Síða 1 af 2
Engin lognmolla
Sent: Fim 20. Sep 2007 19:16
af GuðjónR
Það er óhætt að segja að það sé engin lognmolla hérna...
En svona í alvöru talað...það sem spjallborðinu vantar núna eru góðir stjórnendur.
Einhverjir sem eru ábyrgðarfullir, búnir að vera hérna lengi og vilja vaktinni sinni vel.
Skiptir þá engu hvort viðkomandi er stjórnandi á öðrum borðum eða ekki.
Það má ekki láta þetta samfélag sökkva dýpra...vaktin er á sínu sjötta aldursári og er rétt að byrja!
Einnig væri gott ef einhver php gúru væri til í að hjálpa til við að hafa spjallið "up-2-date"...
Svo og að aðstoða við flutning á nýjann server...
Ef þú hefur áhuga á einhverju ofantöldu...hafðu þá samband...
Sent: Fim 20. Sep 2007 20:49
af urban
tjahhh ég gæti alveg tekið að mér stjórnanda stöðu, tel mig nú alveg hafa þroskan í það hef nú smá "reynslu" úr svoleiðis löguðu
php gúrú er ég aftur á móti ekki því miður.
en já, ég bíð mig fram ef að einhverjir hafa áhuga á því að fá mig í þetta.
Sent: Fös 21. Sep 2007 11:01
af beatmaster
Ég get boðið mig fram sem stjórnandi/þráðstjóri
Einu fyrri stjórnarréttindi mín er að hafa verið OP á pinkulitlum DC Höbb
Ég myndi glaður gera allt í mínu valdi til að uppáhaldsvefurinn verði aftur jafn glæsilegur og hann á skilið
Sent: Fös 21. Sep 2007 11:44
af ÓmarSmith
Búið er að gera þá : Birkir - Pandemic og elv að Stjórnendum.
Veit ekki til þess að fleiri fari í hópinn að svo stöddu.
Sjáum hvað Guðjóninn segir.
Sent: Fös 21. Sep 2007 12:03
af Daz
Án þess að vilja vera mjög leiðinlegur þá átti elv nákvæmlega 2 pósta hérna á tímabilinu 2 júní til 19 sept. En hann (hann er hann ekki satt??) var nú duglegur í gamla daga að pósta.
Nei ég er ekkert að sækjast eftir stjórastöðu hérna, er alltof latur til þess.
Sent: Fös 21. Sep 2007 12:09
af urban
Gott mál, líst vel á þetta.
Sent: Fös 21. Sep 2007 12:14
af ÓmarSmith
elv hefur verið að taka við sér. Hann fylgist mikið mér hérna þó hann pósti ekki endilega mikið.
Enda er markmið Stjórnanda ekki endilega að pósta hægr vinstri.
Sent: Fös 21. Sep 2007 14:47
af CraZy
ÓmarSmith skrifaði:elv hefur verið að taka við sér. Hann fylgist mikið mér hérna þó hann pósti ekki endilega mikið.
Enda er markmið Stjórnanda ekki endilega að pósta hægr vinstri.
Einmitt
Eru krakkarnir líka ekki orðnir svo gamlir að hann hefur meiri tíma núna en áður
Sent: Fös 21. Sep 2007 14:58
af elv
tja elsti drengurinn er 8 ára, yngri 5 ára og litla prinsessan er 3 ára.
Þannig að þau eldast
sniff sniff því miður, öll kominn með gelgjuna
Sent: Fös 21. Sep 2007 14:59
af CraZy
elv skrifaði:tja elsti drengurinn er 8 ára, yngri 5 ára og litla prinsessan er 3 ára.
Þannig að þau eldast
sniff sniff því miður, öll kominn með gelgjuna
Eru strax komin 3 ár..úff hvað tíminn flýgur
Sent: Fös 21. Sep 2007 15:31
af Daz
ÓmarSmith skrifaði:elv hefur verið að taka við sér. Hann fylgist mikið mér hérna þó hann pósti ekki endilega mikið.
Enda er markmið Stjórnanda ekki endilega að pósta hægr vinstri.
Neinei, en það eina sem ég hef til að giska á hversu mikið einhver skoðar spjallborðið er hversu mikið viðkomandi skrifar (eða hversu reglulega öllu heldur).
Sent: Fös 21. Sep 2007 17:09
af GuðjónR
ÓmarSmith skrifaði:Búið er að gera þá : Birkir - Pandemic og elv að Stjórnendum..
Og
CraZy...einnig eru fleiri traustir aðilar eru til skoðunar.
Sent: Fös 21. Sep 2007 17:17
af CraZy
GuðjónR skrifaði:ÓmarSmith skrifaði:Búið er að gera þá : Birkir - Pandemic og elv að Stjórnendum..
Og
CraZy...
Sent: Sun 23. Sep 2007 22:55
af raRaRa
Ég er nú alltaf til að hjálpa, ég get einnig ábyrgst það að vera traustur aðili. Þið vitið þó amk af mér ef ykkur vantar einn.
Sent: Mán 24. Sep 2007 09:14
af ÓmarSmith
hehe
Nice try.
Þú ert með 25 pósta og notandin er aðeins of nýr hjá þér
Þeir sem eru að fá Admin núna eru með amk 2 ára " reynslu "
Sent: Mið 26. Sep 2007 12:49
af einzi
Sælir
Langar að bjóða fram þjónustu mína á mod þráðnum. Mikill áhugamaður um þau mál.
Kveðja
einzi
Sent: Mið 26. Sep 2007 13:32
af ÓmarSmith
Þú ættir að vera orðinn Þráðstjóri á MOD þráðnum
Setti Stjórnanda réttindi á þig þar. Láttu mig vita ef þau eru ekki að skila sér.
Þú mátt líka fara að klára þetta Pioneer mod þitt og sýna okkur hinum.
its been AWHILE !!
Sent: Mið 26. Sep 2007 13:37
af einzi
já ég veit
pioneer moddið hefur dregist svolítið
aðallega út af því að grundvöllurinn fyrir því hvarf þegar ég fann mér litla htpc vél í bt á skít og kanil
en takk fyrir
Sent: Mið 26. Sep 2007 14:24
af CraZy
einzi skrifaði:já ég veit
pioneer moddið hefur dregist svolítið
aðallega út af því að grundvöllurinn fyrir því hvarf þegar ég fann mér litla htpc vél í bt á skít og kanil
en takk fyrir
Endilega reyndu að klára það við tækifæri
það var gull
Sent: Mið 26. Sep 2007 14:28
af einzi
jæja .. fyrst þið biðjið svona fallega
Sent: Mið 26. Sep 2007 20:41
af zedro
Barrasta kominn fínn pakki af stjórnendum, líst mér á etta
Til þjónustu reiðubúinn ef ykkur vantar fleiri.
Kv. Z
PS. Já mar er drullu spenntur yfir þessum Pioneer kassa
Sent: Mið 26. Sep 2007 20:47
af GuðjónR
Zedro skrifaði:Barrasta kominn fínn pakki af stjórnendum, líst mér á etta
Til þjónustu reiðubúinn ef ykkur vantar fleiri.
Kv. Z
PS. Já mar er drullu spenntur yfir þessum Pioneer kassa
Ég var búinn að spá í þig í nokkurn tíma...
Velkominn í hópinn.
Sent: Mið 26. Sep 2007 22:15
af zedro
Þakka heiðurinn
Now fear my wrath mwuhahahah
Sent: Mið 26. Sep 2007 22:22
af DoRi-
myndi ég teljast sem traustur aðili?
reyndar rosalega lítið búinn að fylgjast með þessu drama drasli sem ger'ist nú fyrir stuttu, en það er vanalega útaf því að ég forðast drama
myndi glaður hjálpa til
Sent: Mið 26. Sep 2007 23:09
af ÓmarSmith
Þú ert þráðastjóri og svei mér ´þá...
ég held að það se komið meira en nóg af Stjórnendum í bili
Guðjón ræður.
Ég vil ekki skutla þessu út eins og derhúfum merktum HK