Síða 1 af 1
Um buy.is
Sent: Lau 27. Feb 2010 10:46
af DeAtHzOnE
Vinur minn var að tala um að Buy.is keyptu lítið af vörum í einu (maður pantar ok svo þarf maður að bíða eftir næstu sendingu og þá hækka þeir verðið).
Hvað hafið þið kæru vaktarar og stafsmenn Buy.is að segja um þetta er þetta satt.? Á örugglega eftir að versla svona 80% hjá þeim þegar að ég fæ mér nýja tölvu.
Re: Um buy.is
Sent: Lau 27. Feb 2010 11:12
af beatmaster
Þú pantar, borgar og þá flytja þeir dótið sem að þú pantaðir inn fyrir þig.
Það er einfaldara að hugsa um Buy.is eins og ShopUSA frekar en tölvubúð
Re: Um buy.is
Sent: Lau 27. Feb 2010 11:42
af hagur
Rétt og ekki rétt .... já, þeir hafa í raun engann lager, þú pantar hjá þeim og þeir útvega vöruna að utan á því verði sem kemur fram á síðunni þeirra þegar þú pantar.
Það er það verð sem þeir geta tekið vöruna inn á, á hverjum tíma.
Ef krónan veikist, þá væntanlega hækkar verðið en þá uppfæra þeir verðið á síðunni hjá sér. Ég er nokkuð viss um að það verð sem er á síðunni þegar þú pantar hlutinn er það verð sem þú færð hann á.
Ég hef keypt nokkra hluti frá þeim, allt frá USB minnislykli á c.a 5þús kall upp í tölvuskjá á hátt í 70þús. Allt hefur staðist 100% og ég mæli alveg 100% með þeim.
Re: Um buy.is
Sent: Lau 27. Feb 2010 11:53
af valdij
Verslað 3x af þeim, alltaf allt í topp-standi og frábær þjónusta. Topp meðmæli...
Re: Um buy.is
Sent: Lau 27. Feb 2010 11:53
af Gunnar
ef þú pantar hlut á 5000kr og svo hækkar hann í verði úti þá skiptir það engu máli þú ert buinn að panta hann of færð hann þá á 5000kr.
myndi ég halda.
Re: Um buy.is
Sent: Lau 27. Feb 2010 12:31
af J1nX
ég pantaði frá þeim hluti í heila tölvu fyrir um mánuði síðan (30jan) og er ekki ennþá búinn að fá alla íhlutina og verðið er ennþá á því verði sem stóð á síðunni þegar ég pantaði hlutina (veit ekkert um hvort það sé búið að hækka eða hvað)
Re: Um buy.is
Sent: Lau 27. Feb 2010 16:51
af Frost
Hef keypt 4x af buy.is og aldrei vandræði. Topp þjónusta
Re: Um buy.is
Sent: Lau 27. Feb 2010 18:19
af AntiTrust
Ég verslaði hjá honum skjávarpa í fínum prís, og svo hafa félagar mínir mikið verið að díla við hann, og það hefur alltaf skilað sér á uppsettum prís. Ef um óeðlilegar tafir var að ræða eða að hluturinn varð skyndilega ekki available var bætt fyrir það með öðrum hætti, get allavega sagt að í öllum tilfellum var kaupandinn meira en lítið sáttur, þar með talið ég.
Re: Um buy.is
Sent: Lau 27. Feb 2010 22:11
af BjarkiB
Keypti örgjörva fyrir stuttu. Valdi milliífærslu, og er búinn að færa yfir. En samt stendur ennþá í stöðu að það sé verið að bíða eftir milliífærslu. Búinn að líða einn dagur.
Re: Um buy.is
Sent: Sun 28. Feb 2010 03:58
af chaplin
Fyrir "starfsmenn" að þá ætti Friðjón að gefa svarið en ég ætla eingöngu að koma með það sem ég veit.
Þegar fólk leggur inn pöntun þá borgar það verðið sem er á vefsíðunni, við förum ekki að hækka verðið. Ef við gleymum að uppfæra verð er það okkur vandamál. Rétt eins og með allar vefsíður á íslandi.
Í 90% tilvika að þá þarf fólk að bíða eftir vörum, ástæðan fyrir því að við getum haldið svona góðu verði er útaf lítilli álagningu og litlum sem engum lager. Ef fólk pantar á þriðj. kemur varan á fimt. Ef fólk pantar á fimt. kemur varan á þriðj. Því miður hafa örfáir aðilar þurft að bíða lengur, en þá er ástæðan yfirleitt sú að varan er búin hjá birgja eða vandamál með flutning. Við látum ekki kúna bíða "viljandi" til að pirra þá.
Í raun og veru er það rétt sem beatmaster sagði, buy.is er alls ekki bara síða fyrir tölvuhluti, við flytjum inn allt, ekkert er of stórt né lítið.
Með allra bestu kveðju,
Daníel [daniel hjá buy.is]
Re: Um buy.is
Sent: Sun 28. Feb 2010 05:17
af Blackened
daanielin skrifaði:Í raun og veru er það rétt sem beatmaster sagði, buy.is er alls ekki bara síða fyrir tölvuhluti, við flytjum inn allt, ekkert er of stórt né lítið.
Með allra bestu kveðju,
Daníel [daniel hjá buy.is]
Hmm.. mögulega hægt að ræða það við ykkur þá að skoða innflutning á mótorhjólagöllum/hjálmum og jafnvel varahlutum?
svona ef útí það er farið
Re: Um buy.is
Sent: Sun 28. Feb 2010 23:20
af biturk
væru þá til dæmis bodykit á bíla eða eitthvað í þeim dúr eitthvað sem þið gætuð huxað ykkur að flytja inn fyrir fólk?
Re: Um buy.is
Sent: Sun 28. Feb 2010 23:27
af chaplin
Í raun og veru er það rétt sem beatmaster sagði, buy.is er alls ekki bara síða fyrir tölvuhluti, við flytjum inn allt, ekkert er of stórt né lítið.
Já við flytjum inn allt. Hinsvegar getum við ekki alltaf ábyrgst lægra verð þar sem sumar verslanir eiga enþá vörur á lager síðan gegnið var á sínu glory time. Fyrir frekari uppls. er betra að hafa samband við Friðjón, hinsvegar ef þetta er eitthvað tengt tölvum að þá er hægt að senda póst á mig.
All the best.
Mbk.
Daníel
Re: Um buy.is
Sent: Sun 28. Feb 2010 23:51
af Frost
daanielin skrifaði:Í raun og veru er það rétt sem beatmaster sagði, buy.is er alls ekki bara síða fyrir tölvuhluti, við flytjum inn allt, ekkert er of stórt né lítið.
Já við flytjum inn allt. Hinsvegar getum við ekki alltaf ábyrgst lægra verð þar sem sumar verslanir eiga enþá vörur á lager síðan gegnið var á sínu glory time. Fyrir frekari uppls. er betra að hafa samband við Friðjón, hinsvegar ef þetta er eitthvað tengt tölvum að þá er hægt að senda póst á mig.
All the best.
Mbk.
Daníel
Hann Friðjón er mjög lélegur að svara mailunum mínum. Er búinn að senda 3svar og ekki fengið svar enn. Það var fyrir svona viku.
Re: Um buy.is
Sent: Mán 01. Mar 2010 00:00
af Some0ne
Held að hann hafi svarað mér alltaf innan við klukkutíma, þú ert greinilega bara hundleiðinlegur
Re: Um buy.is
Sent: Mán 01. Mar 2010 00:04
af chaplin
Í síðustu viku var líka mjög mikið að gera, vorum að færa okkur í stærra húsnæði, mikill flutningur, mikið af pöntunum. Efast um að Friðjón sé ekki að svara til að pirra ykkur.
Erum eins og er að vinna í því að skipta álaginu á milli okkar, varðandi tölvubúnað, skjái og slíkt - sendið póst á mig. Fyrir aðra hluti, sendið póst á Friðjón.
Skal samt sem áður benda honum á að kíkja á póstinn sinn, getur vel verið að hann hafi misst af honum..
All the best.
Mbk.
Daníel
Re: Um buy.is
Sent: Mán 01. Mar 2010 00:11
af Opes
Sendi Friðjóni tölvupóst í þrígang um daginn án þess að fá svar. Gafst upp og pantaði sjálfur...
Re: Um buy.is
Sent: Mán 01. Mar 2010 00:14
af Frost
daanielin skrifaði:Í síðustu viku var líka mjög mikið að gera, vorum að færa okkur í stærra húsnæði, mikill flutningur, mikið af pöntunum. Efast um að Friðjón sé ekki að svara til að pirra ykkur.
Erum eins og er að vinna í því að skipta álaginu á milli okkar, varðandi tölvubúnað, skjái og slíkt - sendið póst á mig. Fyrir aðra hluti, sendið póst á Friðjón.
Skal samt sem áður benda honum á að kíkja á póstinn sinn, getur vel verið að hann hafi misst af honum..
All the best.
Mbk.
Daníel
Já láttu hann tékka á
lollzenator@gmail.com