Síða 1 af 2

Fréttir af Verðvaktinni - 28. júlí 2003

Sent: Mán 28. Júl 2003 22:45
af kiddi
Það er einhvernveginn, þegar maður fer að fylgjast eins náið með verðum eins og núna, þá virðast breytingarnar vera nánast ósýnilegar. Sem virðist einmitt vera málið núna. Það eru þó breytingar, elstu hlutirnir hækka ögn, vörurnar í miðlungs-flokknum eru farnar að halda sér aðeins í verði og það flottasta og besta er að lækka um einhverjar krónur. Eðlileg þróun svosum? Sjáum hvað gerist í haust þegar DirectX9 leikirnir koma út!

Hvað ætlið þið að gera af ykkur um Verslunarmannahelgina? Persónulega ætla ég að vera innan-megin við glugga og dást að rigningunni. Ef það rignir ekki, kíki ég til Njarðvíkur og keyri litla fjarstýrða bílinn minn! Hvað með þig?

Sent: Mán 28. Júl 2003 23:24
af Tesli
Feitt fyllerí í RVK

Sent: Mán 28. Júl 2003 23:35
af odinnn
ég ætla að saga út glugga á kassann minn :D og sofa náttúrulega (keyra fjarstýrða bílinn minn líka)

Sent: Þri 29. Júl 2003 00:10
af gumol
Odinnn maður með viti, ekkert helvítis fillerí :)

Sent: Þri 29. Júl 2003 07:57
af MezzUp
ætli ég njóti þess ekki að sofa út, vinni soldið í heimasíðu sem að ég er að gera og síðan gæti verið að maður kíkji aðeins út á laugardagskveldið, efast að ég fari eitthvað út á land

Sent: Þri 29. Júl 2003 12:17
af odinnn
ég drekki ekki af því að bjór er vondur á bragðið og nenni ekki að drekka hann bara til þess að verða fullur. ef það kemur einhvertíman út bjór sem er betri á bragðið en kók þá má kannski hugsa um að fara að drekka þetta sull.

Sent: Þri 29. Júl 2003 12:38
af Gothiatek
Ég er að spá í því að setja glugga á kassann minn, en ólíkt odinn þá verð ég ábyggilega drekkandi bjór á meðan :8)

Örvar bara sköpunargáfuna!!

Sent: Þri 29. Júl 2003 16:35
af Voffinn
odinnn skrifaði:ég drekki ekki af því að bjór er vondur á bragðið...


þú kannt ekki að meta mátt bjórsins.

Sent: Þri 29. Júl 2003 16:57
af kemiztry
Bjór er betri en kók... eini gallinn er hvað þetta er viðbjóslega dýrt :(

Sent: Þri 29. Júl 2003 17:10
af Voffinn
kemiztry skrifaði:Bjór er betri en kók... eini gallinn er hvað þetta er viðbjóslega dýrt :(


ekki úti, t.d. þér finnst bjórinn ódýr í dk, en danir flykkjast til þýskalands að kaupa bjór því þar er hann enn ódýrari.

Sent: Þri 29. Júl 2003 17:14
af MezzUp
úff, snilld á Spáni þar sem að bjórinn var ódýrari en kók, og vatnið var dýrast.... :)

Sent: Þri 29. Júl 2003 17:35
af odinnn
nei strákar mínir, bjór er verri á bragðið en nokkuð annað á jarðríki og einnig er bjór frá djöflinum kominn :twisted:

Sent: Þri 29. Júl 2003 18:03
af Voffinn
hvað ertu eiginlega gamall ?

hef aldrei hitt nein áður sem finnst bjór vondur ...

Sent: Þri 29. Júl 2003 18:07
af odinnn
18 ára

Sent: Þri 29. Júl 2003 19:21
af Tesli
odinnn þú ert of mikið nörd :lol:

Sent: Þri 29. Júl 2003 19:28
af kiddi
Ég er að verða 24 ára og er ítrekað búinn að reyna við bjórinn síðan ég man eftir mér. Þetta er hinn hreinasti viðbjóður! Nörd? :evil:

Sent: Þri 29. Júl 2003 19:50
af Voffinn
ekkert endilega, það eru nú til margar tegundir, spurning um að fara í bjórsmökkunarferð á pub ;>

Sent: Þri 29. Júl 2003 20:22
af gumol
Þú ert nú einginn sérfræðingur voffi :)

Sent: Þri 29. Júl 2003 21:23
af halanegri
Já bjór er nú meira viðbjóðurinn, allavega langar mig ekki að eyða pening í að drekka eitthvað sem er mjög vont á bragðið, fokkar upp skilningarvitunum og er óheilsusamlegt.....

Ég verð í París um verslunarmannahelgina.

Sent: Þri 29. Júl 2003 21:32
af gumol
úff, farðu bara og skoðaðu gömul hús hérna, sparaður þér ferðina :)
Ekki nema þú ætlir í EuroDisney

Sent: Þri 29. Júl 2003 21:32
af Tesli
Hei það toppar ekkert það að vera úti með félögunum að fá sér bjór og pikka upp kerlingar!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
:8)

Sent: Þri 29. Júl 2003 21:37
af gumol
en Halanegri drekkur ekki :)

odin

Sent: Þri 29. Júl 2003 21:58
af ICM
eins og odin segir bjór frá djöflinum kominn
frá :evil: Voffa


nei þetta var of gróft sorry voffi þetta átti ekki að vera illa meint :8)
þú veist ég er bara að grínast í þér þú ert eflaust ágætur

Sent: Þri 29. Júl 2003 23:12
af odinnn
ég held að ég sé ekki mikið nörd því ég æfi íþrótt af miklum dug og er meira að segja í unglingalandsliðinu. og nei ég æfi ekki bodgja (eða hvernig sem það er skrifað)

Ps það er skíði og toppið það :8)

Sent: Þri 29. Júl 2003 23:13
af Bitchunter
hvað æfiru???
en ekki segja mér að það sé skák :lol: