Síða 1 af 1

m2 ssd skrúfur

Sent: Sun 12. Des 2021 12:51
af krani
Mig vantar skrúfu til að festa m2 ssd disk.
Hvar fær maður svona lítil skrúfu kvikindi?
Þetta fæst kannski í tölvu búðum?

Re: m2 ssd skrúfur

Sent: Sun 12. Des 2021 13:00
af Lexxinn
Nei tölvubúðir hafa ekki verið með þetta hingað til, flestir hafa verið að kaupa þetta í Flugger Stórhöfða.

Re: m2 ssd skrúfur

Sent: Sun 12. Des 2021 14:19
af kunglao
Eg hef fengið hjá þeim hjá Att.is þegar mig vantaði skrúfu fyrir Gigabyte borð. Fékk það gefins hjá þeim en var að kaupa annan íhlut á sama tíma

Re: m2 ssd skrúfur

Sent: Sun 12. Des 2021 14:59
af Hausinn
Erum með skrúfubox með ýmis litlum skrúfum hérna upp í Örtækni ef þú vilt taka þér eina skrúfu þangað.

Re: m2 ssd skrúfur

Sent: Sun 12. Des 2021 16:55
af krani
ljómandi, takk fyrir svörin.

Re: m2 ssd skrúfur

Sent: Mán 13. Des 2021 10:01
af CendenZ
Einhvern tímann 2003-4 vantaði mig einhverjar ömurlegar spes skrúfur með einhverju gúmmídrasli í Antec kassa, man ekkert fyrir hvað það var en ég þræddi allar búðirnar með eina skrúfu í leit að einni í viðbót, endaði inn á lager hjá Computer.is að fara í gegnum einhvern skrúfukassa með starfsmanni (sem ég spilaði reyndar einhverntímann CS með). Ætli það hafi ekki verið svona 4-6 skrúfukassar stútfullir af allskonar skrúfublandi

Góð saga :-k :eh en bara tékka á þeim, flest þessi fyrirtæki hljóta eiga slatta af skrúfum. ;)

Re: m2 ssd skrúfur

Sent: Lau 01. Jan 2022 21:48
af Hlynzi
screw size is 2.0 x 3mm (CM2x3-3.3). , þetta er stærðin á netinu semsagt M2 x (3 mm að lengd), svoleiðis skrúfur fást hjá Fossberg, gætir hinsvegar þurft að stytta hana sem þeir geta eflaust gert á staðnum.

Re: m2 ssd skrúfur

Sent: Sun 02. Jan 2022 02:28
af emil40
geturðu sett inn link á skrúfuna ?