Síða 1 af 1
Viðgerð á brotinni spöng á heyrnatólum?
Sent: Mið 27. Apr 2016 22:49
af kengur
Vitiði um einhvert verkstæði sem að tekur að sér að gera við brotnar spangir á heyrnatólum? Er búinn að hafa samband við hellstu tölvuverslanir landsins varðandi málið en að sjálfsögðu mæla þeir með því að ég kaupi frekar ný heyrnatól. einhverjar hugmyndir?
Re: Viðgerð á brotinni spöng á heyrnatólum?
Sent: Mið 27. Apr 2016 23:33
af Njall_L
Hvernig heyrnatól eru þetta og hversu illa eru þau brotin? Mynd af brotinu mögulega?
Re: Viðgerð á brotinni spöng á heyrnatólum?
Sent: Fim 28. Apr 2016 00:22
af zedro
Hvað kosta þessi heyrnartól? Þú ert ekki að fara greiða minna en 5000kr fyrir fiff sem endist bara x lengi.
Þannig ef þetta er ekki high end tól þá get ég ekki mælt með því.
Re: Viðgerð á brotinni spöng á heyrnatólum?
Sent: Fim 28. Apr 2016 00:23
af jonsig
Ef þetta væri grado headphones þá væri fast viðgerðargjald 10þús og 30ára varahlutaframboð XD
Ef þetta eru flestir aðrir þá ertu screwd nema þú þekkir einhvern með badass 3d prentara , annars er til fyrirtæki sem heitir plastviðgerðir minnir mig sem geta lagað allskonar plast dót , hversu fallegt það verður veit ég ekki
Re: Viðgerð á brotinni spöng á heyrnatólum?
Sent: Fim 28. Apr 2016 01:18
af DabbiGj
hvernig heyrnartól eru þetta ?
eru sárin á brotinu þannig að þetta passar saman ?
hve vel þarf þetta að líta út ?
Re: Viðgerð á brotinni spöng á heyrnatólum?
Sent: Fös 29. Apr 2016 12:48
af machinefart
best bet er að kaupa nýja spöng. Það fer eftir hvað þú ert með í höndunum hversu einfalt það er - sömuleiðis svo hversu einfalt það sé að skipta þeim út. Þú færð engann til að gera við þetta neitt meira en bara einhver styrking og lím og það mun ekki halda neitt - hvernig er þessi spöng annars? Ef hún er úr plasti þá bara ertu ekki að fara að láta gera við hana myndi ég segja.
Re: Viðgerð á brotinni spöng á heyrnatólum?
Sent: Fös 29. Apr 2016 23:34
af Xovius
Lenti einmitt í svipuðu og fiffaði þetta með lími, skrúfum og heppni. Svona þegar ég komst að því að það var ekki séns að fá viðgerð á sanngjörnu verði. Annars er alltaf spurning að reyna að finna einhvern annan með eins heyrnatól sem virka ekki og scavenge'a þau.