Síða 1 af 1
Tölvan kveikir ekki á sér eftir að rafmagnið sló út
Sent: Mið 30. Des 2009 21:57
af dabbik
Þvottavél sem ég á bilaði og sló út rafmagnið í íbúðinni. Það slökknaði náttúrulega á tölvunni og hef ekki getað kveikt á henni síðan þá.
Einhverjar hugmyndir hvað gerðist? Gæti verið að þetta hafi smassað Power Supply-inum? Kunningi minn sagði að þetta hafi gerst fyrir sig og tölvan hans hafi farið í einhvernmegin "spennufall" og þá kviknaði á henni aftur eftir nokkra klukkutíma en nú er einn dagur liðinn síðan þetta atvikaðist.
Hjálp vel þegin
Re: Tölvan kveikir ekki á sér eftir að rafmagnið sló út
Sent: Mið 30. Des 2009 22:00
af SteiniP
Ef það gerist nákvæmlega EKKERT þegar þú reynir að kveikja henni þá er nánast klárt mál að aflgjafinn er farinn. Bara vonandi að hann hafi ekki tekið neitt annað með sér.
Re: Tölvan kveikir ekki á sér eftir að rafmagnið sló út
Sent: Fim 31. Des 2009 11:42
af littli-Jake
unplugaðu powersnúruna og bíddu í svona 2 daga áður en þú ferð að fraga gröf.
Re: Tölvan kveikir ekki á sér eftir að rafmagnið sló út
Sent: Fim 31. Des 2009 12:14
af Godriel
getur prufað að hreinsa CMOS, virkaði fyrir mig einu sinni, tekur batteryið úr og færir pinnan á JBAT yfir á pin 2-3 í 5 sec svo setur aftur á pin 2-1 og batteryið í og ath hvort að það kvikni ekki á henni aftur
Re: Tölvan kveikir ekki á sér eftir að rafmagnið sló út
Sent: Fim 31. Des 2009 13:19
af roadwarrior
Prufaðu að taka rafmagnssnúruna úr sambandi svona í ca 1 min og setja svo aftur í samband. Prufaðu því næst að setja hana í gang aftur
Re: Tölvan kveikir ekki á sér eftir að rafmagnið sló út
Sent: Fim 31. Des 2009 13:29
af kiddi
Ég hef þrisvar lent í þessu í gegnum tíðina (ansi löng tíð reyndar) og í öll skiptin var aflgjafinn farinn.
Re: Tölvan kveikir ekki á sér eftir að rafmagnið sló út
Sent: Fim 31. Des 2009 14:00
af Legolas
Ég hef lent í þessu og þá var móbóið fuckt
Re: Tölvan kveikir ekki á sér eftir að rafmagnið sló út
Sent: Fim 31. Des 2009 14:06
af emmi
Mæli með surgeprotector eða UPS.
Re: Tölvan kveikir ekki á sér eftir að rafmagnið sló út
Sent: Fim 31. Des 2009 15:03
af tolli60
Hljómar eins og aflgjafi sé farinn
Re: Tölvan kveikir ekki á sér eftir að rafmagnið sló út
Sent: Fim 31. Des 2009 16:40
af Hnykill
Hef lent í þessu oft hérna fyrir vestan.. það er langverst þegar rafmagnið flöktir áður en það fer.. spennufall og rýkur svo upp aftur :/
er búinn að missa nokkra harða diska svona. allavega 1 móðurborð og 2 aflgjafa sem ég man eftir. örgjörvar og minniskubbar virðast geta harkað þetta af sér einhvernveginn.. ómögulegt að segja hvað er farið nema bilangreina hlut fyrir hlut í annari tölvu helst. en það er gott að tékka á aflgjafanum fyrst já.
Suckar :/ ..og gleðilegt nýtt ár
Re: Tölvan kveikir ekki á sér eftir að rafmagnið sló út
Sent: Fim 31. Des 2009 18:18
af Some0ne
Þið eigið að geta farið fram á að rafveitan ykkar greiði skaðabætur vegna eyðilagðra raftækja..
Re: Tölvan kveikir ekki á sér eftir að rafmagnið sló út
Sent: Fim 31. Des 2009 18:31
af Gúrú
Some0ne skrifaði:Þið eigið að geta farið fram á að rafveitan ykkar greiði skaðabætur vegna eyðilagðra raftækja..
Það makar ekki sense fyrir mér.
Ekki einu sinni smá sense...
Re: Tölvan kveikir ekki á sér eftir að rafmagnið sló út
Sent: Fös 01. Jan 2010 21:54
af Blackened
Gúrú skrifaði:Some0ne skrifaði:Þið eigið að geta farið fram á að rafveitan ykkar greiði skaðabætur vegna eyðilagðra raftækja..
Það makar ekki sense fyrir mér.
Ekki einu sinni smá sense...
tjah.. ef að rafveitan er að senda ykkur eitthvað annað en 400/230v rafmagn þá áttu vissulega rétt á því ef að raftæki eyðileggjast.. þaðer ef spennan er of há eða of lá
lenti í því um daginn að koma á verkstæði þarsem að rafsuðuvél var búin að bila ítrekað yfir árið og við komumst að því að það voru bara 190v en ekki 230v eins og rafveitan er að SELJA manni..
þeir fengu vélina borgaða og einhvern viðgerðarkostnað líka og rafveitan þurfti að grafa niður sverari streng til að geta afhent umsamið rafmagn
En svo að maður víkji sér nú að efninu.. það er klárlega ekki rafveitunni að kenna ef að þvottavél bilar og það slær út lekaliði
og þarafleiðandi rafveitan enganvegin ábyrg
ennnn.. það er samt spurning hvort að Heimilstryggingin dekkar þetta ekki bara? ég myndi tékka á því amk..
Re: Tölvan kveikir ekki á sér eftir að rafmagnið sló út
Sent: Fös 01. Jan 2010 21:57
af Some0ne
Já lol, hann á náttúrulega engann rétt á skaðabótum út frá þvi að þvottavélin hans skíti á sig, ekki nema að rafmagnið inní húsið sé vitlaust eins og Blackened sagði.
Það gæti verið hinsvegar að heimilistryggingin dekki þetta, en það er alltaf einhver sjálfsábyrgð, frá 15k og uppúr, svo það er spurning um hvort að það borgi sig ef þetta er bara aflgjafinn.
Re: Tölvan kveikir ekki á sér eftir að rafmagnið sló út
Sent: Þri 05. Jan 2010 19:33
af dabbik
Jæja ég keypti nýjann aflgjafa og virðist það ei virka, ætli móðurborðið sé ekki dautt?
Re: Tölvan kveikir ekki á sér eftir að rafmagnið sló út
Sent: Þri 05. Jan 2010 19:36
af Narco
Held þú ættir að skila aflgjafanum og spreða í bilanaleit t.d. í kísildal, þeir eru oft snöggir að finna út úr svona dóti og eru ekki dýrir.
Re: Tölvan kveikir ekki á sér eftir að rafmagnið sló út
Sent: Þri 05. Jan 2010 19:50
af dabbik
Narco skrifaði:Held þú ættir að skila aflgjafanum og spreða í bilanaleit t.d. í kísildal, þeir eru oft snöggir að finna út úr svona dóti og eru ekki dýrir.
Hm já það er kannski rétt hjá þér að það ætti að kíkja með hana í viðgerð en það er samt eiginlega augljóst að móðurborðið sé dautt samt.
Aldrei heyrt um að örgjörvar, vinnsluminni eða skjákort "deyji" í svona tilfellum. Og ég var að fá nýjan aflgjafa þannig að það getur nánast ekki verið neitt nema móðurborðið og kannski harður diskurinn líka en hann skiptir engu við að ræsa tölvu.
Tel miklar líkur á að móbóið hafi farið, ef ekki þá móbóið og aflgjafinn.