Síða 1 af 1

Tiltekt á vaktin.is

Sent: Lau 02. Sep 2006 16:47
af GuðjónR
Ég var að taka til á vaktin.is, ég eyddi út bt.is og bodeind.is en þessar verslanir hafa ekki verið uppfærðar síðan í maí.
BT er varla ekki með neitt á heimasíðu sinni þannig að ég gat ekki uppfært þá, bodeind er nánast hætt með íhluti og hefur því lítið að gera hjá okkur.
Ég uppfærði thor.is og sendi mail á kisildal.is og bað þá um að uppfæra sitt, enda eru þeir með fullt af hlutum hjá sér sem eru ekki á vaktin.is
Ég raðaði svo verslunum upp á nýtt með tilliti til þess hversu samviskusamlega þær hafa uppfært, þeir samviskusömustu fremst hinir færðir aftar.