Síða 1 af 1

Verðvaktin

Sent: Mið 16. Jan 2008 13:40
af coldone
Sá að Tölvuvirkni var að uppfæra hjá sér á verðvaktinni í dag 16 jan. Skil ekki alveg hvernig verðvaktin getur klikkað á að gefa græna ör þegar að allir örgjörvar hjá þeim hækkuðu um kr 2000? (Getur verið að E4400 hafi ekki hækkað)
Var bara að horfa á Intel.

Sent: Mið 16. Jan 2008 16:12
af GuðjónR
uhh...skil ekki alveg hvað þú ert að meina...

Sent: Mið 16. Jan 2008 16:19
af coldone
hvað er það sem þú ekki skilur. þeir hækkuðu en samt er græn ör niður einsog það hefi lækkað síðan þeir uppfærðu síðast. getur nú ekki verið skýrar en það.

Sent: Mið 16. Jan 2008 16:19
af CraZy
GuðjónR skrifaði:uhh...skil ekki alveg hvað þú ert að meina...


Hann er að meina að það komi einsog verðið hafi lækkað þegar það í raun hækkaði.

Sent: Mið 16. Jan 2008 16:30
af urban
já semsagt ekki liturinn á reitnum sjálfum heldur örin sem að á merkja verð á upp/niðurleið

ég var smá tíma að kveikja á því hvað var verið að tala um, en það þarf endilega að kíkja á þetta mál.

Sent: Mið 16. Jan 2008 17:12
af GuðjónR
Já það er smá böggur sem við þurfum að laga.
Hann lýsir sér þannig að ef verslun ætlar að hækka um 2000kr þá hækkar hún fyrst um 2500kr og lækkar svo STRAX um 500kr og fær því græna ör í stað þess að fá rauða.
Þetta ýtir bara á að við breytum kerfinu, látum það virka þannig að verðið verður að vera inni í 24 klst eða lengur til að örin verði marktæk.
Eða jafnvel að láta kerfið samþykkja breytingu nr1 á ákveðnum tíma en ekki breytingu nr2.