Síða 1 af 1
Fréttir af Verðvaktinni - 8. september 2003
Sent: Mán 08. Sep 2003 23:42
af kiddi
Þetta stefnir ekki í gott! Töluverðar hækkanir á efstu örgjörvum í hverjum flokki fyrir sig, kannski má reka til gengi krónunnar gagnvart dollaranum undanfarið? Við vitum ekki. Allavega hefur verið mjög lítið um lækkanir en meira um hækkanir í nánast öllum flokkum.
Nú er sumarið búið og við sögðumst ætla að prufukeyra 2-vikna uppfærslutímann á meðan það varði, hvað finnst ykkur? Finnst ykkur þörf á að við uppfærum aftur á vikufresti eða var þetta nóg fyrir ykkur?
Allavega hvað okkur varðar þá voru breytingar það sjaldgæfar að vinnan við uppfærslurnar var ekki alltaf að borga sig.
Látið í ykkur heyra!
vaktin.is
Sent: Mán 08. Sep 2003 23:52
af gumol
Harðidiskurinn sem ég er að fara að kaupa mér var að lækka, svo það er eitthvað um lækkanir líka.
Varðandi 2ja vikna uppfærslurnar virðist þetta vera að virka vel miðað við útreikninga Fumblers.
Keep up the good work.
Sent: Þri 09. Sep 2003 16:45
af Fumbler
Það virðast sem þessa 2gja vikna uppfærslu tími er að virka betur. þá er þróuninn svona skýrari.
Þá er best að skella sér í að uppfæra síðuna mína þegar ég kem heim í kvöld..
Sent: Þri 09. Sep 2003 17:21
af halanegri
Já, kannski bíða aðeins lengur með 1 vikna uppfærslurnar.
Sent: Sun 21. Sep 2003 03:46
af gnarr
skilmálar á forsíðu skrifaði:Fyrirvari:
Eftirfarandi verð eru eingöngu lægstu verð hverrar
verslunar fyrir sig, ekki er tekið tillit til vörumerkja
og þar af leiðandi gæða þeirrar vöru sem um ræðir.
Þessi listi er eingöngu ætlaður til viðmiðunar þegar
farið er að púsla saman tölvu með hagkvæmni í huga.
Öll verð eru fengin af heimasíðum fyrirtækjanna og
er fólk vinsamlegast beðið að hafa í huga að þetta
eru ekki endilega nýjustu verðin.
Grænn reitur þýðir ódýrasta verð í viðkomandi
flokki í augnablikinu.
Við áskiljum okkur rétt til þess að hafa rangt fyrir okkur
annað slagið, því biðjum við þig, kaupandi góður að
kíkja á heimasíður fyrirtækjanna og sannreyna verðin
sem eru á þessum vef áður en þú ákveður að versla.
Upplýsingar:
Verðlistar eru uppfærðir annað hvert mánudagskvöld.
Hafirðu ábendingar um villur eða jafnvel góðar
uppástungur endilega sendu okkur tölvupóst
á
vaktin@vaktin.is.
ég vildi bara benda ykkur á að það er "annars lagið" en ekki "annað slagið"
Sent: Sun 21. Sep 2003 05:34
af halanegri
lol nei, það er "annað slagið", og ég geri sterklega ráð fyrir því að það sé verið að tala um t.d. þegar klukkan slær.
Sent: Sun 21. Sep 2003 15:21
af MezzUp
lol, "annars lagið", hvað lag er það?