Síða 1 af 1

tölva biluð? kemur ekki mynd á skjá

Sent: Mán 15. Okt 2012 00:31
af J1nX
Sælir, ég er í vandræðum með borðtölvuna mína, þegar ég kveiki á henni kemur engin mynd á skjáinn, skjárinn virkar fínt samt þannig þetta er eitthvað tengt tölvunni held ég..
ég er búinn að reyna að taka alla diska úr sambandi nema ssd diskinn (stýrikerfið er á honum) taka minnin úr eitt í einu, ath allar snúrur á móðurborðinu og á skjákortinu (taka þær úr og setja aftur í)
Einhver hérna sem hefur einhverja hugmynd hvað gæti verið að?

er með 920 örgjörva, 650 corsair aflgjafa, 6950 twin frozr kort, og 4gb (2x2 1600mhz) minni
virkaði fínt þegar ég var í henni í gærkvöldi, svo ætlaði ég að kíkja í hana áðan þegar ég kom heim og þá var þetta bara svona

Re: tölva biluð? kemur ekki mynd á skjá

Sent: Mán 15. Okt 2012 10:51
af J1nX
ætli maður skelli sér ekki með hana upp í tölvutækni í bilanagreiningu á morgun ef enginn hérna getur hjálpað :)

Re: tölva biluð? kemur ekki mynd á skjá

Sent: Mán 15. Okt 2012 10:55
af upg8
Kemur ekki einusinni upp BIOS? Gæti verið stillt á vitlaust input á skjánum? Getur líka prófað að taka rafmagnið úr sambandi og setja aftur í samband.

Re: tölva biluð? kemur ekki mynd á skjá

Sent: Mán 15. Okt 2012 10:58
af Garri
Tékkaðu fyrst hvort að aflgjafinn sé virkur. Ættir að heyra í HD-unum og viftum, ef óljóst þá getur þú aftengt allt frá aflgjafa en tengt saman (lúppað) græna og svarta vírinn í MB og kveikt, þá ætti vifturnar að snúast (gúgla fyrst)

Hlustaðu hvort nokkur bíb heyrast þegar þú ræsir. Gúglaðu fjöldann og lengdina ef þú heyrir slíkt.

Ef það er skjástýring á móðurborðinu, taktu þá kortið úr og tengdu í skjástýringuna á móðurborðinu.

Ef ekkert gengur, fáðu lánað annað skjákort og settu í.

Ef enn ekkert kemur, taktu þá batteríið úr CMos-inu í smástund og settu í aftur. Prófaðu svo, bæði með skjákorti og án.

Prófaðu annan skjá.

Re: tölva biluð? kemur ekki mynd á skjá

Sent: Mán 15. Okt 2012 12:14
af J1nX
nei kemur ekki upp bios, ætlað redda mér öðru skjákorti í kvöld eftir vinnu og ath með það, prófa líka að taka batterýið úr, fattaði ekki að prófa það í gærkvöldi.. ef ykkur dettur eitthvað annað í hug, endilega láta vita svo ég geti prófað það :P

Re: tölva biluð? kemur ekki mynd á skjá

Sent: Mán 15. Okt 2012 12:17
af Garri
J1nX skrifaði:nei kemur ekki upp bios, ætlað redda mér öðru skjákorti í kvöld eftir vinnu og ath með það, prófa líka að taka batterýið úr, fattaði ekki að prófa það í gærkvöldi.. ef ykkur dettur eitthvað annað í hug, endilega láta vita svo ég geti prófað það :P

Er engin skjástýring á móðurborðinu?

Re: tölva biluð? kemur ekki mynd á skjá

Sent: Mán 15. Okt 2012 12:19
af J1nX
nei því miður
er með þetta móðurborð
http://www.gigabyte.com/products/product-page.aspx?pid=3449#sp

Re: tölva biluð? kemur ekki mynd á skjá

Sent: Mán 15. Okt 2012 12:42
af Zorky
ER með þetta sama issue er búinn að prufa power supply það virkar og skifta um skjákort og taka úr minnin það er ekki skjákort á móðurborðinu...Það skrítna er að það kveiknar á öllu en kemur eingin mynd á skjáinn grunar og skjákort raufinn sé ónýt.

Re: tölva biluð? kemur ekki mynd á skjá

Sent: Mán 15. Okt 2012 17:09
af J1nX
nákvæmlega sama hjá mér, kviknar á öllu nema kemur engin mynd á skjáinn

Re: tölva biluð? kemur ekki mynd á skjá

Sent: Fim 18. Okt 2012 19:15
af ZiRiuS
Ég er að lenda í því sama nema ég var að bæta við skjákorti hjá mér (nákvæmlega sama tegund) og þegar nýja kortið er í þá kviknar á öllu nema það kemur ekkert á skjáina en svo tek ég kortið úr og nota bara það gamla þá virkar allt...