Síða 1 af 1

Dauður skjár á Fartölvu ?

Sent: Mán 30. Júl 2012 16:36
af gullis
Er með fartölvu sem kveikir á sér að er virðist nema það skjárinn er alveg blank ? Einhver sem veit hvað gæti verið... skjákort ?

Re: Dauður skjár á Fartölvu ?

Sent: Mán 30. Júl 2012 16:54
af Yawnk
gullis skrifaði:Er með fartölvu sem kveikir á sér að er virðist nema það skjárinn er alveg blank ? Einhver sem veit hvað gæti verið... skjákort ?

Hehe, tjékkaðu hvort takkinn þarna sem gerir skjáinn svartan sé ekki fastur inni, gerðist einu sinni við mig.

Re: Dauður skjár á Fartölvu ?

Sent: Mán 30. Júl 2012 18:54
af gullis
Ég fann engan slíkan takka... þetta er btw tölvan hjá frænku minni. Var þar í heimsókn í gær og fann ekki í fljótu bragði.. þetta er hp tölva ef ég man rétt.

Re: Dauður skjár á Fartölvu ?

Sent: Mán 30. Júl 2012 19:01
af AntiTrust
Skoðaðu sjáinn VEL undir ljósi og sjáðu hvort þú sérð nokkuð útlínur af iconum og taskbar. - Ef það sést, þá er annaðhvort inverterinn farinn eða baklýsingin í skjánum. Ef það vottar ekki fyrir neinni mynd, tengdu skjáinn við utanáliggjandi skjá og sjáðu hvort þú færð upp mynd.

Ef þú færð upp mynd á utanáliggjandi skjáinn er skjárinn eða skjákapallinn bilaður/ónýtur. Ef þú færð ekki upp mynd á utanáliggjandi skjáinn er skjástýringin/móðurborðið líklega bilað. Lítið hægt að gera í slíkum aðstæðum, stundum hægt að 'baka' það í lag en ekki svo algengt að það virki.

Ertu viss um að vélin ræsi eðlilega? Heyriru Windows login hljóðið t.d. ?

Re: Dauður skjár á Fartölvu ?

Sent: Mið 01. Ágú 2012 00:31
af gullis
Nei reyndar heyri ég það ekki... En deginum áður þá var ég í tölvunni (voru að skipta um router) og þá var hún heillengi að kveikja á sér.... tölvan með ónýtt batterí og helst ekki í gangi nema vera í rafmagni.

Re: Dauður skjár á Fartölvu ?

Sent: Mið 01. Ágú 2012 00:32
af gullis
En allavega... sendi hana bara í viðgerð.