Síða 1 af 1
Viftu hávaði
Sent: Þri 20. Apr 2010 20:54
af Máni Snær
Er ekki eitthvað forrit sem ég get sótt þar sem hægt er að stilla hraða viftnanna í tölvunni?
Re: Viftu hávaði
Sent: Þri 20. Apr 2010 21:03
af mercury
hvaða viftum ?
Re: Viftu hávaði
Sent: Þri 20. Apr 2010 21:20
af Máni Snær
Þetta eru bara original vifturnar í Antec P190 turn.
Re: Viftu hávaði
Sent: Þri 20. Apr 2010 21:24
af Kobbmeister
Er ekki svona low medium og high stillir á þeim?
svona nema svartur?
Re: Viftu hávaði
Sent: Þri 20. Apr 2010 21:38
af mercury
er með p182 og það er hraðastillir aftaná tölvunni fyrir viftuna aftaná og ofaná tölvunni og svo inni í kassanum er einmitt svona viftustýring fyrir viftuna í kjallaranum.
Re: Viftu hávaði
Sent: Þri 20. Apr 2010 22:14
af Máni Snær
Takk fyrir þetta, ég fann 3x hraðastillingar aftan á og allt var í H, þetta er í L núna & munurinn er mikill!