Vantar aðstoð við að setja saman tölvu á Austurlandi
Sent: Fös 29. Sep 2017 18:59
Ég keypti slatta af flottum uppfærsluhlutum handa unglingnum mínum á Reyðarfirði. MB, örgjörva, Minni, M2 Hd. Skjákort og kælingu á örrann. Ég sett þetta saman og allt for í gang, nema það kom upp No Signal melding á skjáinn. Við skiptum um skjákort og snúru, sama vandamál. Ég setti svo gamla gumsið aftur í, því ég var brunninn inni á tíma. Viti menn, sama villumelding. Þannig að það var ekkert að samsetningunni á uppfærslunni. Mér dettur helst í hug að startup HD hafi bilað, enda eldgamall. Nú er stráksi með gömlu tölvuna (sem pabbi eyðilagði, haha) sem ekki virkar og svo fullt af nýjum íhlutum í ofurturn sem ekki vannst tími til að klára. Getur einhver dregið okkur að landi