Síða 1 af 1
Hverfandi þræðir
Sent: Fim 20. Sep 2007 14:05
af elv
Það er fátt sem fer jafn mikið í tauganar á mér og að þræðir hverfa bara svo einhverjir með réttindi á þessum vef geti aðeins þurkað drulluna af bakinu.Eins og þráðurinn um "nýju" reglunar
Haddi skrifaði:16. gr.
Stjórnendur vaktarinnar hafa ekki rétt til að misnota aðstöðu sína í persónulegum atvikum.
Viti notandi til þess að stjórnandi hafi verið að misnota stöðu sína skal hann ekki hika við að
tala við yfir-stjórnanda vaktarinnar.
Haddi skrifaði:Rugl og ætti ekki að fara lengra!
Hérmeð er þessum þræði læst
Gott að hann fer eftir þessu
Guðjón, ég skil mjög vel að þú getur ekki verið með puttana í öllu hérna,
en það er sko komið að hreingerningum hérna.
Gaman að sjá hvort þessum verði eytt líka og ég bannaður fyrir að hafa smá skoðun.
Sent: Fim 20. Sep 2007 14:08
af ManiO
Reyndar var þræðinum ekki eytt, hann var bara færður á sérstakt svæði fyrir stjórnendur og mods. Enda var ýmislegt þar á seyði sem átti heima á því tiltekna svæði.
Sent: Fim 20. Sep 2007 14:10
af elv
4x0n skrifaði:Reyndar var þræðinum ekki eytt, hann var bara færður á sérstakt svæði fyrir stjórnendur og mods. Enda var ýmislegt þar á seyði sem átti heima á því tiltekna svæði.
Kemur út á það sama fyrir okkur almúgan, ekki rétt.
Sent: Fim 20. Sep 2007 15:28
af Daz
Ég er held ég bara sammála Elv í þessu. En ég er svosem ekkert ástfangin af vaktinni eða þessu spjallborði og hef sjálfur áður stutt alla þá ritskoðun sem eigendur vefja vilja þar viðhalda. Bara gaman ef maður veit af því svona u.þ.b. hverju má búast við.
(T.d. eins og þessi tölvuvirknisþráður sem hvarf í smá tíma í gærkvöldi og er búið að breyta í núna).
Sent: Fim 20. Sep 2007 17:43
af Haddi
Þræði aflæst
Sent: Fim 20. Sep 2007 17:54
af CraZy
Haddi skrifaði:Þræði aflæst
Flottur
Sent: Fim 20. Sep 2007 17:57
af Dagur
Haddi skrifaði:Það var sameiginleg ákvörðun að eyða þræðinum. Hann var settur á lokað svæði en einhver þráðastjóri hefur verið sniðugur og sett hann út aftur.
Þeim þræði hefur nú endanlega verið eytt!
Þræði læst
Ég ætla ekki að fara að blanda mér í einhverjar deilur hérna (mér er svosem alveg sama hvað þið gerið), en svaraðu mér einu. Af hverju var ákveðið að eyða þessu út?
Sent: Fim 20. Sep 2007 18:36
af arnarj
omg, það er búið að eyða einhverjum þræði sem ég er nýbúinn að skrifa inná
Sent: Fim 20. Sep 2007 18:38
af Haddi
arnarj skrifaði:omg, það er búið að eyða einhverjum þræði sem ég er nýbúinn að skrifa inná
hvaða þráður var það, ég hef ekki eytt neinum þræði í dag..
Eyddi tölvuvirknisþræðinum í gær/nótt
Sent: Fim 20. Sep 2007 18:42
af arnarj
ég var að fá eftirfarandi póst:
halló,
Þú hefur fengið þetta bréf vegna þess að þú ert skráður á þennan þráð, "Vaktin.is" á Spjall.vaktin.is. Nýtt svar hefur borist á þennan þráð síðan þú heimsóktir spjallborðið seinast. Þú getur smellt á meðfylgjandi link til að komast beint á þráðinn:
http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?p=153098#153098
Þar fékk ég:
Spjallþráður eða innlegg sem þú leitar að er ekki til
Reyndar er þráðurinn við nánari skoðun ennþá til, ég er ekki að skilja hvað hér hefur átt sér stað
Sent: Fim 20. Sep 2007 18:44
af Haddi
Já, kannast við þetta, enn einhver villa síðan allt fór í spað hérna um daginn.
Hef smátt og smátt verið að laga kóðann, en hef ekki fundið þetta..
Allavega.. þetta er ekki algengt en ég kannast við þetta..
Lagast þegar vaktin kemst á nýjann vefþjón..
Re: Hverfandi þræðir
Sent: Fim 20. Sep 2007 19:20
af GuðjónR
elv skrifaði:Það er fátt sem fer jafn mikið í tauganar á mér og að þræðir hverfa bara...
Sammála...ég var ekkert smá svekktur þegar 95% af öllum póstum koníaksstofunnar hurfu.
elv skrifaði:Guðjón, ég skil mjög vel að þú getur ekki verið með puttana í öllu hérna,
en það er sko komið að hreingerningum hérna.
Gaman að sjá hvort þessum verði eytt líka og ég bannaður fyrir að hafa smá skoðun.
Já sammála...og nei...þú verður ekki bannaður...lol
Re: Hverfandi þræðir
Sent: Fim 20. Sep 2007 19:29
af daremo
elv skrifaði:Gaman að sjá hvort þessum verði eytt líka og ég bannaður fyrir að hafa smá skoðun.
Passaðu þig bara á því að skoðanir þínar samræmast skoðunum harðstjóra vaktarinnar. Annars færðu svona "spes" titil eins og ég
HULK
Sent: Fös 21. Sep 2007 00:48
af Gets
Isss titlar skipta ekki nokkru máli, ég er samt smá svekktur yfir að fá ekki titilinn OFUR græningi,
mér finnst það miklu meira töff, það er svona í anda HULK