Síða 1 af 1

Benq Geisladiskar

Sent: Mið 08. Okt 2003 17:20
af 1NV4D3r
Við hjá Svari í kópavogi erum að kanna hvort allir séu sáttir við verðin á spindlunum sem við erum að panta inn þessa dagana.

Benq 50 stk 700 meg. á 2.690 krónur og
Benq 25 stk 700 meg. á 1.390 krónur

Við erum að fikra okkur áfram í verði á spindlunum og erum að kanna hvort þetta sé ekki sanngjarnt því við ætlum okkur að vera ódýrastir ef mögulegt er,, og hvar annarsstaðar er best að kanna það en á vaktinni. :D

Gefið mér svör takk takk ...
1NV4D3R

http://www.svar.is
510 6000

Sent: Mið 08. Okt 2003 17:35
af Pandemic
úúú :shock: nice price dude :D

Sent: Mið 08. Okt 2003 18:18
af Voffinn
Huuuuuu...

You can talk the talk, but can you walk the walk ?


Hvernig diskar eru þetta, sambandi við verðið ættu þeir að hætta Cheap'o'Junk ?

Flott verð, en mér finnst þetta ansi lágt, miðað við hvað ég er að kaupa mína 'uppáhaldsdiska' sem endast og faila aldrei.

Sent: Mið 08. Okt 2003 19:08
af MezzUp
flott hjá ykkur að spyrja hérna hvað okkur finnst,
en dúd! þessar sjónvarpsauglýsingar ykkar sökkuðu!!

I have spoken

Sent: Mið 08. Okt 2003 20:18
af gumol
54 kr á disk, það er flott :)

Ég man ekki eftir þessum auglýsingum (sjálfsagt ein af þeim sem segir ekkert hvaða vörur eru í boði)

Sent: Mið 08. Okt 2003 20:24
af ICM
treysti ekki svona ódýru dóti, maður endar alltaf uppi með meiri kostnað ef maður eltist við svona smápeninga.
Dæmi: Ljósaperur, geisladiskar...
þið fáið það beint aftur í hausin á að reyna að spara svona það er ekki þess virði, frekar að hafa gögnin örugg.

Sent: Mið 08. Okt 2003 22:08
af 1NV4D3r
Jú takk fyrir góð viðbrögð og við ætlum okkur að kanna fleiri vörur hér á bæ hjá Vaktinni.is . Sko það fyrsta er að við byrjuðum bara að auglýsa þessa diska í Fréttablaðinu 8. okt og svo verður önnur augl 9. okt.

BenQ er ekki eitthvað noname brand hér á klakanum því hann hefur verið til sölu hjá nokkrum söluaðilum og komið nokkuð vel út. Við erum einfaldlega að koma til móts við notendur og bjóða þeim ódýra vöru og þetta er eingöngu eitt af þeim þrepum sem við ætlum okkur að stíga.

Er ekki málið að tékka á vörunni og kvarta svo undan OF lágu verði :8)

1NV4D3R

http://www.svar.is
510 6000

Sent: Mið 08. Okt 2003 22:31
af kemiztry
Flott framtak hjá ykkur

Flott verð

Sent: Mið 08. Okt 2003 23:14
af GuðjónR
Mér sýnist þessi verð mjög sanngjörn.
Ég ætla að kíkja á ykkur við tækifæri og kaupa svona diska til að prófa ;)

Sent: Fim 09. Okt 2003 01:28
af gnarr
men! þið fáið stórnn plús frá mér fyrir að tékka á vaktinni ;) loksins veit maður um búð sem að reynir að fylgjast með því hvað viðskiptavinirnir vilja.

þetta er fínt verð hjá ykkur, kanski mar tékki á þessum diskum.

Ps. Það vantar fleiri vatnskælingar á ísland :P task.is eru einu sem að eru með það.

Sent: Fim 09. Okt 2003 12:10
af gumol
gnarr skrifaði:Ps. Það vantar fleiri vatnskælingar á ísland :P task.is eru einu sem að eru með það.

Og miðað við að ekkert hefur bæst við þar lengi er hún ekki að seljast neitt sérstaklega vel.

Sent: Fim 09. Okt 2003 13:10
af kiddi
http://www.computer.is/vorur/2205

Það eru fleiri með vatnskælingar greinilega, maður þarf bara að kafa svoldið til að finna þær :D

Ps. Svar/invader: flott hjá ykkur að koma hingað og "gagnverka" með notendum spjallsins, hugsanlegum kúnnum, keep it up =)

Sent: Fim 09. Okt 2003 13:15
af gnarr
gumol: skrítið að þú skildir segja þetta :) þeir voru einmit að bæta við 3 nýjum vatnskælingum núna áðan http://www.task.is/Scripts/prodList.asp?idCategory=21 :lol: :lol: :lol:

Sent: Fim 09. Okt 2003 13:16
af gnarr
4... afsakið ;)

Sent: Fim 09. Okt 2003 13:18
af gnarr
já.. ég vissi um þetta hjá computer.is. en er hægt að nota það fyrir p4 líka? ég held að cpu-blockinn passi bara á amd :p

Sent: Fim 09. Okt 2003 17:45
af Fumbler
Gott framtak.
Samkvæmt minni litlu könnun þá er þetta besta verðið á Cdr diskum á klakanum í dag.

Gott framtak

Sent: Fös 10. Okt 2003 09:46
af 1NV4D3r
Jæja gott fólk.

Takk fyrir þráðinn og við erum mjög ánægðir með árangurinn. Ekki má svo gleyma að Svar hefur hér með brotið ísinn á verði á Spindlum hér á Íslandi og við munum gera okkar bezta í að vera með ódýrustu diskana.

Takk fyrir mig í bili. "Lifið heil"

1NV4D3r

510 6000
http://www.svar.is