Síða 1 af 1

VANTAR 750GB DISKANA!! EKKI LENGUR!!!!!!

Sent: Þri 04. Júl 2006 13:30
af appel
Já, setjið inn flokkinn í þetta flotta umsjónarkerfi sem ég smíðaði fyrir ykkur :) Er max 500gb...orðið doldið old.

Sent: Þri 04. Júl 2006 16:28
af GuðjónR
Búinn!!! ég ætlaði löngu að vera búinn að þessu, gott að fá svona áminningu.
Kerfið sem þú smíðaðir er bara snilld! Hvenær á svo að taka það á næsta level?

Sent: Þri 04. Júl 2006 20:37
af appel
hehe...þegar þið biðjið um það og hafið hugmynd um hvað í því felst :)

Sent: Þri 04. Júl 2006 21:05
af GuðjónR
appel skrifaði:hehe...þegar þið biðjið um það og hafið hugmynd um hvað í því felst :)

uhh? ertu þá að meina hugmynd hvernig hlutirnir eiga að vera...eða hugmynd hvaða tíma það mun taka að framkvæma? :8)

Sent: Mið 05. Júl 2006 13:23
af appel
GuðjónR skrifaði:
appel skrifaði:hehe...þegar þið biðjið um það og hafið hugmynd um hvað í því felst :)

uhh? ertu þá að meina hugmynd hvernig hlutirnir eiga að vera...eða hugmynd hvaða tíma það mun taka að framkvæma? :8)


Þ.e.a.s. hvaða breytingar þið viljið :)

Sent: Mið 05. Júl 2006 14:37
af urban
GuðjónR skrifaði:Búinn!!! ég ætlaði löngu að vera búinn að þessu, gott að fá svona áminningu.
Kerfið sem þú smíðaðir er bara snilld! Hvenær á svo að taka það á næsta level?


why fixit if it ain´t broken ?

Sent: Þri 11. Júl 2006 13:27
af appel
Nýjir fídusar skaða engan.

Held það vanti einn fídus sem væri doldið góður, það er að geta smellt á verðið hjá verslunum og þá færi maður á vefsíðu fyrirtækisins og geti séð vöruna sem þeir eru að bjóða upp á.
Núna þarf maður að fara inn á vefsíðu fyrirtækisins og leita að vörunni.

Einnig væri gaman að geta smellt á vöruheiti, t.d. "250gb sata hdd", og fengið einhverjar meiri upplýsingar um hana. Hvernig verðþróunin hefur verið undanfarna mánuði í línuriti, og svona.

Sent: Þri 11. Júl 2006 14:09
af Rusty
appel skrifaði:Held það vanti einn fídus sem væri doldið góður, það er að geta smellt á verðið hjá verslunum og þá færi maður á vefsíðu fyrirtækisins og geti séð vöruna sem þeir eru að bjóða upp á.

Eða versla við kísildal.

Sent: Þri 11. Júl 2006 23:00
af wICE_man
Þetta væri silldar hugmynd, þá fær fólk að sjá strax hvort um er að ræða eitthver húmbúkk drasl eða alvöru rusl :P

Sent: Mið 12. Júl 2006 08:54
af Stutturdreki
Það er vangefin vinna að linka öll verð inn á rétta stað hjá hverri verslun fyrir sig!

Að skoða verð þróun í línuriti er cool, en spurning hvort það sé marktækt þar sem ekki er alltaf um sömu vöruna að ræða. Þyrfti helst þá að auka flokkunninna. Veit um eina síðu sem býður upp á þetta, http://www.edbpriser.dk. Mér hefur alltaf fundist þessar upp/niður örvar á vaktinni lítið marktækar.

Það sem ég myndi vilja sjá er að geta lesið rss feed með verðunum frá verslunum. Þá gætu þær verslanir sem hafa áhuga á að uppfæra sjálfar, td. att og Kísildalur, þessvegna uppfært á hverjum degi.. jafn vel oft á dag og það með lítilli fyrirhöfn.