Síða 1 af 1

Psu vandamál.

Sent: Mið 23. Mar 2011 18:19
af krizzikagl
Sælir Vaktarar.

Nú er smá vandamál hjá gamla :dontpressthatbutton
Aflgjafinn minn, Jersey 650W GameZone, er að drulla í brækurnar.

eða kannski ekki beint aflgjafinn sjálfur heldur er Viftan búin að láta lífið :cry:
og veldur því að Psu-inn slekkur á sér (vegna ofhitnunar ofc)

Ég prufaði að rífa allt helvítið í sundur áðan og taka Viftu-hééélvítið og stinga bara beint í einn kapalinn úr aflgjafanum (eftir að hafa sett hann saman aftur ) og ...... ekki snérist vifan.... :(

er að vonast til að þið getið hjálpað mér eitthvað, get vooðalega lítið gert í tölvuni svona :|

Re: Psu vandamál.

Sent: Mið 23. Mar 2011 18:29
af Benzmann
ekkert mál að kaupa bara nýja viftu í þetta, ef tengið er eitthvað öðruvísi þá lóðar maður maður þetta bara

gæti jafnvel gert þetta fyrir þig fyrir smá aur :)

Re: Psu vandamál.

Sent: Mið 23. Mar 2011 18:41
af GullMoli
Ég geri ráð fyrir því að þú hafir farið mjög varlega þegar þú opnaðir aflgjafann, ef ekki farðu þá varlega.

Þar sem aflgjafinn er ekki í ábyrgð lengur þá er ekkert mál að setja aðra viftu bara í staðin og tengja í tengið í aflgjafanum eða leiða vírana útúr aflgjafanum og tengja í venjulegt molex tengi bara. Ég hef sjálfur gert það í þeim tilgangi að minnka hávaðann og það kom bara vel út.

Re: Psu vandamál.

Sent: Mið 23. Mar 2011 19:34
af krizzikagl
takk fyrir aðsoðina.

tengin á aflgjafaviftunni er 2-pinna, er það eitthvað issue ?

en bara svona að skella þessu svona inná, smá frítt BumP http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=29&t=36884

Re: Psu vandamál.

Sent: Mið 23. Mar 2011 19:58
af Benzmann
krizzikagl skrifaði:takk fyrir aðsoðina.

tengin á aflgjafaviftunni er 2-pinna, er það eitthvað issue ?

en bara svona að skella þessu svona inná, smá frítt BumP http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=29&t=36884



þá þarftu að lóða, klippir bara tengið af gömlu viftuni, með kanski 3cm snúrubút eftir á, og kaupir jafn stóra viftu og lóðar sá tengi á nýju viftuna, hef gert þetta nokkrum sinnum.

Re: Psu vandamál.

Sent: Mið 23. Mar 2011 20:15
af krizzikagl
ókei, snilldin ein :megasmile takk KÆRLEGA!!!!!

Re: Psu vandamál.

Sent: Mið 23. Mar 2011 20:26
af vesley
Svo bara passa sig að snerta ekki þéttana í aflgjafanum því þú getur fengið mjög öflugann straum frá þeim. Fólk hefur dáið við það að snerta þéttana í aflgjafa.

Re: Psu vandamál.

Sent: Mið 23. Mar 2011 20:32
af krizzikagl
Nú flækist málið örlítið....

rétt í þessu var viftan að hoppa í gang :) og ekki í fyrsta skipti, þetta er búið að gerast 2 - 3. er þetta e-h merki eða ?

Re: Psu vandamál.

Sent: Mið 23. Mar 2011 20:35
af biturk
já, segulinn nær sambandi við vafningana stöku sinnum í viftunni

eða stýringin fyrir viftuna í aflgjafanum er fucked up

prófaðu bara að setja aðra viftu við, þá tekuru allan vafa af þessu máli, getur meira að segja tekið tvo víra og tengt frá viftu sem er á og inná viftu sem er í lagi til að taka allan vaf af

Re: Psu vandamál.

Sent: Mið 23. Mar 2011 21:05
af Benzmann
vesley skrifaði:Svo bara passa sig að snerta ekki þéttana í aflgjafanum því þú getur fengið mjög öflugann straum frá þeim. Fólk hefur dáið við það að snerta þéttana í aflgjafa.



á eitthvað erfitt með að trúa því, ekki nema manneskjan sem með eitthver nokkur slæm hjartavandamál fyrr...

Re: Psu vandamál.

Sent: Mið 23. Mar 2011 21:48
af Klemmi
Það er hægt að fá alveg fínan straum frá þessum blessunum, lærði það the hard way, var að fikta í riðlandi viftu í aflgjafa með skrúfjárni á tölvu í gangi þegar ég var nýbyrjaður að vinna við tölvuviðgerðir og svo allt í einu fann ég bara eins og einhver hefði kýlt mig frekar vel í öxlina og sá bara hvítt í öðru auganu í smá stund, hélt að Pési hefði ákveðið að kýla mig þéttingsfast áður en ég áttaði mig á því að þetta var bara snillingurinn ég sem hafði troðið skrúfjárninu aðeins of langt... :face
Tel mig bara heppinn að hafa ekki sprengt einhverjar æðar í auganu eða álíka, þetta var virkilega "þungt högg", allt annað en þegar ég hef fengið straum úr einhverju öðru. En svo er spurning hversu mikið leynist í þéttunum eftir að aflgjafinn sjálfur hefur verið tekinn úr sambandi.

Re: Psu vandamál.

Sent: Fim 24. Mar 2011 13:18
af Benzmann
Klemmi skrifaði:Það er hægt að fá alveg fínan straum frá þessum blessunum, lærði það the hard way, var að fikta í riðlandi viftu í aflgjafa með skrúfjárni á tölvu í gangi þegar ég var nýbyrjaður að vinna við tölvuviðgerðir og svo allt í einu fann ég bara eins og einhver hefði kýlt mig frekar vel í öxlina og sá bara hvítt í öðru auganu í smá stund, hélt að Pési hefði ákveðið að kýla mig þéttingsfast áður en ég áttaði mig á því að þetta var bara snillingurinn ég sem hafði troðið skrúfjárninu aðeins of langt... :face
Tel mig bara heppinn að hafa ekki sprengt einhverjar æðar í auganu eða álíka, þetta var virkilega "þungt högg", allt annað en þegar ég hef fengið straum úr einhverju öðru. En svo er spurning hversu mikið leynist í þéttunum eftir að aflgjafinn sjálfur hefur verið tekinn úr sambandi.




færð kúdos fyrir þetta =D>