Síða 1 af 1
3g hjá símanum --er hægt að horfa á rúv með þessu?
Sent: Þri 29. Jún 2010 19:32
af Vaski
Jæja núna er HM á fullu en líka sumar, þannig að maður þarf að hunskast uppí sumarbústað. Það er ekkert sjónvarp þar og því eru góð ráð dýr. Eina lausnin sem ég sé fyrir þér að að fá mér 3g frá símanum og horfa á leikina um helgina í gegnum vefin
http://www.ruv.is. Þannig að spurning mín er til ykkar sem að eruð með 3g frá símanum, hafði þið horft á ruv í gegnum þetta? Ræður það alveg við að stream rúv?
Takk fyrir svörin
Re: 3g hjá símanum --er hægt að horfa á rúv með þessu?
Sent: Þri 29. Jún 2010 21:23
af Nariur
það verður allt of dýrt, þú borgar fyrir allt gagnamagn, líka innlent og video stream tekur ekki beint lítið... fyrir utan að það er ég er ekki viss hvort 3G sé með nóga bandbreidd.
Re: 3g hjá símanum --er hægt að horfa á rúv með þessu?
Sent: Þri 29. Jún 2010 21:24
af Daz
Það virkar að streama frá þarna eurovision síðunni í gegnum 3g hjá Nova. Höktir, en virkar. Hver leikur þar er ca hálft gígabæt.
Re: 3g hjá símanum --er hægt að horfa á rúv með þessu?
Sent: Þri 29. Jún 2010 21:28
af wicket
Ég gerði þetta akkúrat á þriðjudaginn, notaði 3G hjá símanum og það svínvirkaði.
Lítið sem ekkert hökt enda straumurinn hjá rúv ekki í neinum blússandi gæðum.
Re: 3g hjá símanum --er hægt að horfa á rúv með þessu?
Sent: Þri 29. Jún 2010 21:51
af Vaski
wicket skrifaði:Ég gerði þetta akkúrat á þriðjudaginn, notaði 3G hjá símanum og það svínvirkaði.
Lítið sem ekkert hökt enda straumurinn hjá rúv ekki í neinum blússandi gæðum.
gott að vita að þetta virkar. þá er bara að skoða hvort að þetta sumarhús sé ekki örugglega á 3g svæði
Re: 3g hjá símanum --er hægt að horfa á rúv með þessu?
Sent: Þri 29. Jún 2010 22:34
af kubbur
ég get allavega horft á þetta í símanum, og það er Edge hérna