Síða 1 af 1

Gtx 670 Verð hjá Tölvutek

Sent: Þri 26. Jún 2012 21:02
af Xovius
Ég tók eftir því um daginn að Tölvutek eru með 670 kortin sín (http://tolvutek.is/vara/point-of-view-g ... -2gb-gddr5) á 5000 kr hærra verði en allir aðrir. Ákvað að spyrja bara söludeildina hjá þeim...

Ég til þeirra: 20. júní
Var bara að spá afhverju verðin ykkar á GTX 670 skjákortum eru 5.000 kr hærri en hjá öllum öðrum?

http://www.vaktin.is/index.php?action=p ... lay&cid=12


Þeir til mín: 20. júní
Sæll Jón,
Kortið sem við erum með er Gigabyte Super Overclocked útgáfa sem hefur töluvert betri kælingu en venjulegu kortin ásamt því að það er afkastameira þar sem það er að keyra á hærri klukkutíðnum.
Hinar tölvuverslanirnar á vaktinni eru með reference kort sem eru öll eins nema með mismunandi límmiðum.
Tölvutækni eru með 670 kort frá Gigabyte en það kort er ekki Super Overclocked útgáfa þó það sé með sömu kælingu og útskýrir það verðmuninn.
Verðverndin gildir i raun við alla hluti svo lengi sem að keppnisaðili eigi nákvæmlega sömu vöru á lægra verði til á lager.

Bestu kveðjur
Sölufulltrúi

(ég heiti ekki Jón en það er svosem ekki mikilvægt)

Ég til þeirra: 20. júní


Og ég hef ekki enn fengið neitt svar við því :D
Þó þeir selji vissulega líka "Gigabyte Super Overclocked" útgáfuna og það á sama verði og stock útgáfan :D
Getur verið erfitt að svara erfiðum spurningum...

Annars langar mig að hrósa starfsmanni í Omnis í Borgarnesi því þegar ég leit við þar um daginn og sá 3TB USB3 Verbatim flakkara á 50 þúsund spurði ég hversvegna verðið væri svona hátt og hann sagði þetta bara vera gamalt verð og lækkaði það á staðnum niður í einhver 38 þúsund :)

Re: Gtx 670 Verð hjá Tölvutek

Sent: Þri 26. Jún 2012 21:11
af worghal
sama kort í tölvutækni kostar 74þús :japsmile

Re: Gtx 670 Verð hjá Tölvutek

Sent: Þri 26. Jún 2012 21:12
af Skari
Vona að þetta þetta sé tekið úr samhengi hjá þér, persónulega myndi ég eyða púðri í að svara einhverjum með þetta attitude: "Ég til þeirra: 20. júní hrmpf, http://tolvutek.is/vara/point-of-view-g ... -2gb-gddr5"

Re: Gtx 670 Verð hjá Tölvutek

Sent: Þri 26. Jún 2012 21:15
af Xovius
Skari skrifaði:Vona að þetta þetta sé tekið úr samhengi hjá þér, persónulega myndi ég eyða púðri í að svara einhverjum með þetta attitude: "Ég til þeirra: 20. júní hrmpf, http://tolvutek.is/vara/point-of-view-g ... -2gb-gddr5"


Þetta er bara nákvæmt copy-paste úr e-mail forritinu mínu...
Gæti þessvegna gefið screenshot.

Re: Gtx 670 Verð hjá Tölvutek

Sent: Þri 26. Jún 2012 21:22
af worghal
þetta er nákvæmlega sama kort og hjá tölvutækni.
kortið sem ég keypti þar er "GV-N670OC-2GD" og viti menn, Tölvutek er að selja "GV-N670OC-2GD" #-o

Re: Gtx 670 Verð hjá Tölvutek

Sent: Þri 26. Jún 2012 21:34
af hjalti8
Þetta er ekki einu sinni SOC kort þarsem gigabyte hafa ekki gefið út neitt SOC kort í 600 línunni

Re: Gtx 670 Verð hjá Tölvutek

Sent: Þri 26. Jún 2012 22:03
af Xovius
worghal skrifaði:þetta er nákvæmlega sama kort og hjá tölvutækni.
kortið sem ég keypti þar er "GV-N670OC-2GD" og viti menn, Tölvutek er að selja "GV-N670OC-2GD" #-o


Þá ætti verðverndin hjá tölvutek að covera það... Þá er ódýrara að kaupa Gigabyte OC kortið en venjulega hjá tölvutek :D

Re: Gtx 670 Verð hjá Tölvutek

Sent: Mið 27. Jún 2012 00:36
af Klemmi
Eins og Worghal hefur bent á, þá erum við með nákvæmlega sömu útgáfu af kortinu á 74.900kr.-, eftir því sem ég bezt veit er þetta einnig eina útgáfan af GTX 670 kortum frá Gigabyte, sbr:
http://www.gigabyte.com/products/list.a ... 1,8@1@2,18

Svo mér finnast þetta mjög léleg svör hjá starfsmanninum þar. Enn fremur er það deilumál hvort að þessi kæling frá Gigabyte sé jafn traust og reference kælingin, talsvert meiri líkur á því að einhver af þessum 3 grönnu viftum verði með vesen heldur massíva viftan frá nVidia :)

*Bætt við*

Auk þess er það fásinna að segja að hin kortin séu eins nema með mismunandi límmiðum, það er talsverð einföldun á málinu.

Framleiðendur velja spennustýringar og minniseiningar til að setja á kortin sín og oftar en ekki útbúa þau einnig sína eigin BIOS.

Enn fremur verður að horfa til ábyrgðar, það að alhæfa að refrence kort sé verðminna heldur en önnur kort er frekar kjánalegt, vona að ég hljómi ekki eins og of mikill sölumaður, en m.a. myndi ég segja að auka árið í ábyrgð á PNY kortunum sé alveg þó nokkurs virði.

Re: Gtx 670 Verð hjá Tölvutek

Sent: Mið 27. Jún 2012 00:49
af Xovius
Klemmi skrifaði:Eins og Worghal hefur bent á, þá erum við með nákvæmlega sömu útgáfu af kortinu á 74.900kr.-

Býst svosem ekkert við að allir séu með fullkomin verð, bara það að hann hafi reynt að afsaka þetta með algjörri vitleysu...

En svo var ég að fá ný skilaboð í gegnum einkaskilaboðakerfið hér á vaktinni

Sæll, ég fékk þær upplýsingar frá innkaupadeild okkar að þetta væri ekki sama kort en þar sem að svo virðist ekki vera þá vil ég afsaka þennan misskilning.
En í ljósi þess að þetta sé það sama kort þá ætti verðverndin auðvitað að gilda.


Þetta virðist því vera misskilningur og nú virðast þeir alveg viðurkenna að verðið þeirra er einfaldlega ekki jafn lágt (nema með verðverndinni).
Mér finnst það nú samt ekki afsaka að ég hafi ekki fengið neitt svar þegar ég sendi til baka link á stock kortið...

Re: Gtx 670 Verð hjá Tölvutek

Sent: Mið 27. Jún 2012 00:55
af Delerith
Point of View

:lol:


Ég er að bíða eftir sendingunni minni frá buy.is
Fékk EVGA superclocked 670 kort þar á 75þús

Re: Gtx 670 Verð hjá Tölvutek

Sent: Mið 27. Jún 2012 00:55
af Tiger
Fáðu þér bara EVGA 670 FTW undir 80þús hjá buy.is og þú ert góður :)....þá getum við keypt af hvor öðrum þegar við viljum losna við eða bæta við :happy

Re: Gtx 670 Verð hjá Tölvutek

Sent: Mið 27. Jún 2012 01:03
af Delerith
Tiger skrifaði:Fáðu þér bara EVGA 670 FTW undir 80þús hjá buy.is og þú ert góður :)....þá getum við keypt af hvor öðrum þegar við viljum losna við eða bæta við :happy


hélt að ég hefði bara fengið superclocked en ég var að tékka og ég er greinilega að fara að fá FTW útgáfuna \:D/
minnið ekki alveg í lagi :lol:
http://www.newegg.com/Product/Product.a ... 6814130787

Re: Gtx 670 Verð hjá Tölvutek

Sent: Mið 27. Jún 2012 01:05
af Xovius
Tiger skrifaði:Fáðu þér bara EVGA 670 FTW undir 80þús hjá buy.is og þú ert góður :)....þá getum við keypt af hvor öðrum þegar við viljum losna við eða bæta við :happy


Ef einhver kaupir 580 af mér!!! (viewtopic.php?f=11&t=46710)
:D Hef ekki efni á því...