"Allsherjaryfirferð" þjónusta hjá tölvuverslunum


Höfundur
falcon1
</Snillingur>
Póstar: 1046
Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
Reputation: 142
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

"Allsherjaryfirferð" þjónusta hjá tölvuverslunum

Pósturaf falcon1 » Fös 20. Feb 2026 00:02

Ég sé að Kísildalur býður uppá "Allsherjaryfirferð" á tölvum... er þetta eitthvað sem er sniðugt að láta gera af fagmönnum? Maður er kannski ekki sá duglegasti að rykhreinsa og svoleiðis, er samt nokkuð viss um að tölvan sé vírusfrí, og tölvan er að detta í 4 ára aldurinn núna í sumar. Virkar samt mjög fínt finnst mér, allavega fyrir það sem ég er að gera dags daglega.

https://kd.is/category/36/products/113
Síðast breytt af falcon1 á Fös 20. Feb 2026 00:03, breytt samtals 1 sinni.




Gemini
Ofur-Nörd
Póstar: 238
Skráði sig: Mán 02. Mar 2009 00:56
Reputation: 49
Staðsetning: 105
Staða: Ótengdur

Re: "Allsherjaryfirferð" þjónusta hjá tölvuverslunum

Pósturaf Gemini » Fös 20. Feb 2026 00:24

Stutta svarið nei, ekki fyrir 20.000 kr. Rykhreinsa tölvuna er nú nokkuð simple. Flestar nútímatölvur líka með síur sem grípa mest af þessu ryki fyrir mann sem er auðvelt að taka úr og hreinsa bara. En auðvitað hreinsar betur með loftpressu eins og þeir líklega gera. En er þörf á því, líklega ekki. Þeir eru ekkert að fara að taka allt úr tölvunni þinni og pússa sko. Ef þú ert keðjureykingarmaður og tölvan er ein tjara segja þeir bara sorry nei nennum þessu ekki.

Að leita að vandamálum í vélbúnaði sem er ekki sína nein merki um bilanir er nokkuð tilgangslaust tbh. Fyrir utan að þú getur sjálfur gert það mjög easy með forriti eins og OCCT t.d. En honestly sé engan tilgang að leita að vandamálum sem eru ekki til staðar. Dálítið eins og að fara í öll test uppi á spítala þegar maður er heilbrigður.

Vírushreinsa stýrikerfið er nú bara einhver scripta líklega hjá þeim sem runnar bara malwarebytes og/eða eitthvað álíka. Getur downloadað þessu frítt sjálfur og keyrt... Windows update á nú að sjá um sig sjálft svo :P




Zensi
Fiktari
Póstar: 73
Skráði sig: Mán 10. Apr 2023 00:22
Reputation: 5
Staða: Ótengdur

Re: "Allsherjaryfirferð" þjónusta hjá tölvuverslunum

Pósturaf Zensi » Lau 21. Feb 2026 23:18

Það getur nú ekk verið að ræða um mikið meira en rykhreinsun, skipti á hitaleiðandi efni, herða á skrúfum eða setja í skrúfur s.vantar og svo kannski hugbúnaðarvinna oná það. Líka gott tækifæri til að selja kúnna eitthvað sem mætti vera betra eða er ganga úr sér eins og viftur máski sem er bara gott og blessað.

Ef menn ætla í að rykhreinsa tölvubúnað sjálfir þá minni ég á að það er veigamikið atriði að skorða viftublöð viftanna af þegar verið er að blása þær með pressu eða ryksuga með öflugum ryksugum.
Viftur virka nefnilega eins og rafall þegar þeim er snúið og geta sett ansi háa spennu inná móðurborð eða viftustýringar ef þær eru látnar snúast á fullu blast og mörg móðurborð mætt dauða sínum á þann hátt.



Skjámynd

Climbatiz
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 328
Skráði sig: Mið 11. Maí 2005 21:28
Reputation: 58
Staðsetning: Breidholt
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: "Allsherjaryfirferð" þjónusta hjá tölvuverslunum

Pósturaf Climbatiz » Sun 22. Feb 2026 06:51

keypti nýverið tölvu frá KD og allt í góðu en svo þurfti ég að re-installa Windows11 kerfinu sem kom með tölvunni og síðan þá hef ég haft crazy network problems, búinn að prufa allt plús keyra Linux í VM en ekkert lagar, ætla næst að skipta um router sem ChatGPT segir er eini möguleikinn eftir, en ef það virkar ekki, þá þarf ég bara að fara með vélina aftur í KD og fá þá til að setja upp OS uppá nýtt einsog tölvan kom með


ef ég skrifa kb þá meina ég kilobyte!!!