Síða 1 af 1

giraffi.net - ódýrasta hýsing á íslandi

Sent: Mán 16. Ágú 2010 13:27
af gardar
Sælir vaktarar.

Í tilefni 5 ára afmælis hjá okkur ákváðum við að taka nýja verðskrá í gagnið.

Og erum nú eftir minni bestu vitund að bjóða upp á bæði ódýrustu vps og shared hýsingar á landinu :)

Verðskrána er hægt að sjá á http://giraffi.net


Ef menn hafa einhverjar spurningar, hafið þá endilega samband hér, í pm eða á support@giraffi.net


Kv. Fyrir hönd Gíraffi sf.
-Garðar





(birt með góðfúslegu leyfi frá GuðjónR)

Re: giraffi.net - ódýrasta hýsing á íslandi

Sent: Sun 22. Ágú 2010 18:30
af depill
Mér finnst þetta flott framtak og sé ekki betur en að þið eruð komnir með netþjónan innanlands sem mætti kannski taka fram þar sem þeir voru það ekki áður.

Allavega flott mál, gangi ykkur vel...

Re: giraffi.net - ódýrasta hýsing á íslandi

Sent: Sun 22. Ágú 2010 19:25
af Gúrú
depill skrifaði:Mér finnst þetta flott framtak og sé ekki betur en að þið eruð komnir með netþjónan innanlands sem mætti kannski taka fram þar sem þeir voru það ekki áður.
Allavega flott mál, gangi ykkur vel...

Man eftir því 2008 að þú varst að segja að þeir væru ekki með íslensk seedbox en hann leiðrétti þig svoooo... :)

En rosalega finnst mér íslenskir VPSar dýrir ef að þið eruð ódýrastir. :(

Re: giraffi.net - ódýrasta hýsing á íslandi

Sent: Sun 22. Ágú 2010 19:47
af dori
Hvernig er með afritun gagna á þessu? Og getur maður ekki fengið hvaða stýrikerfi sem er (ég er bara að hugsa um GNU/BSD/eitthvað frjálst) á vélarnar?

Re: giraffi.net - ódýrasta hýsing á íslandi

Sent: Mán 23. Ágú 2010 00:18
af gardar
depill skrifaði:Mér finnst þetta flott framtak og sé ekki betur en að þið eruð komnir með netþjónan innanlands sem mætti kannski taka fram þar sem þeir voru það ekki áður.

Allavega flott mál, gangi ykkur vel...



Búnir að bjóða upp á íslenska hýsingu lengi :)
Annars er verið að vinna í nýjum vef sem mun innihalda ítarlegri upplýsingar.

Gúrú skrifaði:En rosalega finnst mér íslenskir VPSar dýrir ef að þið eruð ódýrastir. :(


Það er nú bara þannig að það er allt mikið dýrara á íslandi en erlendis, nettengingar og vélbúnaður... allt nema rafmagn líklegast...
Svo að það er því miður afskaplega erfitt að keppa við US hýsingarfyrirtæki sem eru að velta milljónum dollara mánaðarlega.


dori skrifaði:Hvernig er með afritun gagna á þessu? Og getur maður ekki fengið hvaða stýrikerfi sem er (ég er bara að hugsa um GNU/BSD/eitthvað frjálst) á vélarnar?


Stýrikerfin sem við höfum boðið upp á hingað til eru: Arch, CentOS, Debian, Fedora, Gentoo, Ubuntu.
Með VPS vélunum fylgir aðgangur í stjórnborð þar sem þú getur sjálfur meðal annars sett stýrikerfið upp, upp á nýtt, skipt út stýrikerfinu á vélinni og fleira. Þetta getur þú gert allt sjálfur, hvenær sem þér hentar.

Ef þig langar í eitthvert distro sem við bjóðum ekki upp á, þá ætti alveg að vera hægt að skoða það.

Varðandi backups, þá er raid1 á vélunum hjá okkur og það eru tekin afrit á vél sem er staðsett annarstaðar einu sinni á sólarhring.

Re: giraffi.net - ódýrasta hýsing á íslandi

Sent: Mán 23. Ágú 2010 00:26
af dori
Snilld... Kannski maður kíki á að skipta við ykkur. Það er sexí að geta notað stjórnborð til að setja vélina upp uppá nýtt ef maður vill prufa annað stýrikerfi :D

Re: giraffi.net - ódýrasta hýsing á íslandi

Sent: Mán 23. Ágú 2010 08:26
af depill
Hvaða platform eru VPSarnir hýsir á ?

Re: giraffi.net - ódýrasta hýsing á íslandi

Sent: Mán 23. Ágú 2010 08:53
af gardar
depill skrifaði:Hvaða platform eru VPSarnir hýsir á ?



openvz :)

Re: giraffi.net - ódýrasta hýsing á íslandi

Sent: Mán 15. Nóv 2010 03:20
af Opes
Hvað er að gerast með þjónana hjá ykkur? Virðist allt vera niðri, meiraðsegja Giraffi.net. Mjög óþæginlegt að vefurinn minn sé niðri og ég hafi ekki fengið neina tilkynningu frá ykkur né svar við tölvupósti sem ég sendi.

Re: giraffi.net - ódýrasta hýsing á íslandi

Sent: Mán 15. Nóv 2010 09:27
af dodzy
Opes skrifaði:Hvað er að gerast með þjónana hjá ykkur? Virðist allt vera niðri, meiraðsegja Giraffi.net. Mjög óþæginlegt að vefurinn minn sé niðri og ég hafi ekki fengið neina tilkynningu frá ykkur né svar við tölvupósti sem ég sendi.

x2

allt búið að vera niðri síðan kl hálf 7 í gærkvöldi ](*,)

Re: giraffi.net - ódýrasta hýsing á íslandi

Sent: Mán 15. Nóv 2010 09:54
af DabbiGj
Ætli þeir keyri ekki póstþjónana sína líka á þessum netþjónum \:D/

Re: giraffi.net - ódýrasta hýsing á íslandi

Sent: Mán 15. Nóv 2010 10:50
af biturk
Opes skrifaði:Hvað er að gerast með þjónana hjá ykkur? Virðist allt vera niðri, meiraðsegja Giraffi.net. Mjög óþæginlegt að vefurinn minn sé niðri og ég hafi ekki fengið neina tilkynningu frá ykkur né svar við tölvupósti sem ég sendi.


thats what ya get for being apple :lol:

annars ættiru að senda honum bara ep hjérna eða hreinlega hafa uppá númerinu og hringja í hann :)

Re: giraffi.net - ódýrasta hýsing á íslandi

Sent: Mán 15. Nóv 2010 13:03
af dodzy
biturk skrifaði:
Opes skrifaði:Hvað er að gerast með þjónana hjá ykkur? Virðist allt vera niðri, meiraðsegja Giraffi.net. Mjög óþæginlegt að vefurinn minn sé niðri og ég hafi ekki fengið neina tilkynningu frá ykkur né svar við tölvupósti sem ég sendi.


thats what ya get for being apple :lol:

annars ættiru að senda honum bara ep hjérna eða hreinlega hafa uppá númerinu og hringja í hann :)

Búinn að hringja í símanúmerið sem er skráð á giraffi.net (whois), svaraði ekki ](*,)

Re: giraffi.net - ódýrasta hýsing á íslandi

Sent: Mán 15. Nóv 2010 17:21
af gardar
Við lentum í því leiðindar veseni að ein vélin hjá okkur datt niður í gær.

Akkúrat á sama tíma og það reið yfir gubbupest hjá starfsmönnum Gíraffa, alveg týpískt að þessir hlutir gerist á sama tíma :cry:

Ég reif mig upp úr rúminu áðan og rúllaði niður í vélarsal og kom vélinni aftur upp.


Við biðjumst velvirðingar á þessu og bjóðum öllum viðskiptavinum sem urðu fyrir óþægindum einn mánuð af ókeypis hýsingu, til viðbótar við hýsinguna sem þeir nú hafa.


Kv. Garðar

Re: giraffi.net - ódýrasta hýsing á íslandi

Sent: Mán 15. Nóv 2010 19:05
af Starman
cluster ?

Re: giraffi.net - ódýrasta hýsing á íslandi

Sent: Mán 15. Nóv 2010 23:37
af gardar
Starman skrifaði:cluster ?


Neibb þetta var ekkert cluster, heldur bara vél sem hélt uppi ansi mörgum vefum