Síða 1 af 1
Greining á bilun.[fixed]
Sent: Þri 13. Mar 2012 20:38
af Domnix
Gamli hlunkurinn minn hætti að virka nú á dögunum. Það kviknar á öllu klabbinu og allar viftur fara á milljón en tölvan startar sér ekki og ekkert kemur á skjáinn. Ég veit að skjákortið virkar en var að pæla hvort þetta væri ekki bara móðurborðið?
Re: Greining á bilun.
Sent: Þri 13. Mar 2012 21:17
af hagur
Kannski minnið ?
Útilokunaraðferðin bara ... Prófa að taka einn minniskubb úr, svo næsta etc.
Re: Greining á bilun.
Sent: Mið 14. Mar 2012 13:15
af Domnix
á samt ekki að koma bios þó minnið eða örgjörvinn sé bilaður?
Re: Greining á bilun.
Sent: Mið 14. Mar 2012 14:20
af gardar
Domnix skrifaði:á samt ekki að koma bios þó minnið eða örgjörvinn sé bilaður?
Neibb ekki endilega.
þessi bilun gæti alveg verið móðurborð, skjákort, örgjörvi, minni.... Eina leiðin til að komast að því er að nota útilokunaraðferðina
Re: Greining á bilun.
Sent: Fös 20. Apr 2012 20:10
af Sera
Lang líklegasta skýringin þegar ekkert kemur á skjáinn og búið að útiloka skjákortið að það sé móðurborðið. Ef enginn bios póstur kemur þá bendir það til móðurborðsbilunar.
Re: Greining á bilun.
Sent: Fös 20. Apr 2012 20:18
af SteiniP
Sera skrifaði:Lang líklegasta skýringin þegar ekkert kemur á skjáinn og búið að útiloka skjákortið að það sé móðurborðið. Ef enginn bios póstur kemur þá bendir það til móðurborðsbilunar.
Það getur nú alveg verið minnið, aflgjafinn, örgjörvinn eða eitthvað allt annað. Allar þessar bilanir geta komið fram sem myndleisi.
Byrjaðu samt á því að athuga móðurborðið og leita eftir bólgnum/sprungnum þéttum. Næsta skref væri að skipta um minni, síðan myndi ég prófa annann aflgjafa.
Re: Greining á bilun.
Sent: Fös 20. Apr 2012 20:20
af playman
Elsta vélin mín gerir þetta stundum.
Prófaðu að íta á reeset takkan eftir að þú ert búin að kveikja á henni.
Hjá mér er það móðurborðið sem er að klikka, hugsanlega vegna þess að þéttarnir eru orðnir slappir.
Ég myndi tjékka þéttanna á móðurborðinu þínu og sjá hvort að einhverjir eru eins og þeir eiga ekki að vera.
Re: Greining á bilun.[fixed]
Sent: Lau 21. Apr 2012 00:19
af Domnix
komið í lag fyrir svolitlu.. gleymdi að updatea
var eitt minnið en takk fyrir svörin