Síða 1 af 1

Tölvuhreinsun (nemar í Hí)

Sent: Þri 18. Jan 2011 16:40
af Gúrú
Hér verða afrituð öll þau gögn* sem eigandinn óskar eftir auk aðgerðar í tilboði 1.
*Miðað er við 50 Gb af gögnum, hver 10 Gb umfram kosta 1000 kr.-


*Auglýsing sem er of stór fyrir lífið*

Þetta er alveg mesta okur sem ég hef séð, ever, ætlar einhver að reyna að réttlæta þetta eða umframgjaldið yfirhöfuð? :catgotmyballs

Re: Tölvuhreinsun (nemar í Hí)

Sent: Þri 18. Jan 2011 16:45
af MatroX
hehe það er ekki hægt að réttlæta þetta :crazy

Re: Tölvuhreinsun (nemar í Hí)

Sent: Þri 18. Jan 2011 16:54
af Halli13
haha 1500 fyrir að setja upp t.d chrome eða firefox sem tekur 2-3 min :lol:

Re: Tölvuhreinsun (nemar í Hí)

Sent: Þri 18. Jan 2011 17:10
af rapport
Þetta er dýrt fyrir þá sem kunna að bjarga sér.

Þetta er svona svo oft, ef maður kann þetta ekki sjálfur eða einhver af vinunum eða í fjölskyldunni, þá erþetta bara það sem svona kostar...

Maður ætti í raun að senda þetta spjald á alla þá sem maður aðstoðar ókeypis frá degi til dags.


En er þetta svo ekki bara eins og að borga 40 klst. forritunarvinnu í Navision fyrir lausn sem þú veist að var búið að gera fyrir annað fyrirtæki og liggur ready á netdrifi hjá Skýrr?

Þeir rukka þig aftur fyrir alla forritunina "sérlausnina" þó þeir geri í raun ekki handtak.

Maður hefur oft spurt sig hvort það sé löglegt að þeir fái þennan nýtingarétt af vinnu sem þeir vinna að beiðni annarra.

Re: Tölvuhreinsun (nemar í Hí)

Sent: Þri 18. Jan 2011 17:23
af coldcut
Væri gaman að fara með gamla lappann og biðja þá um að setja upp Gentoo með massífu manual partitioning! :D

Hvað ætli þeir mundu segja þá :?:

Re: Tölvuhreinsun (nemar í Hí)

Sent: Þri 18. Jan 2011 17:30
af Glazier
Vinnureglur..
Hugbúnaður, annar en stýrikerfi, þarf að fylgja með á diskum ef óskað er eftir uppsetningu á honum.

Hvaðan fá þau þá öll windows stýrikerfin sem eru sett á vélarnar ? #-o

Re: Tölvuhreinsun (nemar í Hí)

Sent: Þri 18. Jan 2011 17:39
af Pandemic
Glazier skrifaði:Vinnureglur..
Hugbúnaður, annar en stýrikerfi, þarf að fylgja með á diskum ef óskað er eftir uppsetningu á honum.

Hvaðan fá þau þá öll windows stýrikerfin sem eru sett á vélarnar ? #-o


MSDN? eða græja bara diskana útfra einum windows diskþ

Re: Tölvuhreinsun (nemar í Hí)

Sent: Þri 18. Jan 2011 17:44
af Klaufi
Vírusvörn og aukaforrit = 2.500kr..

Það tekur u.þ.b. 2 mínútur að setja upp öll þessi forrit sem þau eru með á listanum + Avast eða aðra vírusvörn..

Ekki reyna að segja mér það að þau séu ekki að nota Ninite.com, öll forritin sem þau gefa upp eru aðgengileg þar..

Re: Tölvuhreinsun (nemar í Hí)

Sent: Þri 18. Jan 2011 19:17
af einarhr
er þetta ekki fjáröflun hjá útskriftanemum í Rafmagns og Tölvuverkfræði?

um að gera að styrkja svoleiðis.

Tek undir með Rapport, það er ekki allir jafn klárir og við nördarnir hérna að grúska í tölvum, þetta eru bara notendur.

Re: Tölvuhreinsun (nemar í Hí)

Sent: Þri 18. Jan 2011 19:20
af wicket
Ef einhver er tilbúin að borga þetta, að þá er þetta rétt verðlagt.

Ef engin er tilbúin að borga þetta, að þá er þetta ekki rétt verðlagt og þeir þurfa að endurskoða verðskránna sína.

Re: Tölvuhreinsun (nemar í Hí)

Sent: Þri 18. Jan 2011 19:27
af beggi90
Sammála rapport.

Fólk hérna virðist bara ómögulega átta sig á því að það sem er "basic" fyrir okkur er ekki jafn létt fyrir aðra.

Sé í raun ekkert að þessum verðum, jú það er kannski full gróft að rukka fyrir hver auka 10 gb en ég er viss um að þeir eru sveigjanlegir með þetta ef þú ert með eitthver 70-100gb.
Hef það líka á tilfinningunni að þeir séu ekki að rukka fyrir hvert og eitt aukaforrit sem þeir setja upp heldur fyrir öll aukaforritin þá sé það 1500 annað tjah finnst mér frekar gróft.

Re: Tölvuhreinsun (nemar í Hí)

Sent: Þri 18. Jan 2011 19:32
af biturk
wicket skrifaði:Ef einhver er tilbúin að borga þetta, að þá er þetta rétt verðlagt.

NEI

Ef engin er tilbúin að borga þetta, að þá er þetta ekki rétt verðlagt og þeir þurfa að endurskoða verðskránna sína.

Re: Tölvuhreinsun (nemar í Hí)

Sent: Þri 18. Jan 2011 19:47
af capteinninn

Re: Tölvuhreinsun (nemar í Hí)

Sent: Þri 18. Jan 2011 20:06
af Gúrú
wicket skrifaði:Ef einhver er tilbúin að borga þetta, að þá er þetta rétt verðlagt.



Preaching to the quire hérna með frjálshyggjuna en þetta er samt okur imo,
vona vissulega eins og ég hélt fyrst að þeir verði helst til líbó með það að rukka venjulegt fólk fyrir þetta,

verst finnst mér samt að sumir munu líklega kjósa að fórna gögnum til að spara sér pening þegar að það er 0% aukaeffort frá þeim að redda þessu fyrir fólk og eflaust mun fólk gleyma því stundum að það þarf að eiga x gögn sem voru í óuppbackaðri möppu x.

Re: Tölvuhreinsun (nemar í Hí)

Sent: Þri 18. Jan 2011 20:53
af AntiTrust
Gúrú skrifaði:Verst finnst mér samt að sumir munu líklega kjósa að fórna gögnum til að spara sér pening þegar að það er 0% aukaeffort frá þeim að redda þessu fyrir fólk og eflaust mun fólk gleyma því stundum að það þarf að eiga x gögn sem voru í óuppbackaðri möppu x.


Treystu mér, búinn að vinna nógu lengi í tölvugeiranum til þess að vita að ef fólki er annt um gögnin sín, þá borgar það. Akkúrat ein helsta ástæðan fyrir því að ég hef verið harður á því að rukka fyrir gagnabjörgun í gegnum tíðina er afþví að fólk segist alltaf þurfa þetta og þetta og þetta og fer að telja upp í tugi ef ekki hundruði GB, svo minnist maður á smá aukagjald og þá kemur "Núú, nei aj blessaður slepptu því þá."

Það er ómældur tími sem fer í gagnaafritun/gagnabjörgun og því verður maður að vera harður á því að rukka fyrir slíkt.

Re: Tölvuhreinsun (nemar í Hí)

Sent: Þri 18. Jan 2011 21:12
af zedro
Ég skil ekki þessa menn.

6MB og algjörlega ólæs (28" @ 1920x1200) auglýsing ef ekki væri fyrir Automatic Resize möguleikann í FFox!

Ónei þessir menn fá ekki að snerta vélina mína :crazy

Re: Tölvuhreinsun (nemar í Hí)

Sent: Þri 18. Jan 2011 22:08
af einarhr
AntiTrust skrifaði:
Gúrú skrifaði:Verst finnst mér samt að sumir munu líklega kjósa að fórna gögnum til að spara sér pening þegar að það er 0% aukaeffort frá þeim að redda þessu fyrir fólk og eflaust mun fólk gleyma því stundum að það þarf að eiga x gögn sem voru í óuppbackaðri möppu x.


Treystu mér, búinn að vinna nógu lengi í tölvugeiranum til þess að vita að ef fólki er annt um gögnin sín, þá borgar það. Akkúrat ein helsta ástæðan fyrir því að ég hef verið harður á því að rukka fyrir gagnabjörgun í gegnum tíðina er afþví að fólk segist alltaf þurfa þetta og þetta og þetta og fer að telja upp í tugi ef ekki hundruði GB, svo minnist maður á smá aukagjald og þá kemur "Núú, nei aj blessaður slepptu því þá."

Það er ómældur tími sem fer í gagnaafritun/gagnabjörgun og því verður maður að vera harður á því að rukka fyrir slíkt.

=D>

Re: Tölvuhreinsun (nemar í Hí)

Sent: Þri 18. Jan 2011 23:11
af Gúrú
AntiTrust skrifaði:Það er ómældur tími sem fer í gagnaafritun/gagnabjörgun og því verður maður að vera harður á því að rukka fyrir slíkt.


Gef þér það að sjálfsögðu með gagnabjörgunina, hvað viltu samt meina að það taki þig langan tíma að afrita 100GB af gögnum?
(Þá er ég bæði að tala um þig í skyninu mann sem kann á tölvur og í skyninu hversu lengi þú þarft að vera að gera eitthvað, ekki að bíða)

Re: Tölvuhreinsun (nemar í Hí)

Sent: Þri 18. Jan 2011 23:22
af AntiTrust
Gúrú skrifaði:
AntiTrust skrifaði:Það er ómældur tími sem fer í gagnaafritun/gagnabjörgun og því verður maður að vera harður á því að rukka fyrir slíkt.


Gef þér það að sjálfsögðu með gagnabjörgunina, hvað viltu samt meina að það taki þig langan tíma að afrita 100GB af gögnum?
(Þá er ég bæði að tala um þig í skyninu mann sem kann á tölvur og í skyninu hversu lengi þú þarft að vera að gera eitthvað, ekki að bíða)


Margt sem spilar inn í. Fólk veit yfirleitt ekki hvaða gögn það þarf að taka afrit af og man það ekki nema fá directory listing. Fólk hefur yfirleitt ekki hugmyndir um hvar það geymir dótið sitt. Á tölvu sem er einfaldlega verið að formatta og enduruppsetja OS þarf að taka HDD úr vélinni, tengja í dokku, finna þau gögn sem þarf til (taka ownership ef þarf), kópera. Eftir það þarf að staðfesta að öll umbeðin gögn séu til staðar og athuga data integrity. Tölvan er uppsett aftur, HDD tekinn aftur úr, settur í dokku og gögn færð yfir. Í langflestum tilfellum er verið að biðja um tölvupóst og því þarf bæði að extracta hann og importa fyrir og eftir format. Microsoft gerir manni t.d. sérstaklega erfitt oft að færa póst á milli véla/forrita.

Eini tíminn sem ég þarf ekki að gera neitt er c/p tíminn sjálfur, sem er oft styðsti parturinn af ferlinu.

Re: Tölvuhreinsun (nemar í Hí)

Sent: Þri 18. Jan 2011 23:27
af chaplin
Ætla setja Arch Linux, rugla því eins mikið og mögulegt er, svo mikið að það komi ekki upp skjámynd og láta þá fá tölvuna og láta þá laga hana. Að rukka háskólanemendur svona hrikalega er svo mjöög rangt.

Re: Tölvuhreinsun (nemar í Hí)

Sent: Þri 18. Jan 2011 23:53
af END
Þetta er fjáröflun, sambærilegt því að kaupa klósettpappír til að styrkja ákveðið málefni þó þú getir fengið klósettpappír á lægra verði í Bónus. Auk þess held ég að verðsamanburður við tölvuverkstæði sé rafmagnsverkfræðinemunum ekki svo óhagstæður.

Re: Tölvuhreinsun (nemar í Hí)

Sent: Þri 18. Jan 2011 23:59
af chaplin
Ef þetta er fjáröflun að þá er þetta allt önnur saga! Hélt að þetta ætti að vera "special" díll fyrir HÍ nemendur.

Re: Tölvuhreinsun (nemar í Hí)

Sent: Mið 19. Jan 2011 00:03
af vesley
daanielin skrifaði:Ef þetta er fjáröflun að þá er þetta allt önnur saga! Hélt að þetta ætti að vera "special" díll fyrir HÍ nemendur.



x2