Fer eftir því hvað hún kostaði og hvort þú sért vel tryggður eða ekki.
Ef það er innbúskaskó heimilistrygging á húsnæðinu sem þú býrð í, og hún kostaði meira en ca. 40-50þús kall, þá er líklega best að fara með hana í gegnum tryggingarnar.
Að öðrum kosti, þá er mjög líklegt að það sé best fyrir þig að spá ekki meira í þessu, og finna þér nýja tölvu
Ef tryggingarnar koma til greina, þá velurðu þér tölvuverkstæði, færð hjá þeim tjónaskýrslu (kostar ca. 2-5þús kall fyrir bilanagreiningu og vinnu), þar sem annars vegar kemur fram hver viðgerðarkostnaður væri og hins vegar hvað sambærileg tölva kostar í dag.
Síðan ferðu með tölvuna og skýrsluna til tryggingafélagsins, taktu líka nótu fyrir tjónaskýrslunni, og færð frá þeim verðmæti tölvunnar plús kostnað við skýrslu mínus sjálfsábyrgðina.