Síða 1 af 1

Verðlækkun á örgjörvum hjá Att.is

Sent: Mið 28. Jún 2006 18:59
af audiophile
Tók eftir í dag að AMD64 örgjörvarnir hafa lækkað í verði hjá Att.is.

T.d. er AMD64 3200 kominn niður í 9.950 :P

Sent: Mið 28. Jún 2006 22:09
af Mazi!
það er næs :P eru líka 3800 örranir búnir að lækka þar?

Sent: Mið 28. Jún 2006 22:58
af Taxi
Já,það hafa verið verðlækkanir hjá Kísildal og att.is til skiptis undanfarna viku á ýmsum vörutegundum t.d. hafa sumir harðir diskar lækkað um rúm 20%
250GB kostuðu c.a. 10.000kr en kosta nú c.a. 8.000kr þrátt fyrir mikla gengishækkun síðustu 2 vikur.
Kísildalur byrjaði að lækka verð,síðan att.is og allir kaupendur græða. :D

Sent: Mið 28. Jún 2006 23:43
af audiophile
Já þetta er almennilegt.

Sent: Fim 29. Jún 2006 00:29
af mjamja
Taxi skrifaði:Já,það hafa verið verðlækkanir hjá Kísildal og att.is til skiptis undanfarna viku á ýmsum vörutegundum t.d. hafa sumir harðir diskar lækkað um rúm 20%
250GB kostuðu c.a. 10.000kr en kosta nú c.a. 8.000kr þrátt fyrir mikla gengishækkun síðustu 2 vikur.
Kísildalur byrjaði að lækka verð,síðan att.is og allir kaupendur græða. :D


það er sko ekki búin að vera nein gengishækkun

Sent: Fös 30. Jún 2006 08:47
af Taxi
mjamja skrifaði:
Taxi skrifaði:Já,það hafa verið verðlækkanir hjá Kísildal og att.is til skiptis undanfarna viku á ýmsum vörutegundum t.d. hafa sumir harðir diskar lækkað um rúm 20%
250GB kostuðu c.a. 10.000kr en kosta nú c.a. 8.000kr þrátt fyrir mikla gengishækkun síðustu 2 vikur.
Kísildalur byrjaði að lækka verð,síðan att.is og allir kaupendur græða. :D


það er sko ekki búin að vera nein gengishækkun

Á síðustu vikum hefur BNA Dollarinn hækkað úr 74,3kr í 77,7kr í innkaupum
samkvæmt Forex bank á íslandi,sem er með besta gjaldeyrisverð á Íslandi.
Þar sem að tollar hér leggjast á verð vöru og flutning munar mikið um það.

Sent: Fös 30. Jún 2006 10:41
af mjamja
Taxi skrifaði:Á síðustu vikum hefur BNA Dollarinn hækkað úr 74,3kr í 77,7kr í innkaupum
samkvæmt Forex bank á íslandi,sem er með besta gjaldeyrisverð á Íslandi.
Þar sem að tollar hér leggjast á verð vöru og flutning munar mikið um það.


Það kallast gengislækkun :wink:

Sent: Fös 30. Jún 2006 14:54
af wICE_man
Gengishækkun bandaríkjadollars gagnvart krónu eða gengislækkun krónu gagnvart bandaríkjadollar, þar er efinn :)

Gátuð þið ekki fundið eitthvað annað til að rífast um, hehe?

Við ákváðum að fara í smá leik við Att, það var þræl skemmtilegt, fór bara allt of mikill tími í að beyta verðum, það er tími sem ég vil nota til að sinna viðskiptavinunum og veita betri þjónustu.

Sent: Lau 01. Júl 2006 14:52
af audunn
ég er að pæla í að uppfæra hvað er hagstæðasti AMD 939 örrinn sem kostar ekki mikið meira en 20þ.! ?

Sent: Lau 01. Júl 2006 14:52
af BrynjarDreaMeR
3700+ hjá kisildal

Sent: Lau 01. Júl 2006 15:16
af audunn
spara 50kr ef ég kaupi hann hjá att :wink:

en munar nokkuð miklu á 3500 og 3700 ? hvar er best að skoða samanburð á netinu ?

Sent: Lau 01. Júl 2006 15:21
af BrynjarDreaMeR
addaðu mér á msn audunn brynjar2000x@hotmail.com

Sent: Lau 01. Júl 2006 17:56
af audiophile
Munurinn á 3500 og 3700 liggur í flýtiminninu eða Cache. 3500 er 2.2ghz með 640kb minni en 3700 er 2.2ghz með 1mb cache.

Hef heyrt að meira cache nýtist ákaflega vel í hlutum eins og tölvuleikjum.

Sent: Lau 01. Júl 2006 18:15
af audunn
ætti þessi ekki að vera aðeins öflugri?
http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... cts_id=217

Sent: Lau 01. Júl 2006 19:19
af BrynjarDreaMeR

Sent: Mán 03. Júl 2006 13:07
af wICE_man

Sent: Mán 03. Júl 2006 13:24
af Gestir
Whoot,

skv. þessu er 3700 single core örrinn að skora töluvert betur en TD 4400 X2 Dual Core örri.

Hvernig má það vera ??

Sent: Mán 03. Júl 2006 13:37
af audunn
ok 3700+ og 3800+ svipað í doom... en munar slatta í sumum af hinum leikjunum sem eru notaðir til að bera saman.

td hér er hann yfir X2 4800+ dualcore :shock: en kannski málið að taka 3800 hjá tölvutækni hann kostar sama og 3700
http://www23.tomshardware.com/cpu.html? ... model2=245

http://www23.tomshardware.com/cpu.html? ... model2=245

Sent: Mán 03. Júl 2006 14:06
af Stutturdreki
ÓmarSmith skrifaði:Whoot,

skv. þessu er 3700 single core örgjörvinn að skora töluvert betur en TD 4400 X2 Dual Core örri.

Hvernig má það vera ??
Af því að það 'kostar' ótrúlega marga klukkupúlsa fyrir stýrikerfið að ákveða á hvoru core það á að keyra forrit.. tala nú ekki um ef stýrikerfinu dettur allt í einu í hug að hætta að keyra forrit á core A og flytja alla vinnsluna yfir á core B.

Sent: Mán 03. Júl 2006 14:25
af Baldurmar
Stutturdreki skrifaði:
ÓmarSmith skrifaði:Whoot,

skv. þessu er 3700 single core örgjörvinn að skora töluvert betur en TD 4400 X2 Dual Core örri.

Hvernig má það vera ??
Af því að það 'kostar' ótrúlega marga klukkupúlsa fyrir stýrikerfið að ákveða á hvoru core það á að keyra forrit.. tala nú ekki um ef stýrikerfinu dettur allt í einu í hug að hætta að keyra forrit á core A og flytja alla vinnsluna yfir á core B.


Vá bögg. Er ekki hægt að fá "Core Control" eða eitthvað? Sem segði þá hvaða forrit ættu að nota hvaða core, svona þangað til að dual-core stuðningurinn er orðinn meiri?

Sent: Mán 03. Júl 2006 16:37
af Gestir
kostar klukkupúlsa eða gin í tonic..

Halló .. Ertu semsé að segja að Single Core örri sé þá í raun hraðari en Dual core örgjörvar. ?

Það eiginlega stenst ekki því hver væri þá tilgangurinn með því að framleiða þá.

þetta ´hlítur að vera eitthvað rangt.

Sent: Mán 03. Júl 2006 16:52
af Baldurmar
ÓmarSmith skrifaði:kostar klukkupúlsa eða gin í tonic..

Halló .. Ertu semsé að segja að Single Core örri sé þá í raun hraðari en Dual core örgjörvar. ?

Það eiginlega stenst ekki því hver væri þá tilgangurinn með því að framleiða þá.

þetta ´hlítur að vera eitthvað rangt.


Nei nei, þú misskilur. Hann meinti að forrit sem að ekki ennþá styðja dual-core að fullu, "ruglast" oft á því á hvorum kjarnanum þeir vinna og "eyða" þannig klukkupúlsum í það að hreinlega skipta um kjarna í miðjum klíðum. S.s í mikilli vinnlsu er munur orðinn áþreifanlegur(nokkrir rammar á sek.)

Sent: Mán 03. Júl 2006 18:28
af Stutturdreki
ÓmarSmith skrifaði:kostar klukkupúlsa eða gin í tonic..

Halló .. Ertu semsé að segja að Single Core örri sé þá í raun hraðari en Dual core örgjörvar. ?

Það eiginlega stenst ekki því hver væri þá tilgangurinn með því að framleiða þá.

þetta ´hlítur að vera eitthvað rangt.
Það fylgir ákveðið overhead því að vera með fleirri en eitt core. Td. voru minni afköst í Windows 2000 SP3 með Dual CPU en Single CPU.. Microsoft tókst hinsvegar að laga það með SP4.. er sagt. Hef heyrt um að það hafi verið svipuð vandamál með Linux upp að einhverju ákveðnu versioni.

Málið er að ef þú ert bara að keyra einn þráð, og flestir tölvuleikir í dag eru örugglega skrifaðir til að keyra í einum þræði, þá ertu bara að nota eitt Core í einu, undir leikinn. Síðan er í stýrikerfinu svokallaður Scheduler sem sér um að úthluta þráðum CPU tíma. Ef Schedulerinn er alltaf að úthluta leiknum CPU tíma á sitthvorru Coreinu þá fer ótrúlegur tími í að afrita allt skyndiminnið milli Core fyrir utan allt annað vesen sem fylgir því.

Og þá erum við bara að tala um leikja þráinn.. svo eru 100 aðrir þræðir keyrandi á sama tíma, driverar og fleirra, sem eru kannski mis góðir til að vinna með marga Core.

Oh, og svo er DualCore ekkert 'hraðari' en SingleCore. Alveg jafn margir klukkupúlsar á sekúndu (milli sambærilegra örgjörva), getur bara gert meira í hverjum klukkupúls :)

Sent: Mán 03. Júl 2006 19:11
af Gestir
Þannig að basicly þá borgar sig í raun ekkert að vera að fara í dual core örgjörva eins og staða leikja og forrita er akkúrat í dag.

En hinsvegar þegar megin þorri leikja og forrita sem og Windows Vista og fleira er komið vel á markað þá ætti maður að skipta yfir í Dual core.

Myndi halda að þetta væri nokkuð eðlilegt .

Sent: Mán 03. Júl 2006 20:47
af audiophile
Mikið rétt Ómar. Nema að þú sért að nota mjög mikið eitthvað forrit sem nýtir dual core til hins ýtrasta.

Enn sem komið er eru bara örfáir leikir sem nýta sér Dual Core af einhverju ráði, minnir að það séu um 2-4 leikir eða svo.

En framtíðin mun víst vera Dualcore eða Quad core og því ekkert að vþí að versla sér dual core, þarft bara að spyrja sjálfan þig hvort þetta sé eitthvað sem nýtist þér í raun og veru í dag eða næstu 6-12 mán.