Síða 1 af 1
OKUR og röng verð á heimasíðu Ihlutir.is
Sent: Þri 18. Jún 2024 12:51
af gfkhdn
Góðan daginn
Hef verslað töluvert við íhluti í gegnum tíðina og hef ég yfirleitt verið nokkuð ánægður með þá þar sem úrval af íhlutum hefur verið frekar takmarkað hér á íslandi.
En núna finnst mér þeir vera alveg komnir í ruglið þegar kemur að verðlaggningu og auglýstum verðum á þeirra heimasíðu.
Núna er ég búinn að versla við þá þrisvar síðasta mánuðinn og voru auglýst verð á heimasíðunni þeirra í öllum tilfellum mun lægri en þegar komið var í verslunina.
Nýjasta dæmið var núna áðan þar sem ég ætlaði að kaupa Arduino Nano sem er auglýst inná síðunni þeirra á ca 5.600 kr með vsk, en þegar í verslunina var komið kostaði hún rúmlega 8.100 kr og bera þeir fyrir sig að verð séu birt með fyrirvara inná síðunni en engan fyrirvara er að finna um það inná síðunni þeirra.
Þykir mér þetta mjög lélegir viðskiptaþættir og OKUR fram úr öllu hófi þar sem hægt er að panta 5 Arduino Nano á Amazon fyrir ca 8.000 kr með sendingarkostnaði og vsk og á Aliexpress fyrir ca 4.000 kr með öllum kostnaði.
Væri áhugavert að heyra ef fleiri hérna á vaktinni hafi lent í þessu hjá íhlutum.
Veit einhver um aðrar verslanir hérlendis sem selja íhluti?
Re: OKUR og röng verð á heimasíðu Ihlutir.is
Sent: Þri 18. Jún 2024 15:03
af rapport
Hef ekki aðra reynslu en góða af Íhlutum en yrði sjálfur pirraður á þessu, að vera plataður á staðinn og þurfa að borga meira.
Re: OKUR og röng verð á heimasíðu Ihlutir.is
Sent: Þri 18. Jún 2024 15:30
af Henjo
Fyrir mér þá hef ég alltaf upplifað "birt með fyrirvara" meira svona þegar það er augljós innslátarvilla, sjónvarp sem er sett inn fyrir 100kall þegar það ætti að kosta 100þús.
Ef ég ætti verslun myndi ég finna mig tilneyddan til að bara hunsast til að selja kúnnanum á lægra verðiun, biðjast afsökunar og laga á vefsíðunni.
En ef ég skil þetta rétt, ef ég ætti verslun gæti ég gert fullt af "villum" og birt bara clause um að það sé alltaf hætta á heimskulegum mistökum og platað fólk þannig til mín?
Re: OKUR og röng verð á heimasíðu Ihlutir.is
Sent: Þri 18. Jún 2024 20:15
af Graven
Come on strákar, er þetta ekki pínulítið fyrirtæki sem er rekið af örfáum einstaklingum? Það er dýrt og eða tekur langan tíma að uppfæra verð á vefsíðum stöðugt. Ættuð frekar að vera pirraðir yfir verðbólgunni sem er orsökin á þessu grunar mig.
Re: OKUR og röng verð á heimasíðu Ihlutir.is
Sent: Þri 18. Jún 2024 20:39
af jonsig
Hef verslað við mouser ,tme ,digikey og lcsc síðustu 8árin.
nota tme mest í dag þar sem ég kaupi verkfærin þar líka.
lcsc er geðveikt til að byrgja sig upp af dóti, og kaupa m.a. ódýrar mcu´s (arduino) thermal pads fyrir skjákort, leiðni krem á cpu ofl nánast ókeypis. En biðin eru 10-14dagar
Re: OKUR og röng verð á heimasíðu Ihlutir.is
Sent: Þri 18. Jún 2024 22:44
af Dropi
Hef farið í Íhluti s.l. 14 ár að versla sáralitla hluti og var alltaf næs að geta fengið akkúrat það sem mig vantaði á 200 kall. En ég lenti í því að kaupa tvö stykki sem ættu að kosta kannski 80kr að mínu mati á 3500kr. Sem betur fer var það vegna vinnu og tímaviðkvæmt þannig að ég var ánægður, en samt sem áður er þetta gaman að réttlæta ef einhver fer að spyrja mig út í þessa kvittun.
Re: OKUR og röng verð á heimasíðu Ihlutir.is
Sent: Mið 19. Jún 2024 10:32
af worghal
síðast þegar ég fór þarna inn var fyrir 6 eða 7 árum og eina sem ég tók frá þeirri reynslu var að gamli kallinn þarna vildi helst að ég hipjaði mig bara
Re: OKUR og röng verð á heimasíðu Ihlutir.is
Sent: Mið 19. Jún 2024 19:01
af rostungurinn77
worghal skrifaði:síðast þegar ég fór þarna inn var fyrir 6 eða 7 árum og eina sem ég tók frá þeirri reynslu var að gamli kallinn þarna vildi helst að ég hipjaði mig bara
Það er ekkert verra í verslunarrekstri en helvítis kúnnarnir.
Nema ef vera skyldi vörur sem seljast upp.
Re: OKUR og röng verð á heimasíðu Ihlutir.is
Sent: Mið 19. Jún 2024 19:17
af jonsig
Slaufu kallinum var bara illa við amatöra og fannst þeir ekki eiga neitt erindi til sín. Skiljanlega
Re: OKUR og röng verð á heimasíðu Ihlutir.is
Sent: Fim 20. Jún 2024 09:14
af Meso
Ekki dirfast að spyrja um straumbreyti ef þig vantar spennubreyti, nema vera til í smá pistil
Re: OKUR og röng verð á heimasíðu Ihlutir.is
Sent: Fim 20. Jún 2024 23:12
af netkaffi
Graven skrifaði:Come on strákar, er þetta ekki pínulítið fyrirtæki sem er rekið af örfáum einstaklingum? Það er dýrt og eða tekur langan tíma að uppfæra verð á vefsíðum stöðugt. Ættuð frekar að vera pirraðir yfir verðbólgunni sem er orsökin á þessu grunar mig.
Þannig séð ekki. Getur gert það sjálfkrafa og verð er uppfært í búðinni. Það er bara script. Hinsvegar eru þetta örugglega gamlir karlar eða ekki software gæjar og við eigum allir eftir að verða gamlir og getum fyrirgefið það.
Það ætti bara einhver að bjóðast til að forrita þetta fyrir gamla.
Re: OKUR og röng verð á heimasíðu Ihlutir.is
Sent: Fös 21. Jún 2024 15:54
af emil40
gfkhdn skrifaði:Góðan daginn
Hef verslað töluvert við íhluti í gegnum tíðina og hef ég yfirleitt verið nokkuð ánægður með þá þar sem úrval af íhlutum hefur verið frekar takmarkað hér á íslandi.
En núna finnst mér þeir vera alveg komnir í ruglið þegar kemur að verðlaggningu og auglýstum verðum á þeirra heimasíðu.
Núna er ég búinn að versla við þá þrisvar síðasta mánuðinn og voru auglýst verð á heimasíðunni þeirra í öllum tilfellum mun lægri en þegar komið var í verslunina.
Nýjasta dæmið var núna áðan þar sem ég ætlaði að kaupa Arduino Nano sem er auglýst inná síðunni þeirra á ca 5.600 kr með vsk, en þegar í verslunina var komið kostaði hún rúmlega 8.100 kr og bera þeir fyrir sig að verð séu birt með fyrirvara inná síðunni en engan fyrirvara er að finna um það inná síðunni þeirra.
Þykir mér þetta mjög lélegir viðskiptaþættir og OKUR fram úr öllu hófi þar sem hægt er að panta 5 Arduino Nano á Amazon fyrir ca 8.000 kr með sendingarkostnaði og vsk og á Aliexpress fyrir ca 4.000 kr með öllum kostnaði.
Væri áhugavert að heyra ef fleiri hérna á vaktinni hafi lent í þessu hjá íhlutum.
Veit einhver um aðrar verslanir hérlendis sem selja íhluti?
Auðvitað ætti verslunareigandinn að selja hlutinn á því verði sem er auglýst á síðunni. Mér finnst allt annað bara lélegt.
Re: OKUR og röng verð á heimasíðu Ihlutir.is
Sent: Lau 22. Jún 2024 15:56
af ElGorilla
Meso skrifaði:Ekki dirfast að spyrja um straumbreyti ef þig vantar spennubreyti, nema vera til í smá pistil
Hann er að gera ykkur greiða. Þið munið aldrei gleyma þessu.