Síða 1 af 1

Surg í viftu :o

Sent: Mið 28. Júl 2010 02:49
af Alexs
Er með smá vandamál með lappann minn... nýlega byrjaði að surga svo helvíti í einni viftunni,
veit ekki hvaða vifta það er en langar að vita hvort einhver hafi hugmynd um hvað gæti valdið því
og hvert sé best að leita fyrir viðgerð á þessu.

Gæti þetta verið ryksöfnun eða? Gæti verið að hún sé að keyra utan í eitthvað?
Er samt með hana í frekar rykfríu umhverfi og með gott loftflæði undir henni

Re: Surg í viftu :o

Sent: Mið 28. Júl 2010 02:55
af Gúrú
Eitthvað brotnað eða losnað í legu?

Re: Surg í viftu :o

Sent: Mið 28. Júl 2010 04:08
af rapport
Hljómar eins og legan í viftunni...

Það er surg...

Re: Surg í viftu :o

Sent: Mið 28. Júl 2010 11:58
af Alexs
jamm, það getur passað. En hvert er best og ódýtast og fljótlegast að fara með vélina í viðgerð? :o

Re: Surg í viftu :o

Sent: Mið 28. Júl 2010 15:36
af littli-Jake
ég hugsa að þú getir alveg skipt um viftu sjálfur

Re: Surg í viftu :o

Sent: Mið 28. Júl 2010 15:41
af Alexs
Venjulega get ég það já.. í turntölvum en ég er algjör nýliði þegar það kemur að fartölvum :o
prufaði að opna hana í gær og sjá hvað ég gæti gert... ég var fljótur að loka henni aftur :p

Re: Surg í viftu :o

Sent: Mið 28. Júl 2010 15:54
af peer2peer
Sæll , misjafnt auðvitað að rífa í sundur fartölvur , óþolandi að skipta um viftur í Hp löppum , hvernig lappa ertu með ?

Re: Surg í viftu :o

Sent: Mið 28. Júl 2010 15:58
af Alexs
Er með Acer Aspire... ég veit hvar þessi vifta er staðsett, í vinstra horninu fyrir ofan lyklaborðið, gæti verið við power supplyið(er svoleiðis á laptops???)... þori samt ekki að fara með það hvaða vifta þetta er

Re: Surg í viftu :o

Sent: Mið 28. Júl 2010 16:00
af peer2peer
hugsanlega bara 1x vifta í tölvunni og spennubreytirinn er utanáliggjandi ;) viftan er þar sem blásturinn kemur út úr tölvunni ;)

Re: Surg í viftu :o

Sent: Mið 28. Júl 2010 16:03
af Alexs
hehe eins og ég sagði... er algjör nýliði með innvols laptoppa :p

Re: Surg í viftu :o

Sent: Mið 28. Júl 2010 16:04
af peer2peer
það tekur ekki nema 10 mín að skipta um viftu , eða rykhreinsa acer vélar , finndu einhvern góðhjartaðann til að aðstoða þig , ég myndi gera það ef ég byggi ekki á siglufirði.

Re: Surg í viftu :o

Sent: Mið 28. Júl 2010 17:35
af BjarniTS
peturthorra skrifaði:það tekur ekki nema 10 mín að skipta um viftu , eða rykhreinsa acer vélar , finndu einhvern góðhjartaðann til að aðstoða þig , ég myndi gera það ef ég byggi ekki á siglufirði.


Get tekið undir þetta , í það minnsta við þær acer sem ég hef komist í þá hefur það verið mjög lítið mál.
Að skipta um viftu í þessu á einhverri 1690 vél tók á milli 5 - 10 mín með vandvirkni.

Re: Surg í viftu :o

Sent: Mið 28. Júl 2010 17:39
af biturk
það sem þeir segja


mjög einfalt að skipta um þessa viftu, fáðu einhvern til að hjálpa þér ef þú treistir þér ekki í þetta.


annars er yfirleitt skammlaus að losa skrúfurnar á botninum á tölvunni snúa henni við varlega, opna hana, gá hvort einhver hlíf sé laus að ofan (oft er bara smellt plasthlíf fyrir ofan lyklaborð) og taka lyklaborðið og gjörðina utanum.

þá kemstu að viftunni og henni halda oftast 2-4 skrúfur.


einnig er hægt að finna repair guide eða manual á netinu sem segir þér hvað og hvernig á að gera þetta.


Gangi þér vel.

Gunnar

Re: Surg í viftu :o

Sent: Mið 28. Júl 2010 20:01
af valdij
Átti Acer Aspire vél líka, sama viftan fór í minni. Einmitt svona "surg"

Þurfti að bíða 4 vikur eftir nýrri viftu útaf starfsmenn Svar-tækni eru vanhæfir og gleymdi í tví eða þrí-gang að panta hana þrátt fyrir að ég hringdi reglulega og spurðist fyrir út í þetta þar sem mig bráðvantaði að geta notað þessa tölvu.

En sambandi við viftuna, ef svona vifta er til er maður enga stund að sjá út hvernig hún er fest og skipta um hana sjálfur, er alveg mjög lítið mál