Síða 1 af 1
eplasafi yfir tölvu (uppfært)
Sent: Lau 23. Jún 2012 22:01
af J1nX
jæja drengir, það fór eplasafi yfir tölvuna mína og ég var að velta fyrir mér hvað þið mynduð sirka á að nýtt 5770 sapphire kort kosti nýtt út í búð? er búinn að vera að browsa tölvuverslanirnar hérna og finn það hvergi og jafnvel líka hvað móðurborðið mitt myndi kosta nýtt út í búð (sjáið hvernig móðurborð það er í undirskriftinni)
Re: eplasafi yfir tölvu
Sent: Lau 23. Jún 2012 22:03
af FuriousJoe
Sæll, hvernig heltist yfir tölvuna og ertu alveg viss um að þessir hlutir séu alveg ónýtir ?
Re: eplasafi yfir tölvu
Sent: Lau 23. Jún 2012 22:13
af J1nX
er ekki viss þar sem ég lánaði litlu systir minni tölvuna og hef ekki kíkt á hana, en kærastinn hennar er nokkuð viss um að skjákortið og móbóið hafi skemmst, hann veit ágætlega mikið um þessa hluti, en ég á eftir að kíkja á þetta.. vantar bara að vita hvað þetta eigi eftir að kosta, eða hvað þau eigi eftir að borga ef maður skyldi uppfæra eitthvað í leiðinni
Re: eplasafi yfir tölvu
Sent: Lau 23. Jún 2012 22:15
af agust1337
Þessi manneskja er að selja á 130 pund/25 þúsund kr. á Amazon
http://www.amazon.com/Sapphire-Radeon-DisplayPort-PCI-Express-100283-3L/dp/B0035K6H2C, svo væntanlegast kæmi tollur sem myndi gera þessa +30 þúsund
Re: eplasafi yfir tölvu
Sent: Lau 23. Jún 2012 22:16
af AntiTrust
Nú er ég forvitinn, hvernig tókst þér að hella yfir innviði í borðtölvu?
Ætli nývirði skjákortsins væri ekki um 20.000 og móðurborðið 25-30.000kr. Ég var með nákvæmlega sömu íhluti í i7 vélinni sem ég átti fyrir 1.5 ári og þá kostaði skjákortið 35.000 og móðurborðið 49.000kr. (ef minnið er ekki að svíkja mig.)
Re: eplasafi yfir tölvu
Sent: Lau 23. Jún 2012 22:19
af J1nX
helltist ofan á hana og það er risastór vifta ofan á henni þannig að það fór allt inní hana.
edit: er með haf 922 kassann þannig þetta er ágætis op sem er ofan á henni..
Re: eplasafi yfir tölvu
Sent: Lau 23. Jún 2012 23:05
af J1nX
hann slökkti á tölvunni aftan á henni nánast um leið og þetta gerðist, þannig hún drap allaveganna ekki á sér sjálf, gæti það hafa bjargað eitthverju ef maður reynir að hreinsa hana með handhreinsispritti og tannbursta eða eikkerju álíka?
Re: eplasafi yfir tölvu
Sent: Sun 24. Jún 2012 05:25
af IceThaw
Étur t.d. kók ekki upp rásir? Eru nokkur efni í eplasafa sem geta gert mikiinn skaða annað en t.d. eins og vatn sem myndi leiða er það ekki?
Hlýtur að vera hægt að hreinsa þetta
Re: eplasafi yfir tölvu
Sent: Sun 24. Jún 2012 09:30
af Xovius
Var nú bara að heyra af því um daginn að fartölvu hefði verið bjargað eftir vænann kaffibolla...
Re: eplasafi yfir tölvu
Sent: Sun 24. Jún 2012 10:19
af mundivalur
Prófaðu bara að þrífa þetta með vatni eða afjónuðuvatni "apótek" rífa allt í sundur og gefa sér góðann tíma í þetta
held að það sé ekki mælt með því að þurrka þetta á ofni eða svoleiðis heldur gefa því tíma til að þorna !
Re: eplasafi yfir tölvu
Sent: Sun 24. Jún 2012 17:32
af J1nX
jæja, búinn að þrífa allt involsið og leyfa því að þorna og tölvar startar sér en ég fæ enga mynd á skjáinn.. any idea hvað gæti verið að valda því? viftan fer í gang á skjákortinu og alles.
Re: eplasafi yfir tölvu (uppfært)
Sent: Sun 24. Jún 2012 17:47
af Skari
Er einhver útgangur á móðurborðinu hjá þér ? prófaðu þá að tengjast því í stað skjákortsins..
Einnig gætiru hafa gleymt að velja input á skjánum
Re: eplasafi yfir tölvu (uppfært)
Sent: Sun 24. Jún 2012 17:58
af J1nX
breytti ekkert skjánum frá því í gærkvöldi, tók bara allt úr sambandi og setti aftur í samband núna, breytti engum stillingum
Re: eplasafi yfir tölvu
Sent: Sun 24. Jún 2012 18:13
af Hargo
Einar Agust skrifaði:Étur t.d. kók ekki upp rásir? Eru nokkur efni í eplasafa sem geta gert mikiinn skaða annað en t.d. eins og vatn sem myndi leiða er það ekki?
Hlýtur að vera hægt að hreinsa þetta
Það er líklega sýra í eplasafanum líka sem fer ekki vel með tölvuíhluti...
Re: eplasafi yfir tölvu (uppfært)
Sent: Sun 24. Jún 2012 18:22
af J1nX
já grunar að skjákortið sé ónýtt, en var að vona að þið lumuðuð á eikkerju þar sem viftan snýst og alles
Re: eplasafi yfir tölvu (uppfært)
Sent: Sun 24. Jún 2012 18:28
af AciD_RaiN
J1nX skrifaði:já grunar að skjákortið sé ónýtt, en var að vona að þið lumuðuð á eikkerju þar sem viftan snýst og alles
Ég get lánað þér skjákort til að prufa. Gamalt 8800GTS
Re: eplasafi yfir tölvu (uppfært)
Sent: Sun 24. Jún 2012 21:23
af J1nX
þarf þess ekki en takk fyrir boðið samt. rúlla svo til þín á eftir með dótið sem þú lánaðir mér.
Re: eplasafi yfir tölvu (uppfært)
Sent: Sun 24. Jún 2012 22:33
af DabbiGj
Nýtt 6770 kort fer á 20kall útúr búð er sama kort og 6770
Re: eplasafi yfir tölvu (uppfært)
Sent: Sun 24. Jún 2012 22:41
af J1nX
DabbiGj skrifaði:Nýtt 6770 kort fer á 20kall útúr búð er sama kort og 6770
er 6770 sama kort og 6770 ?