Síða 1 af 1

Techshop.is

Sent: Sun 17. Jan 2016 18:56
af L4Volp3
Hefur fólk einhvað verið að versla frá þeim ?
Var að pæla kaupa GTX 980 Ti HoF kortið hjá þeim en hef enga hugmynd hversu góð þjónustan þeirra er.
Yrði fínt að vita einhvað um verslunina áður en maður hendir 130k í skjákort.

Re: Techshop.is

Sent: Sun 17. Jan 2016 20:26
af joker
Keypti Asus router hjá þeim í október. Allt stóðst 100% hjá þeim varðandi verð og afhendingartíma

Re: Techshop.is

Sent: Sun 17. Jan 2016 21:57
af methylman
Hef verslað 4-5 sinnum við tecshop tekur viku að fá vöruna yfirleitt, allt hefur gengið 100% hingað til og alveg a sig leggjandi að bíða viku til þess að spara 15% af verði stundum meira.

Re: Techshop.is

Sent: Sun 17. Jan 2016 22:03
af azrael-
pantaði 3 hluti fyrir jól hjá þeim en tveir þeirra reyndust ekki vera til úti.
valdi 2 aðra hluti í staðinn og allt gekk upp. Þjónustan var fyrsta flokks og ég fékk að vita alla framvindu mála.
mun panta hjá þeim aftur.