búið að breita nafninu á Linux korkinum?

Hugmyndadeild, kvartanadeild og gleðideild

Höfundur
CraZy
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1694
Skráði sig: Þri 02. Des 2003 15:44
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

búið að breita nafninu á Linux korkinum?

Pósturaf CraZy » Þri 11. Jan 2005 17:59

er búið að breita nafninu á Linux korkinum?
eða er ég bara svo heiladauður að hafa ekki tekið eftir þessu :?



Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf MezzUp » Þri 11. Jan 2005 18:03

Þú ert ekki heiladauður :)

gumol skrifaði:Ég breytti 'Linux / *NIX' flokkinum í 'GNU/Linux og *NIX' þar sem það er í raun réttara heiti (eins og fólk sem fór á rglug fyrirlestuinn veit)



Skjámynd

skipio
spjallið.is
Póstar: 405
Skráði sig: Þri 02. Sep 2003 14:52
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf skipio » Þri 11. Jan 2005 18:49

Svakalega er hann mikið nutcase hann Stallman! Ýmislegt áhugavert hjá honum auðvitað en maður sér alveg að markmiðið hjá honum er ekki að búa til gott stýrikerfi og annan hugbúnað sem allir geta notað og breytt að vild heldur er GNU í raun aðeins leið að öðru markmiði hjá honum sem er ákveðin þjóðfélagsbreyting.

Allavega er ég svakalega feginn að það er svona pragmatískur norðurlandabúi, Linus Torvalds, sem er persónugervingur Linux en ekki Richard Stallman.

Eins fannst mér fáránlegt hversu mikla aðdáun fólk í salnum hafði á Stallman. Þetta minnti mig eiginlega á flokksþing Repúblíkana í BNA sl. sumar. Langverst þegar hann sagðist myndu bjarga öllum frá drukknum nema honum vini okkar GWB og allir klöppuðu vel og innilega. Er ekki í lagi með fólk??? Nú er ég enginn aðdáandi Bush en að segja þetta er eins ósmekklegt og mögulegt er - og að klappa fyrir því er jafn ósmekklegt! Er nokkur furða að það vilji fáir taka þennan mann alvarlega þrátt fyrir að hann sé með ýmsar ágætar hugmyndir?! (Ekki um t.d. tónlistina þó, allt sem hann sagði um tónlistariðnaðinn hefur verið nefnt áður og betur af öðrum.)

Og ég er líka virkilega ósammála því (eins og margir aðrir) að GNU/Linux sé eitthvað betra en bara Linux. Auðvitað er leiðinlegt að Stallman skuli ekki fá heiðurinn af GNU-kerfinu sem hann á með réttu skilið en hinsvegar er voðalega margt sem mælir frekar með því að kalla Linux bara Linux. Ég ætla svosem ekkert að fara nánar út í það hér en bendi á ágæta grein um málið í Wikipedia.

En maður virðir það auðvitað við hann að hafa komið því þrekvirki sem GNU er, af stað! Og auðvitað Emacs ... en ég nota samt frekar Vi hans Bill Joy (reyndar Vim). :wink:
Og svo er hann auðvitað frábær söngvari. :P



Skjámynd

halanegri
vélbúnaðarpervert
Póstar: 955
Skráði sig: Mán 23. Sep 2002 21:17
Reputation: 0
Staðsetning: Err Vaff Ká
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf halanegri » Þri 11. Jan 2005 22:31

skipio skrifaði:Langverst þegar hann sagðist myndu bjarga öllum frá drukknum nema honum vini okkar GWB og allir klöppuðu vel og innilega. Er ekki í lagi með fólk??? Nú er ég enginn aðdáandi Bush en að segja þetta er eins ósmekklegt og mögulegt er - og að klappa fyrir því er jafn ósmekklegt! Er nokkur furða að það vilji fáir taka þennan mann alvarlega þrátt fyrir að hann sé með ýmsar ágætar hugmyndir?! (Ekki um t.d. tónlistina þó, allt sem hann sagði um tónlistariðnaðinn hefur verið nefnt áður og betur af öðrum.)


Þetta


var


brandari.


"open source fólkið gerir ekkert nema að stela hugmyndum annara" -- "open source fólk hugsar bara um sinn eigin rass" - IceCaveman, 2003


Birkir
Kerfisstjóri
Póstar: 1284
Skráði sig: Fim 13. Nóv 2003 15:57
Reputation: 0
Staðsetning: Utan þjónustusvæðis
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Birkir » Þri 11. Jan 2005 22:57

halanegri skrifaði:
skipio skrifaði:Langverst þegar hann sagðist myndu bjarga öllum frá drukknum nema honum vini okkar GWB og allir klöppuðu vel og innilega. Er ekki í lagi með fólk??? Nú er ég enginn aðdáandi Bush en að segja þetta er eins ósmekklegt og mögulegt er - og að klappa fyrir því er jafn ósmekklegt! Er nokkur furða að það vilji fáir taka þennan mann alvarlega þrátt fyrir að hann sé með ýmsar ágætar hugmyndir?! (Ekki um t.d. tónlistina þó, allt sem hann sagði um tónlistariðnaðinn hefur verið nefnt áður og betur af öðrum.)


Þetta


var


brandari.

Maður á samt ekki að láta þetta út úr sér á fyrirlestri. :roll:



Skjámynd

skipio
spjallið.is
Póstar: 405
Skráði sig: Þri 02. Sep 2003 14:52
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf skipio » Mið 12. Jan 2005 01:23

halanegri skrifaði:Þetta var brandari.

Og afskaplega lélegur brandari þar að auki og það ber vott um algera vöntun á dómgreind að láta þetta út úr sér opinberlega eða klappa fyrir þessu.

Það er nefnilega hægt að gera grín að fólki án þess að niðurlagið í brandaranum sé að viðkomandi eigi skilið að deyja! Maður segir allavega ekki þannig um nokkurn mann nema manni finnist hann raunverulega eiga skilið að deyja!

Myndi einhverjum detta í hug að segja þetta sama um Davíð Oddsson eða Ólaf Ragnar Grímsson í fyrirlestri? Varla, en ef einhver myndi gera það myndi fólk ekki klappa jafn innilega fyrir brandaranum eins og költ-meðlimirnir í gær. Fólk á að vera hafið yfir þetta.



Skjámynd

djjason
Ofur-Nörd
Póstar: 258
Skráði sig: Fim 06. Maí 2004 23:39
Reputation: 0
Staðsetning: Boston, MA
Staða: Ótengdur

Pósturaf djjason » Mið 12. Jan 2005 02:00

Nákvæmlega......alveg sama hversu innilega maður þolir ekki einhvern..sama hvort það er pólitíkus eða einhver annar..þá óskar maður ekki neinum einstakling dauða né segist ekki veita hjálparhönd ef svo ber upp á. Það er bara barnaskapur.


"Only wimps use tape backup: _real_ men just upload their important stuff on ftp, and let the rest of the world mirror it"
- Linus Thorvalds


gumol
Besserwisser
Póstar: 3929
Skráði sig: Sun 27. Okt 2002 00:12
Reputation: 0
Staðsetning: Kópavogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf gumol » Mið 12. Jan 2005 13:02

Ég er sammála, þetta fannst mér einum of mikið (þótt ég hafi reyndar hlegið að þessu).

En seinni fyrirlesturinn um einkaleifi á hugmyndum í hugbúnaðargeiranum var mjög athyglisverður. Er þetta virkilega rétt sem hann var að segja? :shock:




Birkir
Kerfisstjóri
Póstar: 1284
Skráði sig: Fim 13. Nóv 2003 15:57
Reputation: 0
Staðsetning: Utan þjónustusvæðis
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Birkir » Mið 12. Jan 2005 14:26

Hvaða fyrirlestur var þetta? Og er einhvers staðar hægt að nálgast hann á netinu?




gumol
Besserwisser
Póstar: 3929
Skráði sig: Sun 27. Okt 2002 00:12
Reputation: 0
Staðsetning: Kópavogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf gumol » Mið 12. Jan 2005 14:33

Það verður hægt að nálgast hann á http://www.rglug.org einhvertíman. Meira um fyrirlesturinn hér



Skjámynd

skipio
spjallið.is
Póstar: 405
Skráði sig: Þri 02. Sep 2003 14:52
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf skipio » Mið 12. Jan 2005 15:39

gumol skrifaði:En seinni fyrirlesturinn um einkaleifi á hugmyndum í hugbúnaðargeiranum var mjög athyglisverður. Er þetta virkilega rétt sem hann var að segja? :shock:

Hvað var hann að segja? Ég missti því miður af síðari fyrirlestrinum því ég var í tíma. :(
En einkaleyfin í hugbúnaðariðnaðinum eru auðvitað orðin verulega klikk! Vonandi að það takist að halda uppi mótstöðu gegn þeim í ESB.




gumol
Besserwisser
Póstar: 3929
Skráði sig: Sun 27. Okt 2002 00:12
Reputation: 0
Staðsetning: Kópavogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf gumol » Mið 12. Jan 2005 16:52

Hann var akkurat að nefna dæmi um hvað þau væru orðin verulega klikk. Þetta er samt ekki vandamál á Íslandi ennþá. Þetta ætti heldur aldrei að verða vandamál fyrir þá sem eru ekki að selja hugbúnað:
Lög um einkaleyfi skrifaði:Einkaréttur tekur ekki til:
1. athafna sem ekki tengjast atvinnustarfsemi,

Lög um einkaleyfi