Síða 1 af 1

Kísildalur

Sent: Fös 24. Feb 2006 10:24
af Mibu
Já ég er soldið nýr hérna, en til að halda umræðu þá er Kísildalur nýr eða þó (nýr fyrir mér) og mér lýst mjög vel á þessa síðu og er að fara gera stór kaup hjá þeim um mánaðarmótin (ný tölva), ég vill vita hvort þeim sé alveg treystandi ? Ég hef aldrei stundað viðskipti við þá svo ég vill vita hvað aðrir hér hafa segja um þjónustu hjá þeim og lagfæringar á búnaði and whatnot.

Takk fyrir. ;)

Sent: Fös 24. Feb 2006 10:48
af gumol
Þjónustan þarna er mjög fín, búaðurinn sem maður kaupir þarf reyndar að bila svo maður geti látið reyna á hana fyrir alvöru.

Ég held þú getir alveg treyst Kísildal.

Sent: Fös 24. Feb 2006 11:19
af zedro
Topp þjónusta hingað til.
Svarar öllum fyrispurnum samdægurs.
Rukkar í hálftíma hollum fyrir viðgerðir,
þannig ef þúrt með lítið vandamál áttu
ekki eftir að fara á hausinn (ss. ef það
er ekki í ábyrgð).

Hann mætti samt verða harðari á byrgjunum
sínum, mig langar í móðuborðið mitt *Hint*
svo er ein gegt sæt stelpa að vinna hérna hjá mér hún er alveg gul falleg

PS. Hún skrifaði þessa seinustu línu :shock:
Heldur því fram að hún sé
gul falleg hvað hvað svo sem það er :roll:

Sent: Lau 25. Feb 2006 11:38
af wICE_man
Er hún ekki bara gul og falleg?

Er hún kannski með Gulu?

OMG! Kallið á lækni! Hún er með fuglaflensuna! :shock:

Ps. Zedro, móbóið þitt lagt af stað frá byrgjanum svo að það er ekkert hægt að berja meira á honum :wink:

Sent: Lau 25. Feb 2006 20:02
af Hoddz
Vona að það komi til hans ég fæ skjákortið hans gamla þegar hann fær móbóið sitt...

Sent: Fös 30. Jún 2006 22:26
af hallihg
Eftir að hafa heyrt flest gott um Kísildal ákvað ég að fara þangað í dag og kaupa mér LCD skjá, sem mér fannst á sanngjörnu verði hjá þeim. Þjónustan virtist góð og þurfti ég ekki að bíða lengi. Annað kom þó á daginn þegar ég kom heim úr vinnu, og ætlaði að tengja LCD skjáinn góða við rafmagn. Hausinn á rafmagnssnúrunni sem að fylgdi með skjánum og ætlast er til að stinga í innstungu á skjánum sjálfum, passar einfaldlega ekki í.

Þar sem ég vinn mikið um helgar sem og virka daga, er útlit fyrir það að ég þurfi núna aftur að fara á morgun í hádegismatnum mínum, og eyða honum í það að fá þessi mistök bætt. Ég efast ekki um að þeir láti mig fá réttu snúruna, en engu síður er þetta vesen fyrir mig, sérstaklega þar sem ég vinn ekki í grennd við verslunina.

S.s., mín fyrstu kynni af Kísildal, ekki eins og ég hafði vonast til.

Sent: Fös 30. Jún 2006 22:55
af Veit Ekki
Er þetta ekki frekar framleiðanda að kenna, ef þetta kom í kassa. Eða ættu þeir að skoða alla pakka sem þeir fá? Bara spyr, hef ekki hugmynd hvað er gert.

Sent: Fös 30. Jún 2006 23:39
af hallihg
Nei, ég heyrði þá talast á bakvið, þeir voru tveir, um hvort að hinn hefði átt við kassann á skjánum, og skildist þeim sem spurði að hinn aðilinn hefði nú þegar gert það. Mér þykir mjög líklegt að þeir hafi verið að ræða um þennan vanda með rafmagnssnúruna, því varla er þetta bara á mínum skjá, þetta er örugglega eitthvað sem þeir hafa þurft að laga í öllum kössunum.

Sent: Lau 01. Júl 2006 10:23
af wICE_man
Leiðinlegt að þú hafir fengið svona slæma fyrstu reynslu af okkur, við gerðum þau mistök að setja ranga snúru með skjánnum. Ef þú PM-ar á mig heimilisfangi þínu þá skal ég láta skjótast með snúruna þína fyrir þig.

Biðst innilegrar afsökunar á þessu. :(

Sent: Lau 01. Júl 2006 11:46
af hallihg
Takk fyrir skjóta lausn.