Síða 1 af 1

[ÓE: lánað/leigt/keypt] PSU Tester

Sent: Sun 27. Des 2020 14:28
af bjorkollur
Góðan dag einhver hér sem getur lánað mér, leigt mér eða selt mér PSU Tester.

Eða jafnvel bara prófað fyrir mig 3x PSU.

Er með sem sagt með x3 PSU og hef ekki hugmynd um ástand þeirra, væri gjarnan til í að vita ástand þeirra áður en ég set þau í notkun.

Kv Þorgeir Valur

Re: [ÓE: lánað/leigt/keypt] PSU Tester

Sent: Sun 27. Des 2020 14:32
af Njall_L
Ég á Thermaltake Dr Power II spennumæli fyrir PSU sem þú getur fengið lánaðan. Hann kveikir á og mælir allar útgangsspennur en setur ekki teljanlegt álag á neitt

Re: [ÓE: lánað/leigt/keypt] PSU Tester

Sent: Sun 27. Des 2020 16:24
af jonsig
bjorkollur skrifaði:Góðan dag einhver hér sem getur lánað mér, leigt mér eða selt mér PSU Tester.

Eða jafnvel bara prófað fyrir mig 3x PSU.

Er með sem sagt með x3 PSU og hef ekki hugmynd um ástand þeirra, væri gjarnan til í að vita ástand þeirra áður en ég set þau í notkun.

Kv Þorgeir Valur


Þessir ódýru mælar eru rétt nóg bara til að sjá að það kveikni á þeim. Getur alveg eins sett jumper milli PS_ON og GND og notað fjölsviðsmælir.
Til að prufa þá almennilega og sjá hvort þeim sé að ráði treystandi þarf að setja á þá fast álag, og nota sveiflusjá.

Re: [ÓE: lánað/leigt/keypt] PSU Tester

Sent: Mán 28. Des 2020 03:07
af bjorkollur
Njall_L skrifaði:Ég á Thermaltake Dr Power II spennumæli fyrir PSU sem þú getur fengið lánaðan. Hann kveikir á og mælir allar útgangsspennur en setur ekki teljanlegt álag á neitt


Geðveikt takk æðislega, fæ að vera í sambandi við þig strax eftir áramót.

Ertu til í að senda mér pm með upplýsingum hvernig ég get náð í þig.

Kv. Þorgeir Valur