Síða 1 af 1
Dauð PC
Sent: Lau 07. Ágú 2021 01:32
af Vinni
Ég er orðinn eitthvað ryðgaður í tölvubrasinu og gæti þegið smá aðstoð;
Ég er með PC turn, með Gigabyte GA-Z270X Gaming 5 móðurborði og Intel i7 7700K örgjörva.
Þessi græja dó á einhverju netvafri og svarar engu.
Ég svissaði PSU, búinn að aftengja allt frá borðinu nema PSU og það gerist ekkert þegar ég reyni að starta henni. Engin ljós, engar viftur (ef þær eru tengdar). Kippti minninu úr og öllum kortum. Tók BIOS batterí úr. Sama saga, ekkert að frétta.
Ég er uppiskroppa með hugmyndir til að prófa.
Tilgáta 1 er að móðurborðið sé ónýtt.
Tilgáta 2 er að örgjörfinn hafi farið, finnst það ólíklegt.
Er ég að missa af einhverju?
Re: Dauð PC
Sent: Lau 07. Ágú 2021 01:55
af jonfr1900
Það hefur væntanlega farið þéttir í móðurborðinu eða viðnám.
Re: Dauð PC
Sent: Lau 07. Ágú 2021 07:22
af Moldvarpan
Vinni skrifaði:Ég svissaði PSU, búinn að aftengja allt frá borðinu nema PSU og það gerist ekkert þegar ég reyni að starta henni.
Hvað þýðir svissaðir PSU, en aftengdir ekki PSU?
Re: Dauð PC
Sent: Lau 07. Ágú 2021 11:27
af Vinni
Moldvarpan skrifaði:Vinni skrifaði:Ég svissaði PSU, búinn að aftengja allt frá borðinu nema PSU og það gerist ekkert þegar ég reyni að starta henni.
Hvað þýðir svissaðir PSU, en aftengdir ekki PSU?
Setti annan aflgjafa í vélina. Sá gamli reyndist ekki vera vandamálið.
Re: Dauð PC
Sent: Lau 07. Ágú 2021 12:59
af Moldvarpan
Nú þegar ég skil þig betur
Þá jú, myndi halda móðurborðið.
Re: Dauð PC
Sent: Sun 08. Ágú 2021 01:01
af Minuz1
Rafmagnið frá veggnum, snúran, takkinn á kassanum farinn?
Annars er þetta örugglega móðurborðið, bara ath hitt áður.
Re: Dauð PC
Sent: Sun 08. Ágú 2021 23:39
af Vinni
Góðir punktar takk.
Ég skipti um móðurborðið og nú ræsir græjan viftur og blikkar ljósum og voða gaman. En ég fæ enga mynd úr skjákortinu (innbyggt) né heldur skjákorti sem ég henti í hana. Ekkert signal á display.
Ætli örrinn hafi gefið upp öndina? Furðulegt vesen þetta.
Re: Dauð PC
Sent: Mán 09. Ágú 2021 08:54
af Moldvarpan
Hafðu speakerinn tengdann á móðurborðið, hún er pottþéttt að reyna pípa og segja þér hvað er að.
Hvað tengdiru á nýja borðið? Sett af minnum? Og væntanlega fært örgjörvan yfir?
Hvaða tegund af Aflgjafa varstu með í tölvunni?
Spurning hvort það hafi komið skammhlaup eða rafmagnsflökt sem hafi kálað henni.
Re: Dauð PC
Sent: Mán 09. Ágú 2021 22:06
af Vinni
Í þessari græju var einhver 800W corsair aflgjafi. Hann starfar nú í annari vél hjá mér og virkar eðlilega. Þetta innlegg er í boði hans.
Núna er í henni einhver Sesonic Gold 700W sem var til á lagernum.
Ég tengdi bara PWR/Reset/HDD dótið úr kassanum. Setti í hana slurk af minni -4 kubbar, sem ég er síðan búinn að fækka niður í 1 í rauf 2 samkvæmt leiðbeiningum sem fylgdu borðinu sem ég keypti í hana. Og já færði örrann yfir og skrúfaði niður einhverja forláta vatnskælingu sem er á honum.
Ég þarf að tengja speakerinn og vita hvort að hann sé að flauta eitthvað. Góður punktur það, Takk!
Re: Dauð PC
Sent: Mán 09. Ágú 2021 22:32
af krukkur_dog
Resetta BIOS
Re: Dauð PC
Sent: Mán 09. Ágú 2021 22:59
af Vinni
Tók Batteríið úr í rúma mínútu, shortaði tengin inn á það just in case. Engin breyting.
Finn ekki buzzer tengi í þessum cooler master kassa. Bara HD audio og AC97. Ég held að það sé enginn buzzer í þeim?
Re: Dauð PC
Sent: Mán 09. Ágú 2021 23:46
af Vinni
Ég hef ekkert átt við intel örgjörva með skjástýringu hingað til. Getur verið að þetta borð sem ég keypti virki ekki við örgjörvann? Ef ég skil rétt er örrinn með skjástýringu, og borðið líka?!
móðurborð:
https://www.msi.com/Motherboard/Z170-A- ... cificationÖrri:
https://ark.intel.com/content/www/us/en ... 0-ghz.htmlAllar upplýsingar vel þegnar.
Re: Dauð PC
Sent: Þri 10. Ágú 2021 09:20
af gnarr
Þetta borð styður i7-7700k.
Hérna tengirðu PC-speaker:
Farðu í tölvubúð og fáðu "PC-speaker" hjá þeim:
Re: Dauð PC
Sent: Þri 10. Ágú 2021 11:46
af Jekloz
Þetta móðurborð styður þennan örgjörva en þarf líklegast BIOS uppfærslu til þess ef það er nýtt úr kassanum.
Sjá hérna:
https://www.msi.com/Motherboard/support/Z170-A-PROVersion 1.F
Description
- Supported next generation new Intel CPU.
Re: Dauð PC
Sent: Þri 10. Ágú 2021 17:19
af sludgedredd
margir dissa þessa móðurborðs speakers, en þetta er besta debugging tólið
Re: Dauð PC
Sent: Þri 10. Ágú 2021 18:57
af Vinni
Bestu þakkir fyrir ráðin.
Ef ég þarf að uppfæra Bios, þá þarf ég væntanlega örgjörva sem passar við þann Bios sem er í borðinu til að framkvæma þann verknað. Ég á engan örgjörva fyrir 1151 til að nota í það. Borðið er nýtt-gamalt. Keypti það af manni á Bland sem átti nokkur svona borð í ópnuðum umbúðum. Eitthvað gamalt project sem aldrei varið.