Síða 1 af 1
Nýr skjár.... útsala?
Sent: Lau 11. Jan 2025 11:33
af fhrafnsson
Nú fer maður að versla sér 5080 líklega í lok mánaðar og þá er ég að skoða nýjan skjá. Er með Lenovo g27q-20 núna sem er ágætur en langar í stærri og flottari skjá, helst 4k, til þess að nýta nýja skjákortið almenniulega
Þessi hérna lítur mjög vel út og á ekki allt of svívirðilegu verði:
https://kisildalur.is/category/18/products/3592Eru aðrir skjáir sem kæmu til greina finnst ykkur og veit fólk af komandi útsölum ef maður gæti sparað sér smá aur með því að bíða aðeins?
Re: Nýr skjár.... útsala?
Sent: Lau 11. Jan 2025 12:33
af KaldiBoi
Skilst að öll 50-línan verði með 2.1 dp.
Ég myndi finna mér skjá sem styður það.
Re: Nýr skjár.... útsala?
Sent: Lau 11. Jan 2025 12:49
af fhrafnsson
Eru einhverjir skjáir hér á landi sem styðja DP 2.1 og eru freistandi? Sé enga í fljótu bragði.
Re: Nýr skjár.... útsala?
Sent: Lau 11. Jan 2025 13:13
af KaldiBoi
fhrafnsson skrifaði:Eru einhverjir skjáir hér á landi sem styðja DP 2.1 og eru freistandi? Sé enga í fljótu bragði.
Í raun mjög fáir skjáir sem gera það í dag
En framleiðendur eiga eftir að pumpa þeim út núna þegar það er not fyrir 2.1.
Versla að utan myndi ég fara í!
Re: Nýr skjár.... útsala?
Sent: Lau 11. Jan 2025 14:48
af olihar
Ég bíð spenntur eftir þessum. (Bara þessum venjulega curved, ekki þessum bendable)
https://www.lgnewsroom.com/2024/12/lg-u ... -ces-2025/
Re: Nýr skjár.... útsala?
Sent: Lau 11. Jan 2025 16:38
af GuðjónR
Af hverju viljið þið bogna skjái?
Re: Nýr skjár.... útsala?
Sent: Lau 11. Jan 2025 16:45
af svanur08
Hélt að bognir væru úreltir.
Re: Nýr skjár.... útsala?
Sent: Lau 11. Jan 2025 16:48
af olihar
Nei bognir ultrawide eru geggjaðir, þá ertu alveg jafn langt frá skjánum. (Sirka)
Afhverju eru bognir úreltir? Aldrei verið fleiri bognir en núna.
Re: Nýr skjár.... útsala?
Sent: Lau 11. Jan 2025 17:20
af svanur08
olihar skrifaði:Nei bognir ultrawide eru geggjaðir, þá ertu alveg jafn langt frá skjánum. (Sirka)
Afhverju eru bognir úreltir? Aldrei verið fleiri bognir en núna.
Allavega úrelt í TVs.
Re: Nýr skjár.... útsala?
Sent: Lau 11. Jan 2025 17:22
af olihar
svanur08 skrifaði:olihar skrifaði:Nei bognir ultrawide eru geggjaðir, þá ertu alveg jafn langt frá skjánum. (Sirka)
Afhverju eru bognir úreltir? Aldrei verið fleiri bognir en núna.
Allavega úrelt í TVs.
Já það pikkaði aldrei upp, skiljanlega, gerði ekkert gagn svona langt frá þér, bara sama og 3D (stereo gleraugu) það var of mikil fyrirhöfn og ekkert content til.
Bognir tölvuskjáir er allt annar handleikur, þeir gera gagn.
Re: Nýr skjár.... útsala?
Sent: Lau 11. Jan 2025 18:07
af svanur08
Held að OLED sé aðalmálið í dag.
Re: Nýr skjár.... útsala?
Sent: Lau 11. Jan 2025 18:13
af fhrafnsson
Mikið talað um burn in í OLED skjám og margir sem vilja frekar annað. Kannski bara hræðsluáróður en samt ansi mikið talað um þetta.
Re: Nýr skjár.... útsala?
Sent: Lau 11. Jan 2025 18:20
af svanur08
fhrafnsson skrifaði:Mikið talað um burn in í OLED skjám og margir sem vilja frekar annað. Kannski bara hræðsluáróður en samt ansi mikið talað um þetta.
Já reyndar er alveg hætta á því en það eru margir varnir í OLED tölvuskjám núna.
Re: Nýr skjár.... útsala?
Sent: Lau 11. Jan 2025 18:27
af olihar
Held að allir nýjir OLED séu hættir að lenda í þessu, enda oft 3-5 ára ábyrgð fyrir því frá framleiðanda, svo þeir hljóta að hafa trú á þessu.
Re: Nýr skjár.... útsala?
Sent: Mán 13. Jan 2025 22:42
af fhrafnsson
Sé að Elko er með útsölu á G8 Odyssey (var reyndar 30.000 dýrari þar en í Kísildal til að byrja með) og er að spá í að taka stökkið. Ekki lumar einhver á afsláttarkóða sem gæti virkað? Finnst svo pirrandi að sjá svona möguleika í checkout án þess að geta nýtt hann