Síða 1 af 1

Armani úr stoppar alltaf kl.19

Sent: Lau 25. Jan 2014 21:30
af jonsig
Er með armani úr sem stoppar klukkan 19.30 alltaf á sama tíma , þangað til ég stilli það aftur . Kannast einhver við þetta? Ég á 2x armani úr og þau eru alltaf vesen :(

Re: Armani úr stoppar alltaf kl.19

Sent: Lau 25. Jan 2014 21:56
af Baraoli
hef aldrei lent í þessu, á sjálfur eitt.
ef þau eru keypt hérna á íslandi mæli ég með að kíkja með þau aftur til úrasmiðsins og láta hann líta á þetta.

Re: Armani úr stoppar alltaf kl.19

Sent: Lau 25. Jan 2014 22:44
af jonsig
Kannski eftirlíkingarnar performi betur :(

Re: Armani úr stoppar alltaf kl.19

Sent: Lau 25. Jan 2014 23:06
af upg8
Armani eiga að vera framleidd af Fossil í Kína. Fossil framleiða úr í öllum gæðaflokkum víðsvegar um heimin (eiga t.d. úrafyrirætki í Sviss og danmörku) Mér skilst að Armani úrin skiptist í tvo gæðaflokka, betri úrin notist við japanska hönnun á gangverki en þau ódýrari kínverska en þú verður bara að tala við úrsmið. Heimildar mínar kunna þó að vera ónákvæmar þar sem þær koma ekki af heimasíðu Fossil eða Armani... Hafðu það í huga þegar þú ert að kaupa úr, sérstaklega "tískuúr" að þau eru ekki alltaf vönduðustu úrin...

Re: Armani úr stoppar alltaf kl.19

Sent: Lau 25. Jan 2014 23:55
af lukkuláki
Smá forvitni stoppar það bara kl 19 að kvöldi en ekki kl 07 að morgni?

Re: Armani úr stoppar alltaf kl.19

Sent: Sun 26. Jan 2014 00:09
af jonsig
Eins og það stoppi bara klukkan 730/1930 eins og skrefmótorinn í þessu lendi í einhverri fyrirstöðu í þessari stöðu tímavísis. Ekki viss hvað er í gangi það fór að haga sér svona eftir að ég skipti um batterí eftir að það hafi legið inní geymslu í 2 ár

Re: Armani úr stoppar alltaf kl.19

Sent: Sun 26. Jan 2014 02:33
af Baraoli
jonsig skrifaði:Kannski eftirlíkingarnar performi betur :(


tjaa ekki á ég eftirlíkingu, get ekki hjálpað með það.

Re: Armani úr stoppar alltaf kl.19

Sent: Sun 26. Jan 2014 09:59
af lukkuláki
jonsig skrifaði:Eins og það stoppi bara klukkan 730/1930 eins og skrefmótorinn í þessu lendi í einhverri fyrirstöðu í þessari stöðu tímavísis. Ekki viss hvað er í gangi það fór að haga sér svona eftir að ég skipti um batterí eftir að það hafi legið inní geymslu í 2 ár


Opnaðu það aftur og reyndu að sjá hvort þú hafir skemmt eitthvað þegar þú skiptir um rafhlöðuna.

Re: Armani úr stoppar alltaf kl.19

Sent: Sun 26. Jan 2014 10:16
af Garri
Hvað var klukkan þegar þú skiptir um batterí?

Nei.. bara djók.

Re: Armani úr stoppar alltaf kl.19

Sent: Sun 26. Jan 2014 12:37
af jonsig
Úrasmiður gerði það .