að breikka og lengja þar, auglýsingarnar fyrir ofan virðast ekki passa.

Re: Nýtt spjallborð!

Sent: Fös 28. Mar 2008 09:43
af GuðjónR
lukkuláki skrifaði:Glæsilegt mér lýst vel á þetta
Til hamingju með nýja lookið :)

Ég er einn af þeim sem er ánægður með breytingar (oftast) ekki samt mbl.is :)

En forsíðan með verðsamanborðinum er eitthvað veird looking
það þarf eitthvað að breikka og lengja þar, auglýsingarnar fyrir ofan virðast ekki passa.

Já tók eftir þessu líka, þetta verður lagað.

p.s. gott að fá svona ábendingar. Það er gríðarleg vinna að converta svona vefjum og marg sem getur farið og fer úrskeiðis. Endilega benda okkur á allt sem þið finnið og þarf að lagfæra.

Re: Nýtt spjallborð!

Sent: Fös 28. Mar 2008 10:54
af Daz
Ég hef bara eitt að segja

:shock:

Re: Nýtt spjallborð!

Sent: Fös 28. Mar 2008 11:01
af hagur
Þetta er mjög flott!

Eitt samt sem ég verð að lýsa frati á, það er liturinn á þeim spjallborðum sem innihalda nýja þræði "síðan síðast". Mér finnst appelsínuguli liturinn á þeim ALLTOF daufur, væri hægt að dekkja hann eða hafa appelsínugult íkon á þeim eins og var á fyrra útliti?

BREYTING:

Hold that thought, eftir að hafa pússað gleraugun sé ég að þau ERU með appelsínugulu íkoni fremst :lol: Það var bara þetta skrítna orange gradient sem var að trufla mig .... never mind then.

Re: Nýtt spjallborð!

Sent: Fös 28. Mar 2008 11:34
af HemmiR
Til hamingju með nýja kerfið. þetta litur mjög vel út svo lengi sem það er e-ð appelsínugult i kerfinu :D

Re: Nýtt spjallborð!

Sent: Fös 28. Mar 2008 12:06
af vldimir
Æji veit ekki með þetta núna, á örugglega bara eftir að venjast þessu.

Er það ég eða bættust líka við þræðir sem sjást á hverri blaðsíðu núna? Finnst þetta agalega crowded eitthvað. - Kannski er þetta reyndar bara stillingaratriði hjá mér með hversu margir þræðir sjást á hverri bls.

Re: Nýtt spjallborð!

Sent: Fös 28. Mar 2008 13:10
af appel
hagur skrifaði:Eitt samt sem ég verð að lýsa frati á, það er liturinn á þeim spjallborðum sem innihalda nýja þræði "síðan síðast". Mér finnst appelsínuguli liturinn á þeim ALLTOF daufur, væri hægt að dekkja hann eða hafa appelsínugult íkon á þeim eins og var á fyrra útliti?


Ég er nokkuð sammála þessu.

Re: Nýtt spjallborð!

Sent: Fös 28. Mar 2008 13:25
af kiddi
appel & hagur, eruð þið að meina þetta?

Finnst ykkur þetta of dauft eða eruð þið einfaldlega ekki að sjá þetta?

Re: Nýtt spjallborð!

Sent: Fös 28. Mar 2008 13:27
af Fumbler
Sælir, Flottir að vera komnir í PHPBB3 bara cool.
Lítur vel út.

Re: Nýtt spjallborð!

Sent: Fös 28. Mar 2008 13:44
af Heliowin
Það er ágætt að uppfæra spjallborð á allavega nokkurra ára fresti. Þetta var orðið löngu tímabært.

Mér finnst barin líta vel út. Lita samsetningin er þægileg og falleg.

Re: Nýtt spjallborð!

Sent: Fös 28. Mar 2008 14:10
af GuðjónR
kiddi skrifaði:appel & hagur, eruð þið að meina þetta?

Finnst ykkur þetta of dauft eða eruð þið einfaldlega ekki að sjá þetta?


Jú þetta er flott, en stundum er þetta svona:

Re: Nýtt spjallborð!

Sent: Fös 28. Mar 2008 14:14
af Gúrú
Finnst þetta mjög flott hjá ykkur að öllu leiti nema:

:arrow: þetta suckar


naaaaaaa fooled you.

En það leiti sem mér finnst ekki eins flott og hitt er að, í 1650x1080 upplausninni minni finnst mér of langt bil fyrir nafnið og svo póstinn... var orðinn svo rosalega vanur því að hafa þetta á ákveðri spássíu.

Re: Nýtt spjallborð!

Sent: Fös 28. Mar 2008 19:05
af Dazy crazy
Ef maður fer í gerast áskrifandi þá kemur íslenskt en svo þegar maður ætlar að hætta í því er það á ensku.

Ef maður fer í pr prófíl annarra þá kemur þetta svona

Fjöldi innleggja:
74 | Search user’s posts
(0.05% of all posts / 1.90 posts per day)
Most active forum:
Til sölu / Óskast keypt
(43 innlegg / 58.11% of user’s posts)
Most active topic:
Gömul tölva í smá uppfærslu
(5 innlegg / 6.76% of user’s posts)

hluti af því á ensku.

Mér finnst heldur ekki nógu skýr mörk á milli póstanna. Semsagt ef ég skrifa eitthvað í einhvern þráð og svo einhver annar þá finnst mér ekki nógu góð skil á milli.

Ef maður er að skrifa póst og ýtir á t.d. bold merkið þá kemur bæði (b) og (/b) í einu en það finnst mér óþægilegt. en það er þó framför að það komi í textann þar sem bendillinn er en ekki bara aftast.

Í stjórnborði notanda er ýmislegt á ensku.

(Veit reyndar ekki hvort þetta á að vera á íslensku eða ensku.)

En að öðru leiti er þetta bara mjög flott og ég er ánægður með breytingarnar.

Re: Nýtt spjallborð!

Sent: Fös 28. Mar 2008 19:41
af kiddi
Eins og stendur efst á þessum þræði, þá er þýðingu ekki lokið.

Hvað varðar (b) og (/b) þá er núna ætlast til að þú highlightir þann texta sem þú vilt bolda, og þá hittir þetta beggja megin við, sem er frábær langþráður fítus.

Hvað varðar skil á milli pósta, þá er smekkur manna misjafnt, en flestum virðist þykja þetta stílhreinna og notalegra.

Re: Nýtt spjallborð!

Sent: Fös 28. Mar 2008 21:02
af Viktor
Forsíða Örgjörvar Vinnsluminni Skjákort Harðir Diskar Ýmislegt Spjallið


Mjög flott útlit en ég skil ekki afhverju "Spjall" er haft þarna lengst til hægri eins og það sé eitthvað aukaatriði :s Fyndist þægilegt að hafa það við hliðina á "Forsíða" til að maður geti smellt á það til að komast á forsíðu spjallborðsins.

Re: Nýtt spjallborð!

Sent: Fös 28. Mar 2008 21:06
af beatmaster
Til hamingju með lúkkið :) (og takk fyrir að halda gamla broskalla lúkkinu =D> )

Eini ókosturinn sem að mér finnst er að notendasvæðið við hliðina á póstinum finnst mér of stórt (þetta sem að stendur um mig, hérna vinstra meginn)þannig að ef að það væri hægt að hafa kassann mjórri væri það vel þegið af minni hálfu ;)

Re: Nýtt spjallborð!

Sent: Fös 28. Mar 2008 21:21
af SolidFeather
Úff, þetta er allt svo cluttered eitthvað. En maður hlítur að venjast því

Re: Nýtt spjallborð!

Sent: Fös 28. Mar 2008 21:42
af hallihg
Mér finnst þetta nýja spjallborð frekar nett bara, nema innleggin í þráðunum eru svolítið óaðgreinanleg. Allt grátt og rennur frekar mikið saman.

Maður venst þessu eflaust á endanum.