Síða 1 af 2
Langar að hrósa buy.is!
Sent: Fim 10. Jún 2010 22:22
af Páll
Já, mig langar bara að hrósa buy.is fyrir góða þjónustu.
Ég pantaði tölvu þarna og fékk hana í gær, og ekkert vandamál!
Ég pantaði bara á síðunni, borgaði... svo beið ég bara þangað til að þetta kom heim að húsi!
TÆR SNILLD!
Mæli með http://buy.is
Re: Langar að hrósa buy.is!
Sent: Fim 10. Jún 2010 22:29
af Sydney
Pallz skrifaði:Já, mig langar bara að hrósa buy.is fyrir góða þjónustu.
Ég pantaði tölvu þarna og fékk hana í gær, og ekkert vandamál!
Ég pantaði bara á síðunni, borgaði... svo beið ég bara þangað til að þetta kom heim að húsi!
TÆR SNILLD!
Mæli með http://buy.is
Þú pantaðir, borgaðir, og fékkst það sent?
Er það ekki eins og að hrósa pítsustað fyrir awesome þjónustu af því að þeir komu pítsunni heim til þín?
(Er ekki að skjóta neitt a buy.is, hef sjálfur fína reynslu af þeim)
Re: Langar að hrósa buy.is!
Sent: Fim 10. Jún 2010 22:30
af beatmaster
Við hverju bjóstu?
Að þú fengir sent umslag með miða sem að á stæði "Takk fyrir peningana, Sucker!!!"
Mig langar geðveikt að hrósa Atlantsolíu, þegar að ég mætti á bensínstöðina var til bensín auk þess sem að dælan virkaði og fékk ég aukalega 2 krónu afslátt á lítrann með svokölluðum dælulykli, það er sko geðveik þjónusta
Annars til hamingju með nýju tölvuna
kv Bitrimaster
Re: Langar að hrósa buy.is!
Sent: Fim 10. Jún 2010 22:33
af Páll
Djöfull eruði leiðinlegir,....
Ég átti við að það væri ekkert vesen, væri ekki að bíða í 3 mánuði eða eitthvað svoleiðis..
megið eiga ykkur!
Re: Langar að hrósa buy.is!
Sent: Fim 10. Jún 2010 22:35
af JohnnyX
nákvæmlega svona nöldur sem er alveg að fara með síðuna....
annars til hamingju með nýja gripinn, hvað var verið að fá sér?
Re: Langar að hrósa buy.is!
Sent: Fim 10. Jún 2010 22:37
af Páll
JohnnyX skrifaði:nákvæmlega svona nöldur sem er alveg að fara með síðuna....
annars til hamingju með nýja gripinn, hvað var verið að fá sér?
Ég keypti mér lenovo fartölvu, get ekki linkað á hana. Buy.is virðist ekki virka..
Re: Langar að hrósa buy.is!
Sent: Fös 11. Jún 2010 01:27
af rapport
Pallz skrifaði:JohnnyX skrifaði:nákvæmlega svona nöldur sem er alveg að fara með síðuna....
annars til hamingju með nýja gripinn, hvað var verið að fá sér?
Ég keypti mér lenovo fartölvu, get ekki linkað á hana. Buy.is virðist ekki virka..[/quote]
Svona í tilefni þess hvað þráðurinn heitir.... þá vil ég benda á að vefverslanir treysta svolítið á að birtast á netinu...
En ég vil nota tækifærið og þakka Vinstri Grænum, þeir haga sér nákvæmlega eins og þeir hafa alltaf auglýst sig og talað, s.s. eins og hálfvitar....
Re: Langar að hrósa buy.is!
Sent: Fös 11. Jún 2010 04:08
af g0tlife
Ég vil taka það framm að bíllinn minn á hrós skilið. Ég lét lykilinn í áðan svo ákvað ég að snúa honum og viti menn... Hann fór í gang !
Re: Langar að hrósa buy.is!
Sent: Fös 11. Jún 2010 04:31
af Harkee
já, ég get tekið undir það, keypti vöru af þeim um daginn og er mjög sáttur við verð og þjónustu
Re: Langar að hrósa buy.is!
Sent: Fös 11. Jún 2010 08:08
af ZoRzEr
Ömurlegt að koma inná vaktina og sjá svona aumingja komment á virkilega heiðarlegan póst. Skammast mín stundum að lesa svona rugl.
Re: Langar að hrósa buy.is!
Sent: Fös 11. Jún 2010 08:26
af Daz
Það á ekki að þurfa að hrósa einum eða neinum fyrir að vinna vinnuna sína, hvorki vefverslun né pítsuverslun. Ef viðkomandi hefði farið út fyrir það sem maður myndi telja "eðlilega" þjónustu, þá væri aftur á móti góð ástæða til að hrósa og það jafnvel opinberlega.
Annars vil ég þakka syni mínum fyrir að hafa kúkað núna kl 8 eins og hann gerir alltaf, mjög glæsileg framistaða.
Re: Langar að hrósa buy.is!
Sent: Fös 11. Jún 2010 08:28
af beatmaster
Nú ætla ég að tilvitna orðrétt í upprunalega póstinn nema að ég ætla að breyta orðinu buy.is í Dominos og orðinu tölva í pizza, getiði svo sagt mér að það sé ekkert kjánalegt við þennanna póst?
Pallz skrifaði:Já, mig langar bara að hrósa Dominos fyrir góða þjónustu.
Ég pantaði pizzu þarna og fékk hana í gær, og ekkert vandamál!
Ég pantaði bara á síðunni, borgaði... svo beið ég bara þangað til að þetta kom heim að húsi!
TÆR SNILLD!
Mæli með http://domios.is
Bara það að Pallz hefði tekið fram hvenær hann pantaði tölvuna hefði breytt þessum þræði í eitthvað sem að meikar sense ef að það hefði bara tekið 1-2 daga að fá hana
Re: Langar að hrósa buy.is!
Sent: Fös 11. Jún 2010 08:49
af Danni V8
Ef að Pallz hefði pantað Pizzu frá Dominos og verið ánægður með þjónustuna sem hann fékk þaðan þá er ekkert að því að hrósa þeim fyrir það!
Sama hvern það á við þá er ALLTAF gott að hrósa fyrir vel unna vinnu, sama hvort það er akkurat það sem er ætlast til að fá út úr viðkomandi eða meira.
Í þessu tilfelli pantaði hann tölvu, fékk hana á góðum tíma og það var ekkert vesen, hann var mjög ánægður með þjónustuna og langaði til að hrósa fyrir hana og mæla með þessari verslun.
Síðan koma hingað aðrir spjallverjar og hrauna yfir þetta hrós og gera lítið úr því. Þetta er til skammar!
Ég er sjálfur yfirmaður á mínum vinnustað með 40 manns undir mér og það besta sem þessu fólki finnst er að fá hrós fyrir sína vinnu, þó að hún er akkurat það sem þau eiga að gera. Maður á ekki að þurfa að fara einhverjar lengri vegalengdir til þess að fá hrós!
Ef að ykkur finnst svona slæmt að hrósa fyrir góð vinnubrögð þá getið þið bara haldið því fyrir ykkur sjálfum. Það er töluvert verra að gera lítið úr hrósi heldur en að hrósa.
Re: Langar að hrósa buy.is!
Sent: Fös 11. Jún 2010 10:12
af Daz
Danni V8 skrifaði:Ef að Pallz hefði pantað Pizzu frá Dominos og verið ánægður með þjónustuna sem hann fékk þaðan þá er ekkert að því að hrósa þeim fyrir það!
Sama hvern það á við þá er ALLTAF gott að hrósa fyrir vel unna vinnu, sama hvort það er akkurat það sem er ætlast til að fá út úr viðkomandi eða meira.
Í þessu tilfelli pantaði hann tölvu, fékk hana á góðum tíma og það var ekkert vesen, hann var mjög ánægður með þjónustuna og langaði til að hrósa fyrir hana og mæla með þessari verslun.
Síðan koma hingað aðrir spjallverjar og hrauna yfir þetta hrós og gera lítið úr því. Þetta er til skammar!
Ég er sjálfur yfirmaður á mínum vinnustað með 40 manns undir mér og það besta sem þessu fólki finnst er að fá hrós fyrir sína vinnu, þó að hún er akkurat það sem þau eiga að gera. Maður á ekki að þurfa að fara einhverjar lengri vegalengdir til þess að fá hrós!
Ef að ykkur finnst svona slæmt að hrósa fyrir góð vinnubrögð þá getið þið bara haldið því fyrir ykkur sjálfum. Það er töluvert verra að gera lítið úr hrósi heldur en að hrósa.
Það er smá munur að hrósa undirmönnum (sem þykir víst gott í mannauðsstjórnun upp að vissu marki) og að hrósa verslun. Verslun fær borgað fyrir að veita ákveðna þjónustu, greiðslan er hrósið sem verslunin á skilið. Ef eitthvað í ferlinu fer fram úr þeim væntingum sem kaupandinn gerði, þá er ágætt að hrósa því. Ég get ekki séð að það sé nokkuð hérna sem bendir til þess að nokkuð hafi verið óvenjulega gott. (Gott að muna að buy.is er verslun, en ekki einstaklingar, jafnvel þó að á bak við verslunina standi augljóslega einstaklingar sem sinna sinni vinnu vonandi mjög vel).
Þegar ég sé hrós á þessu spjallsvæði vegna verslunnar (eða á nokkru spjallsvæði) geri ég ráð fyrir að það sé vegna þess að verslunin hafi staðið sig óvenjulega vel. Ég sé ekki að staðfesting á því að búð sem segist selja vörur, hafi ná að selja vöru án vandkvæða sé ástæða til að veita hrós eða yfirleitt ástæða til að tala meira um það. Er svona sjaldgæft að fólk fái vörurnar sínar frá buy.is að það taki því að tala sérstaklega um það ef það gerist?
edit:
Fattaði hvað ég vildi segja.
Þú hrósar ekki starfsmanni fyrir að mæta í vinnuna á réttum tíma, því það á að vera sjálfgefið, þú hrósar honum fyrir að hafa framkvæmt eitthvað (vonandi vel). Sama í þessu tilfelli.
Re: Langar að hrósa buy.is!
Sent: Fös 11. Jún 2010 10:27
af Nariur
Þegar hann er að hrósa buy.is er hann augljóslega að hrósa Friðjóni og Daníel þar sem þeir eru eiginlega buy.is
Re: Langar að hrósa buy.is!
Sent: Fös 11. Jún 2010 10:46
af rapport
Hrós eru verðlaus ef þau eru ofnotuð...
Það á ekki að hrósa fyrir hvað sem er.
En auðvitað þá hefur verið hérna inni umræða um buy.is og vandræðin/tafir vegna eldgossins o.s.frv.
Það má alveg skjóta inn svona einni sólarglætu.
En svo má líka alveg grínast aðeins með umræðuna, það kemur manni í betra skap að lesa þetta yfir...
Það er alveg ótrúlet að lesa hvað vaktararnir eru almennt þakklátt fólk...
Pallz er þakklátur fyrir buy.is
Sydney er með Dominos á heilanum (líklega bara svangur)
Beatmaster er eitthvað að velta fyris sér Nígeríubréfum og bensínverði (hvaða lífsreynsla ætli liggi þar að baki?)
JohnnyX er þessi gúddí gaur sem bara samgleðst með fólki án þess að vera koma sjálfum sér að í umræðunni.
Ég dissast svo yfir að vefverslunin sé ekki aðgengileg á vefnum (vá... ansk.. ég er nöldrari...)
gotlife er sáttur við bílinn sinn (hljómar reyndar ekki eins og hann sé kröfuharður...)
Harkee er sáttur við buy.is
ZoRzEr er með virkilega ofvirka blygðunarkennd
Beatmaster fékk svo ekki kvöldmat og er enn að hugsa um Dominos
Danni V8 er með "ötipusarduld" æ, kannski ekki alveg, en hann vill líklega fá meira hrós í vinnunni...
Daz vill ekki að hrós sé ofnotað enda á fólk að vera meðvitað um hvaða skildum það gegnir í starfi.
Naríus vill svo endilega vera persónugera hlutina eitthvað...
En þessi samantekt var í boði fundarins sem ég er að far aá eftir 2min, hafði ekkert betra að gera .... í smá stund...
Re: Langar að hrósa buy.is!
Sent: Fös 11. Jún 2010 10:50
af mind
Danni V8 skrifaði:Sama hvern það á við þá er ALLTAF gott að hrósa fyrir vel unna vinnu, sama hvort það er akkurat það sem er ætlast til að fá út úr viðkomandi eða meira.
Danni V8 skrifaði:Ef að ykkur finnst svona slæmt að hrósa fyrir góð vinnubrögð þá getið þið bara haldið því fyrir ykkur sjálfum. Það er töluvert verra að gera lítið úr hrósi heldur en að hrósa.
Það eru nú nokkuð margir sem vinna við að drepa annað fólk, margir vinna við að þræla öðru fólki og ef maður ætti að benda á okkur þjóðfélag þá margir sem selja fíkniefni.
Ég held flestum í okkar þjóðfélagi myndi ekki þykja þetta hrósvert og myndu finna að því ef t.d. þú myndir hrósa þeim á opnum miðli fyrir vel unnin verk.
Það sem ég er að benda á er að fullyrðinging stenst ekki vegna þess að rétt/rangt eða gott/vont eru einfaldlega hugtök sem eru huglæg en ekki staðreyndir eins og t.d. þyngdaraflið.
Því ættu aðrir, þó þeir hafi aðrar hugmyndir á hrósi að hafa rétt á að segja sínar skoðanir á því alveg eins og þeir sem vilja hrósa hafa rétt til að koma því á framfæri.
Nú ef við viljum hinsvegar ritskoðun til að skriftir annarra sameinist skoðun þinni á réttu og röngu má eflaust bera það undir stjórnendur.
Disclaimer: Ég er ekki að segja umrædd verslun sé rekin af fólkinu sem ég tók sem dæmi, ég var einfaldlega breyta um umhverfi til að sýna hina hliðina.
Re: Langar að hrósa buy.is!
Sent: Fös 11. Jún 2010 12:05
af ZoRzEr
rapport skrifaði:Pallz er þakklátur fyrir buy.is
Sydney er með Dominos á heilanum (líklega bara svangur)
Beatmaster er eitthvað að velta fyris sér Nígeríubréfum og bensínverði (hvaða lífsreynsla ætli liggi þar að baki?)
JohnnyX er þessi gúddí gaur sem bara samgleðst með fólki án þess að vera koma sjálfum sér að í umræðunni.
Ég dissast svo yfir að vefverslunin sé ekki aðgengileg á vefnum (vá... ansk.. ég er nöldrari...)
gotlife er sáttur við bílinn sinn (hljómar reyndar ekki eins og hann sé kröfuharður...)
Harkee er sáttur við buy.is
ZoRzEr er með virkilega ofvirka blygðunarkennd
Beatmaster fékk svo ekki kvöldmat og er enn að hugsa um Dominos
Danni V8 er með "ötipusarduld" æ, kannski ekki alveg, en hann vill líklega fá meira hrós í vinnunni...
Daz vill ekki að hrós sé ofnotað enda á fólk að vera meðvitað um hvaða skildum það gegnir í starfi.
Naríus vill svo endilega vera persónugera hlutina eitthvað...
En þessi samantekt var í boði fundarins sem ég er að far aá eftir 2min, hafði ekkert betra að gera .... í smá stund...
lol. qft
Re: Langar að hrósa buy.is!
Sent: Fös 11. Jún 2010 13:13
af biturk
í alvörunni? nöldur að því að hann hrósar fyrirtæki?
stundum myndi maður halda að það væru menn hjérna á vegum annara fyrirtækja í vinnu við að reina að rífa niður allt sem er sagt uppbyggilegt um buy.is
Re: Langar að hrósa buy.is!
Sent: Fös 11. Jún 2010 13:59
af hagur
Sé ekkert að þessu innleggi ...
Ef ég man rétt þá var OP með einhverjar efasemdir um Buy.is fyrir nokkru síðan. Nú hefur hann prófað að versla við þá, allt gekk eðlilega fyrir sig, eins og við var að búast, og hann lýsir þeirri reynslu sinni. Bara gott mál.
En nú er kominn tími fyrir HM!
Re: Langar að hrósa buy.is!
Sent: Fös 11. Jún 2010 14:03
af hsm
Já HáEmm er að byrja NÚNA... aaaa gott að vera með gervihnattamótakara út á sjó
Og vill ég hrósa útgerðinni fyrir það að hafa splæst í þetta gervi dót...
Re: Langar að hrósa buy.is!
Sent: Fös 11. Jún 2010 19:46
af BjarniTS
Vil manni að nafni Leifur sem að vinnur í Leifasjoppu , hann bara lætur mann hafa það sem maður borgar fyrir á svipstundu.
Vil líka hrósa sjálfum mér fyrir það hvað ég er myndarlegur og hress.
Vil líka hrósa forfeðrum mínum , takk fyrir góð gen.
Re: Langar að hrósa buy.is!
Sent: Fös 11. Jún 2010 21:38
af g0tlife
Það sem ég lýt á hrós er það sem kísildalur á skilið. Ég keipti tölvu þarna og skjákortið sem ég vildi var ekki til. Þá lánuðu þeir mér aðeins verra skjákort á meðan svo ég gæti tekið tölvuna mína heim í nokkra daga og leikið mér. Svo var kassinn sem mig langaði bara í ekki seldur hjá þeim svo yfirmaður kísildals sagðist bara fara og kaupann. Þannig að hann stökk útí bíl og brunaði í e-h heildsölu og keipti kassann. Þetta kalla ég flott vinnubrögð og þeir eiga hrós skilið !
Re: Langar að hrósa buy.is!
Sent: Fös 11. Jún 2010 22:45
af rapport
gotlife skrifaði:Það sem ég lýt á hrós er það sem kísildalur á skilið. Ég keipti tölvu þarna og skjákortið sem ég vildi var ekki til. Þá lánuðu þeir mér aðeins verra skjákort á meðan svo ég gæti tekið tölvuna mína heim í nokkra daga og leikið mér. Svo var kassinn sem mig langaði bara í ekki seldur hjá þeim svo yfirmaður kísildals sagðist bara fara og kaupann. Þannig að hann stökk útí bíl og brunaði í e-h heildsölu og keipti kassann. Þetta kalla ég flott vinnubrögð og þeir eiga hrós skilið !
Ég er algjörlega sammála, þetta er góð þjónusta...
Næst þegar ég fer á KFC bið um Grænmketisnúðlur eins og á Nings, þá er eins gott að þeir standi sig... þessir aular...
En allavega... þá minnir þetta mig á eitt...
Ég vann í bílalúgu, kærustupar kemur, gaurinn líklega 17 og hún 15 (ekkert voðalega eðlilegt) nema til að toppa þetta þá bað hún um London Docks...
Þetta sló mig aðeins út af laginu þannig að ég spurði á móti (eins og lög gera ráð fyrir) "eru þeir ekki aðeins of stórir fyrir þig?"
Þessi svaka tíkarsvipur kemurá gelluna og gaurinn missti andlitið og hún segir "bíddu - hvað meinar þú?"
Ég svara "Of stórir fyrir þig? Ert þú ekki of ung, þú ert ekki orðin 16" (þetta var í gamla daga)
Hún gapti og gaurinn var orðinn flóttalegur... og hún segir " Er aldurstakmark ef maður ætlar að kaupa smokka?"
Það þurfti einhver annar að koma og klára afgreiðsluna, ég gat ekki hætt að hlæja.... skil ekki enn hvernig mér tókst að misheyra þetta.
Re: Langar að hrósa buy.is!
Sent: Fös 11. Jún 2010 23:57
af BjarkiB

I lol'd... Annars vá hvað er gaman að lesa dramað á vaktinni