Síða 1 af 1
Stíflaður Epson Ecotank
Sent: Fim 05. Feb 2026 10:35
af Hizzman
Er einhver að selja hreinsikit hér á landi? Þetta er vökvi, sprauta og slanga.
Re: Stíflaður Epson Ecotank
Sent: Fim 05. Feb 2026 11:04
af Moldvarpan
Ég gafst upp á mínum Canon bleksprautuprentana... hann var alltaf að stíflast, aðþví ég notaði hann ekki nógu mikið.
Það var nóg fyrir mig að skipta um blekhylkið, þá losnaði stíflan. Ég er alveg hættur að prenta út í dag, en nota stundum scannann sem er á prentaranum.
Re: Stíflaður Epson Ecotank
Sent: Fim 05. Feb 2026 11:08
af b3nni
Smá rant, maður getur átt kúlupenna í áratug og aðeins skrifað með honum og þá er hann kominn aftur í gang en ef maður kaupur hylki uppá tugi þúsunda á 8 lita prentara þá skemmast öll hylkin ef maður notar þetta ekki mánaðarlega, by design ?
Re: Stíflaður Epson Ecotank
Sent: Fim 05. Feb 2026 11:32
af ejm
Ég er einmitt með ecotank, prentaði síðast eitthvað fyrir jólin 2024, og eyddi meiri tíma í að keyra self-clean en actually að prenta.
Ég nota hann eiginlega bara til að skanna, og sýnist blekið í áfyllingarflöskunum sem fylgdi með vera orðið þurrt. Algert rugl.
Re: Stíflaður Epson Ecotank
Sent: Fös 06. Feb 2026 21:20
af gRIMwORLD
Ekki keyra endalaus self clean, það er video á youtube sem sýnir betri leið að þrífa hann (bara man ekki hvar)
Er með ET8550 sjálfur og hef þurft að hreinsa hann 2svar sinnum. Trickið er að það er "svampur" undir prenthausnum þegar hann er í park sem á það til að fyllast og það er hægt að hreinsa það varlega með pappír
Athugið ég get ekki borið ábyrgð á skemmdum prenturum vegna neðangreindra leiðbeininga. Ef þið eruð ekki viss með þetta þá leitið frekari upplýsinga áður en lengra er haldið.
Til að komast að þessu þá þarf að opna prentarann og taka hann úr sambandi við rafmagn þegar prenthausinn er á ferðalagi. Þá ertu með greiðan aðgang að þessum svampi.
Ég notaði eldhúspappír og leyfði honum rétt að leggjast ofan á svampinn til að draga í sig umfram blekið. Endurtók þetta nokkrum sinnum með hreinan pappír.
Að lokum er keyrt hreinsiprógram og það án gríns klárar með 100% útkomu í þetta skiptið.
Re: Stíflaður Epson Ecotank
Sent: Fös 06. Feb 2026 21:29
af Viggi
Mikið er ég feginn að eiga ekki prentara og blekscamið sem fylgir þeim
