Lyklaborðið mitt í viðgerð hjá START og allt lokað
Sent: Þri 02. Maí 2017 12:30
Góðan daginn.
Ég er orðin smá hræddur um það að lyklaborðið sem ég fór með í viðgerð fyrir páska sé glatað.
Ég semsagt fór með lyklaborð í viðgerð hjá Start 12. apríl. Eftir páskana svo ákvað ég að hringja í þá og spyrjast fyrir um stöðuna á lyklaborðinu.
Þeir sögðu þá að takkinn væri eitthvað bilaður, og þeir myndu heyra í mér daginn eftir. Nema hvað... þeir hringja ekki, en það er í góðu ég skil alveg að það geta orðið tafir á svona hlutum, en seinna svo sömu viku ákvað ég nú að hringja aftur til að athuga. Þá svarar ekki.
Ég hringi svo aftur næstu viku, og enn svarar engin. Þannig ég ákvað bara að kíkja til þeirra og þegar ég mæti á staðinn, þá er bara miði í glugganum sem á stendur "Lokað í dag". Glöggir menn hafa líklegast tekið eftir því að vefsíðan þeirra er búinn að vera niðri í þó nokkurn tíma, og ekkert er hægt að nálgast neitt á vefsíðuni þeirra. En áfram með söguna... Ég bíð þangað til eftir helgi og ákvað bara að prófa hringja aftur í þá, og ekkert svar. Mæti svo aftur, og ennþá miðinn í glugganum "Lokað í dag". Núna er kominn 3ja vika, og var ég að hringja rétt í þessu og aftur fékk ég ekkert svar. Mig grunar svosem að það sé ennþá lokað hjá þeim.
Og nú spyr ég ykkur, hvað á maður að gera í þessari stöðu. Mér líst ekkert á þetta, þegar það er lokað alla daga og engin svarar simanum og vefsíðan niðri? Er þetta fyrirtæki að fara á hausinn, og ef svo er, get ég ekki fengið þá lyklaborðið mitt aftur eða hvernig virkar þetta nú allt saman???
TL:DR
Fór með lyklaborð í viðgerð hjá START, virðist sem að þeir hafi farið á hausinn. Hvað gerir maður?