Síða 1 af 1

Fartölvulík

Sent: Lau 05. Mar 2011 09:20
af Daníel
Er hægt að fara með fartölvulík eitthvert og komast að því hvað er nothæft úr þeim, án þess að vita nákvæmlega hvað það er sem er að? hugsanlega hægt að koma henni í verð á sama stað?

er búinn að útiloka vinnsluminni, harða diskinn + hún tekur inn á sig straum, en kemst ekki lengra þ.s. ekkert fer í gang þegar að kveikt er á henni.

þetta er acer5920G vél...

Re: Fartölvulík

Sent: Lau 05. Mar 2011 09:28
af biturk
mb er steikt líklega

prufaðu að hafa hana í sambandi við straum en ekkert batterí í og starta.

Re: Fartölvulík

Sent: Lau 05. Mar 2011 10:32
af Daníel
ég er búinn að prófa allt þetta basic stuff... vill bara komast að því hvort það er örgjörvinn, móðurborðið eða takkaborðið, og selja þá það sem er í lagi í varahluti

ef það er móðurborðið sem er grillað (eins og allt bendir víst til?... ) hvað haldið þið að sé hægt að fá fyrir það sem er í lagi í partasölu?

Re: Fartölvulík

Sent: Lau 05. Mar 2011 14:56
af Daníel
ef skjákortið er ónýtt, ætti tölvan samt ekki að ræsa sig?

Re: Fartölvulík

Sent: Lau 05. Mar 2011 16:23
af Frantic
biturk skrifaði:prufaðu að hafa hana í sambandi við straum en ekkert batterí í og starta.


Getur maður séð þannig hvort að mb sé steikt?

Re: Fartölvulík

Sent: Þri 08. Mar 2011 16:33
af snaeji
Skelltu bbq sósu á það og sjáðu hvort þig langi að borða það....

Re: Fartölvulík

Sent: Sun 14. Ágú 2011 13:29
af Hook123
Ég skal skifta við þig á vélinni og 2000kr ef hún er ennþá til, varstu búinn að finna út hvað var í ólagi ?.

Re: Fartölvulík

Sent: Fim 13. Okt 2011 11:45
af litli_kallinn
uhm.. það er mjög líklegt að það hafi sprúngið þéttir á mb... hafðu samband við mig og ég skal athuga hvort ég geti ekki skipt bara um þéttinn á mb fyrr þig og séð hvort hún fari ekki bara aftur í gang fyrir þig í staðin fyrir að henda henni. er í síma 820 7816 - Agnar