Síða 1 af 1
LCD, Plasma og LCD TV Viðgerðarþjónusta í boði
Sent: Fös 26. Nóv 2010 13:17
af TechHead
Tek að mér að gera við LCD tölvuskjái, LCD sjónvörp og Plasma sjónvörp/monitora.
Mikil reynsla og hagstætt verð
Re: LCD, Plasma og LCD TV Viðgerðarþjónusta í boði
Sent: Fös 26. Nóv 2010 20:11
af jonrh
Var að fá LCD tölvuskjá úr viðgerð hjá honum, solid. Mæli með honum
Re: LCD, Plasma og LCD TV Viðgerðarþjónusta í boði
Sent: Fös 26. Nóv 2010 20:23
af Benzmann
Er með nýlegann LG Skjá, 19 eda 20 tommu widescreen, held að Það sé farið öryggi i honum, allavegana kveikir hann ekki a ser, fæ bara ekkert svar frá honum, hvað rukkaru fyrir ad laga þannig?
Re: LCD, Plasma og LCD TV Viðgerðarþjónusta í boði
Sent: Fös 26. Nóv 2010 20:28
af Klemmi
Bara forvitni, hvers kyns viðgerðir erum við að ræða um?
Dauðar græjur, fasta/dauða pixla, rispur?
Re: LCD, Plasma og LCD TV Viðgerðarþjónusta í boði
Sent: Fös 26. Nóv 2010 21:17
af TechHead
Klemmi skrifaði:Bara forvitni, hvers kyns viðgerðir erum við að ræða um?
Dauðar græjur, fasta/dauða pixla, rispur?
LCD/LCD TV:
Geri við dauða skjái, skjái þar sem baklýsinguna vantar, skjái með intermitted bilanir, skjái með "no signal" bilun eða annað tengt video decodernum.
Get í flestum tilfellum losað fasta pixla en ekki dauða. Grunnar rispur get ég gert við.
Plasma:
Geri við dauða skjái, skjái með intermitted bilanir, Litabrengl, signal truflanir eða annað tengt Signal Input eða Buffer borðunum.
Vona þetta svari spurningunni
Re: LCD, Plasma og LCD TV Viðgerðarþjónusta í boði
Sent: Fös 26. Nóv 2010 21:21
af TechHead
benzmann skrifaði:Er með nýlegann LG Skjá, 19 eda 20 tommu widescreen, held að Það sé farið öryggi i honum, allavegana kveikir hann ekki a ser, fæ bara ekkert svar frá honum, hvað rukkaru fyrir ad laga þannig?
Átt pm
Re: LCD, Plasma og LCD TV Viðgerðarþjónusta í boði
Sent: Fös 26. Nóv 2010 22:27
af biturk
á 2 svona skjái sem virka hvorugir eins og þeir ættu að gera? hvað yrði verðmiðinn á þeim?
http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=21&t=32796&p=285721&hilit=medion#p285721og einn acer al1716 sem sprengir alltaf öryggi? veistu hvað gæti verið að honum eða hvað myndi kosta að gera við?
Re: LCD, Plasma og LCD TV Viðgerðarþjónusta í boði
Sent: Fös 26. Nóv 2010 22:48
af TechHead
Átt pm
Re: LCD, Plasma og LCD TV Viðgerðarþjónusta í boði
Sent: Þri 21. Des 2010 00:48
af rapport
32" Philips sjónvarp, liklega með biluðu móðurborði = litabrengl en virðist hrökkva í lag öðru hvoru í örskamma stund...
Á það sér einhverja von? og hvað mundi slik von kosta?
Re: LCD, Plasma og LCD TV Viðgerðarþjónusta í boði
Sent: Mið 22. Des 2010 02:24
af TechHead
rapport skrifaði:32" Philips sjónvarp, liklega með biluðu móðurborði = litabrengl en virðist hrökkva í lag öðru hvoru í örskamma stund...
Á það sér einhverja von? og hvað mundi slik von kosta?
átt pm
Re: LCD, Plasma og LCD TV Viðgerðarþjónusta í boði
Sent: Fim 30. Des 2010 21:09
af gunnarh
hæ!
Ég er með einn bilaðan skjá, vinsamlegast sendu mér pm fyrir meiri upplýsingar. (ég reyndi að senda þér skilaboð, en það virðist ekki hafa virkað?)
Re: LCD, Plasma og LCD TV Viðgerðarþjónusta í boði
Sent: Fim 13. Jan 2011 01:00
af Pappakassimedloki
Vantar að láta laga skjá. ertu með síma
Re: LCD, Plasma og LCD TV Viðgerðarþjónusta í boði
Sent: Fim 13. Jan 2011 01:09
af TechHead
Pappakassimedloki skrifaði:Vantar að láta laga skjá. ertu með síma
Átt pm
Re: LCD, Plasma og LCD TV Viðgerðarþjónusta í boði
Sent: Mið 23. Feb 2011 21:17
af cloneangel
sæll eg er með plasma model no TH-42pv70fa panasonic, ég held að panillinn er bilaður , það eru 2 hvítar rendur lóðréttar í miðju skjánum , er ekki hægt að gera við eða skipta um panil, getur þú bjargað mér.
Kristján 7748324
Re: LCD, Plasma og LCD TV Viðgerðarþjónusta í boði
Sent: Fim 10. Mar 2011 18:57
af TechHead
átt pm
Re: LCD, Plasma og LCD TV Viðgerðarþjónusta í boði
Sent: Fim 10. Mar 2011 19:02
af biturk
má ég fá pm
Re: LCD, Plasma og LCD TV Viðgerðarþjónusta í boði
Sent: Fös 11. Mar 2011 20:29
af TechHead
biturk skrifaði:má ég fá pm
hehe átt pm
Re: LCD, Plasma og LCD TV Viðgerðarþjónusta í boði
Sent: Fös 11. Mar 2011 21:10
af armada9
er með 1 22" samsung skjárin er svartur fyrst eftir að kveikt er á tölvuni,og þar til að búið er að ræsa windosið, svo byrjar hann að flökta, hratt og mikið og svo eftir langan langan tima þá hættir hann að flökta og er venjulegur.
þetta byrjaði eftir að tölvan var teingd bæði við skjáin og sjónvarp ( eins og hann hafi bara farið í fílu (: )
væri fínt ef þú gædi gefið verð hugmind ef það er hægt að laga þetta (:
Re: LCD, Plasma og LCD TV Viðgerðarþjónusta í boði
Sent: Sun 06. Nóv 2011 19:21
af Haffí
Ertu enn að gera við?
Ég er með plasmasjónvarp sem neitar að sýna mynd, en heyrist ágætlega í.
Þetta er stórt Phocus-tæki (sem virðist ekki vera selt á Íslandi) og það er hreinlega spurning hvort ég gæti fengið einhvern heim til mín að skoða dýrið þar sem það er svakalegt fyrirtæki að flytja það. Það var orðið svolítið slappt fyrir (var lengi að "hita upp" og hætt að hlýða fjarstýringunni) en myndin datt endanlega út eftir háværan smell fyrir nokkrum vikum.
Væri gott ef hægt væri að gera við það, eða alla vega fá staðfest hvort þetta var hinsta stundin.
Re: LCD, Plasma og LCD TV Viðgerðarþjónusta í boði
Sent: Mán 15. Apr 2013 09:59
af belkin
hæ
hvernig næ ég í þig?
kv július s 7705574
Re: LCD, Plasma og LCD TV Viðgerðarþjónusta í boði
Sent: Þri 27. Okt 2015 19:00
af jkk
Er með 6 ára gamalt 32" Philips. Svartur hringur ofarlega á skjánum og nokkrar láréttar línur yfir skjáinn. Væri þetta eitthvað sem væri hægt að skoða/laga ?
Virkar að öðru leyti.
Kveðja,
Jóhann.
johannkr@gmail.com