Síða 1 af 1

Spam.

Sent: Mið 03. Okt 2007 13:46
af CendenZ
Aldeilis úrval af nýjum innleggjum í dag.

Sent: Mið 03. Okt 2007 13:52
af gumol
Mjög auðvelt að loka á þetta.

Sent: Mið 03. Okt 2007 14:26
af kiddi
Búið að hreinsa. Guð blessi phpmyadmin.

Sent: Mið 03. Okt 2007 16:41
af emmi
gumol skrifaði:Mjög auðvelt að loka á þetta.


Já, með því að nota almennilegt spjallborð. :lol:

Sent: Mið 03. Okt 2007 20:39
af GuðjónR
emmi skrifaði:
gumol skrifaði:Mjög auðvelt að loka á þetta.

Já, með því að nota almennilegt spjallborð. :lol:

Ég er til í að kaupa almennilegt kerfi undir spjallið ef einhver treystir sér til að flytja grunninn á milli.
Þetta php drasl er galopið og handónýtt...

Sent: Mið 03. Okt 2007 21:26
af gumol
Eru ekki flest betri kerfi með eitthvað sjálfvirkt sem gerir það fyrir þig? Þá er það bara uppsetningin á kerfinu sjálfu og útlitsvinna.

Svo er phpbb 3 nátturlega að koma (það hefur reyndar verið "að koma" dáldið lengi). Við erum að nota það á tech.is (release candidate þe.). Allt orðið mun þægilegra fyrir þráðstjóra og stjórnendur. Viðvaranakerfi sem skráir áminninga frá stjórnendum, notendur geta klagað innlegg með því að ýta á einn takka, fleiri valmöguleikar þegar kemur að uppsetningu og almennri stjórnun ofl.

Sent: Mið 03. Okt 2007 22:16
af GuðjónR
gumol skrifaði:Eru ekki flest betri kerfi með eitthvað sjálfvirkt sem gerir það fyrir þig? Þá er það bara uppsetningin á kerfinu sjálfu og útlitsvinna.

Svo er phpbb 3 nátturlega að koma (það hefur reyndar verið "að koma" dáldið lengi). Við erum að nota það á tech.is (release candidate þe.). Allt orðið mun þægilegra fyrir þráðstjóra og stjórnendur. Viðvaranakerfi sem skráir áminninga frá stjórnendum, notendur geta klagað innlegg með því að ýta á einn takka, fleiri valmöguleikar þegar kemur að uppsetningu og almennri stjórnun ofl.

Já flottir fídusar, ég fæ bara nettan hroll þegar minnst er á php(eitthvað).
Það hlýtur að vera til öflugra/öruggara/stöðugra kerfi...
Í versta falli þá væri þetta php3 skárri kostur...er samt ekki hrifinn af því, þá að nýjir fídusar séu vissulega til bóta.

Sent: Mið 03. Okt 2007 22:19
af Heliowin
Ef ég væri að koma mér upp spjallvef í dag þá hefði ég valið phpBB3 þó það sé enn í rc. Núverandi spjallborð vaktarinnar er hreinlega of gamalt og það er búið að vera nýrra betra til í góðan tíma.

Sent: Mið 03. Okt 2007 22:28
af GuðjónR
Hvar er appel? getur hann ekki smíðað nýtt? :shock:

Sent: Mið 03. Okt 2007 23:25
af Haddi
GuðjónR skrifaði:Hvar er appel? getur hann ekki smíðað nýtt? :shock:

Hvaða æsingur.. þetta er fínt hérna. Þetta spam í dag kom því sá sem setti upp þessa grúppu [Vaktin.is] hefur ekki stillt réttindin þannig að hver sem er gat skrifað á hana. Þetta á ekki að endurtaka sig nema einhver breyti réttindunum aftur. Og ég hugsa, Guðjón, ef þú ert virkilega að spá í að færa í annað kerfi.. þá væri alveg jafn gott að byrja alveg frá grunni með ZERO notendur og ZERO innlegg. Svooo margir unactive notendur og eld gamlir póstar. Ég ætla ekki að vera leiðinlegur en þetta er mín skoðun. Þetta er ekki mín hlið lengur þannig að ég ætla ekki að skipta mér neitt að þessu en þetta er bara clue!

Ég vona bara að þú æðir ekki út í neitt í flýti. Auk þess er allt komið á sinn stað á nýja staðnum, aðeins eftir að færa töflurnar yfir. (sem þýðir downtime í 24 tíma +/-)

Sent: Mið 03. Okt 2007 23:32
af gumol
Það er búið að tala um þetta í amk. eitt og hálft ár, var komið langt þarsíðasta (eða þar þar síðasta?) sumar þar sem mismunandi kerfi voru skoðuð og metin en svo datt það bara einhvernvegin niður án þess að niðurstaða fengist.

Gömul innlegg eru frábær grunnur fyrir þá sem eru að leita að lausn á vandamáli. Algjörlega tilgangslaust að eyða öllu út. Notendurnir og bréfin sem þeir senda inn skipta mestu máli, kerfið sjálft skiptir minna máli nema það sé fráhrindandi fyrir notendur.

Sent: Fim 04. Okt 2007 12:55
af Pandemic
Ég á kannski sök á því að hafa breytt réttindunum, þegar ég færði hugmynda spjallið yfir á vaktina datt ekki í hug að þegar ég sameinaði þetta þa´myndu réttindin breytast :)

Kann nú alveg á phpBB2 bara einhvað hugsunarleysi.

Sent: Fim 04. Okt 2007 17:13
af GuðjónR
Pandemic skrifaði:Ég á kannski sök á því að hafa breytt réttindunum, þegar ég færði hugmynda spjallið yfir á vaktina datt ekki í hug að þegar ég sameinaði þetta þa´myndu réttindin breytast :)

Kann nú alveg á phpBB2 bara einhvað hugsunarleysi.

Engin skaði skeður :)

Sent: Fim 04. Okt 2007 18:13
af zedro
GuðjónR skrifaði:Engin skaði skeður :)

Segi það, hvað eru 150 bréf á milli vina :8)

Sent: Fim 04. Okt 2007 18:20
af GuðjónR
Zedro skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Engin skaði skeður :)

Segi það, hvað eru 150 bréf á milli vina :8)

Leiðindi...

Sent: Fim 04. Okt 2007 22:42
af gnarr
Zedro skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Engin skaði skeður :)

Segi það, hvað eru 150 bréf á milli vina :8)


150 bréf milli vina = góðir vinir?

Sent: Fim 04. Okt 2007 22:51
af GuðjónR
gnarr skrifaði:
Zedro skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Engin skaði skeður :)

Segi það, hvað eru 150 bréf á milli vina :8)


150 bréf milli vina = góðir vinir?

hehehehe....já má segja það líka...fer svoltið eftir innihaldi bréfanna...

Sent: Fim 04. Okt 2007 22:52
af Birkir
gnarr skrifaði:
Zedro skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Engin skaði skeður :)

Segi það, hvað eru 150 bréf á milli vina :8)


150 bréf milli vina = góðir vinir?


Helvíti góðir pennavinir allavega.. :wink:

Sent: Fös 05. Okt 2007 12:03
af einzi
hvort er meira pirrandi ... spam eða fólk að tala um spam?

Sent: Fös 05. Okt 2007 12:17
af GuðjónR
einzi skrifaði:hvort er meira pirrandi ... spam eða fólk að tala um spam?

Fólk sem er að tala um fólk sem er að tala um spam :roll:

Sent: Fös 05. Okt 2007 12:28
af einzi
ok ok :)