Síða 1 af 1

Villupúkinn

Sent: Mið 05. Mar 2008 12:39
af coldcut
þið verðið að fyrigefa smámunasemina en það er eitt sem fer verulega í taugarnar á mér hérna á forsíðunni...

Skjákort / skjáir / hljóðkort
Umræður og skjákort, skjái og hljóðkort
Stjórnandi Þráðstjórar

ætti að vera

Skjákort / skjáir / hljóðkort
Umræður um skjákort, skjái og hljóðkort
Stjórnandi Þráðstjórar

;D

Sent: Mið 05. Mar 2008 13:21
af urban
Lagaði þetta, og verð bara að segja að ég hef aldrei tekið eftir þessu áður :)

Re: Villupúkinn

Sent: Mið 05. Mar 2008 15:36
af GuðjónR
coldcut skrifaði:þið verðið að fyrigefa smámunasemina en það er eitt sem fer verulega í taugarnar á mér hérna á forsíðunni...

Skjákort / skjáir / hljóðkort
Umræður og skjákort, skjái og hljóðkort
Stjórnandi Þráðstjórar

ætti að vera

Skjákort / skjáir / hljóðkort
Umræður um skjákort, skjái og hljóðkort
Stjórnandi Þráðstjórar ;D


Flott!...
Endilega láta vita ef þið verðið varir við svona vitleysur.
Maður verður eitthvað svo samdauna þessu.

Sent: Mið 05. Mar 2008 15:47
af zedro
Hver var villan? :o

Sent: Mið 05. Mar 2008 16:08
af Dazy crazy
í staðinn fyrir þetta rauða um þarna var og.

Sent: Mið 05. Mar 2008 16:15
af Gúrú
Fyrst við ætlum að vera óþolandi:

Allt um DVD drif DVD diska DVD brennslu. Einnig CD-ROM CD og brennslu á þeim.


Finnst eins og að þetta ætti að vera
Allt um DVD drif, diska og brennslu. Einnig CD-ROM CD og brennslu á þeim.

-----------------------------------------------
Allt um yfirklukkun, fsb. volt. timing. hiti. Segðu öðrum frá þinni reynslu eða fáðu hjálp frá sérfræðingum.


Á þetta ekki að vera "yfirklukkun, fsb., volt., timing og hiti?

Sent: Mið 05. Mar 2008 16:24
af coldcut
Gúrú skrifaði:
Allt um yfirklukkun, fsb. volt. timing. hiti. Segðu öðrum frá þinni reynslu eða fáðu hjálp frá sérfræðingum.


Á þetta ekki að vera "yfirklukkun, fsb., volt., timing og hiti?


ég mundi nú hafa það: Allt um yfirklukkun! Fsb, volt, timings, hita osfrv. Segðu öðrum frá þinni reynslu eða fáðu hjálp frá sérfræðingum.

Sent: Mið 05. Mar 2008 19:01
af Gúrú
Tjah held þú hafir nú bara rétt fyrir þér í því máli,

Annars held ég að við ráðum bara full-time-job Íslenskukennara og Gúrú splæsir?

Sent: Mið 05. Mar 2008 19:25
af Dazy crazy
1000 kall á... mánuði.

Sent: Mið 05. Mar 2008 20:07
af Klemmi
dagur90 skrifaði:1000 kall á... mánuði.


Sem er ekkert langt frá því sem kennarar eru að fá í laun.

Sent: Fim 06. Mar 2008 01:26
af Birkir
Klemmi skrifaði:
dagur90 skrifaði:1000 kall á... mánuði.


Sem er ekkert langt frá því sem kennarar eru að fá í laun.


Sumir framhaldsskólakennarar eru ekki langt frá 500k á mánuði.

Sent: Fim 06. Mar 2008 10:51
af GuðjónR
Birkir skrifaði:
Klemmi skrifaði:
dagur90 skrifaði:1000 kall á... mánuði.


Sem er ekkert langt frá því sem kennarar eru að fá í laun.


Sumir framhaldsskólakennarar eru ekki langt frá 500k á mánuði.

Finnst þér það mikið?

Sent: Fim 06. Mar 2008 11:03
af Klemmi
Birkir skrifaði:
Klemmi skrifaði:
dagur90 skrifaði:1000 kall á... mánuði.


Sem er ekkert langt frá því sem kennarar eru að fá í laun.


Sumir framhaldsskólakennarar eru ekki langt frá 500k á mánuði.


Er það mikið miðað við háskólamenntaðan einstakling? Þetta eru liggur við eðlileg byrjunarlaun hjá öðrum starfsstéttum sem þarfnast háskólamenntunar, en þessir kennarar eru líklega með yfir 20 ára starfsreynslu ...
Sama gildir um grunnskólakennara, ég fer að nálgast múttu í launum þrátt fyrir að hún sé með yfir 20 ára starfsreynslu, enda launin byggð á alveg fáranlegum forsendum, það er lífsaldur en ekki starfsaldur sem skiptir þar máli, sem er ástæðan fyrir því að mikið af ungu fólki lærir kennarann fer svo að gera eitthvað annað þangað til að það er kominn á þann aldur sem að kennslan gefur sæmileg laun.